Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 39
Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Alcoa Fjarðaáli ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur hjá Capacent (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is eða í síma 540-7117) eða skrá umsókn þína á www.capacent.is. www.alcoa.is ÍS L E N S K A S IA .I S A L C 3 82 47 0 6. 20 07 Tækifæri til að nýta og njóta Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi ískjóli einstakrar náttúru, friðsæll og fjölskylduvænn staður. Sveitarfélög á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Á svæðinu er yfirbyggður knattspyrnuvöllur, glæsilegar útisundlaugar og frábært skíðasvæði. Samgöngur til og frá svæðinu eru góðar, á landi, í lofti og á sjó. Tækifæri til hvers konar útivistar eru fjölmörg og einnig bjóðast frábær tækifæri til afþreyingar, listirnar dafna og íþróttastarfsemi er öflug. Gríptu tækifærið Áhugaverð störf í hvetjandi umhverfi Störfin í álverinu eru fjölbreytt og örugg. Vinnustaðurinn er hannaður með það í huga að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Unnið er í teymum og mikið er lagt upp úr góðum starfsanda. Starfsumhverfið býður víðtæka þjálfun, meðal annars á ýmiss konar farartæki og tölvubúnað. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri. Góð laun og gott vinnufyrirkomulag Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru frá 3.739.000 kr. á ári, miðað við 15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangur- sávinning, sem jafngildir 312.000 kr. á mánuði. Byrjunarlaun iðnaðarmanns með réttindi eru frá 5.401.253 kr. á ári, miðað við 15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangursávinning. Það jafngildir 433.000 kr. á mánuði fyrir 40 stunda vinnuviku að meðaltali. Vaktafyrirkomulagið veitir góða möguleika á aukavöktum og viðbótartekjum fyrir þá sem óska þess. Heilbrigði og velferð Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni 12.000 kr. líkams- ræktarstyrk árlega og leigir tvo tíma á viku fyrir starfsmenn í Fjarðabyggðarhöllinni. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkamsbeitingu og nuddari heimsækir vinnustaðinn tvisvar sinnumí viku. Starfsmenn hafa greiðan aðgang að öflugri velferðarþjónustu sem nær meðal annars til læknis- þjónustu og ráðgjafar á ýmsum sviðum. Fríar ferðir, fæði og klæði Fjarðaál býður upp á rútuferðir frá Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Starfsmenn fá hollar og góðar máltíðir í glæsilegu mötu- neyti. Fyrirtækið útvegar og þvær allan vinnufatnað starfsmönnum að kostnaðarlausu. Auðveldur flutningur inn á svæðið Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr meira en 100 km fjarlægð frá vinnustaðnum greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu fasteigna, svo sem sölulaun, lántökugjald og stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að pakka búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju heimili. Með fyrsta launaseðli fær starfsmaður 200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir á svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa á svæðinu við að leigja húsnæði. Starfsmenn fá jafnframt tiltekinn fjölda flugmiða með Flugfélagi Íslands á mjög hagstæðum kjörum. Gríptu þitt tækifæri Hjá Fjarðaáli er nú búið að ráða ríflega 330 starfsmenn og við leitum enn að fólki sem vill starfa með okkur, að konum jafnt sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna hjá Fjarðaáli og hlutfall kvenna af starfsmannafjölda í álveri er hvergi í heiminum jafnhátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.