Fréttablaðið - 07.07.2007, Page 4
Þeir sem lögregla
tekur fyrir háttsemi er brýtur
gegn lögreglusamþykkt geta nú
gengist undir sekt í beinu fram-
haldi af broti og lokið þannig sínu
máli. Þetta er nýjung í starfi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og varðar einungis minni háttar
brot.
„Það er tekið á þessu um leið og
runnið er af fólki ef það á við og
því þá boðið að gangast undir
sekt,“ segir Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri. „Það þarf að fá ákær-
anda og lögfræðing að málinu
strax og það liggur fyrir. Við erum
búnir að setja upp skipulag sem
felur í sér að hér eru lögfræðingar
embættisins að störfum um helg-
ar í þessu skyni. Með þessu erum
við að auka og efla samvinnu lög-
reglumanna og lögfræðinga emb-
ættisins því við teljum að það skili
mjög góðum árangri. Efld sam-
vinna hefur í för með sér aukna
skilvirkni og er mjög mikilvægur
þáttur í þessu öllu saman.“
Stefán segir að mál sem tekin
eru til meðferðar með þessum
hætti séu minni háttar mál og brot
á lögreglusamþykkt, svo sem ef
menn henda rusli, eru með ósk-
unda og uppivöðslusemi eða aðra
viðlíka háttsemi.
„Við erum að taka með miklu
meiri festu á þessum brotum nú í
því skyni að auka aga í miðborg-
inni og annars staðar á höfuðborg-
arsvæðinu.“
Lögfræðingar á helgarvöktum
„Það kemur ekkert í staðinn fyrir
sextíu þúsund tonn af þorski,“
sagði Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra þegar mót-
vægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar
vegna samdráttar í þorskveiðum
voru kynntar í gær.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
er almennt orðuð og nær til
margra þátta. Ítrekuð er fyrri
ákvörðun um áform um tíma-
bundin aukaframlög í Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga en að auki er
kveðið á um að frekari fjárþörf
sveitarfélaga verði metin.
Styrkja á Byggðastofnun, efla
samkeppnisstöðu Vestfjarða, ráð-
ast í sérstök átaksverkefni og
hraða vegaframkvæmdum og
uppbyggingu fjarskiptaþjónustu.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði að þótt ákvörðun um
aflasamdrátt væri á forræði sjáv-
arútvegsráðherra nyti hún stuðn-
ings allrar ríkisstjórnarinnar.
Sagðist hann telja ákvörðunina
rétta, vera ábyrga og lýsa heil-
miklu hugrekki. „Þessi ákvörðun
mun bitna misjafnlega þungt á
einstökum svæðum á landinu og
ríkisstjórnin mun ekki víkja sér
undan þeirri ábyrgð að bregðast
við vanda sem skapast kann á
einstökum stöðum,“ sagði Geir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra sagði ákvörð-
un um mikla skerðingu þorsk-
kvóta ekki sársaukalausa; erfið
staða blasi við einstaklingum,
fyrirtækjum og byggðarlögum
og við því þyrfti að bregðast.
Ingibjörg sagði erfiðleika í
atvinnumálum landsbyggðarinn-
ar þó ekki einvörðungu stafa af
stöðunni í sjávarútveginum;
hágengi og háir vextir hefðu sitt
að segja.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
er hvorki tíma- né krónusett og
spurðir sögðu ráðherrar erfitt að
segja til um hvað mótvægisað-
gerðirnar kostuðu. Lögðu þeir
áherslu á að mikið væri um til-
flutning verkefna milli ára og
svæða en minna um stofnun
nýrra útgjaldaliða. Þá gátu þeir
þess að áhersla hafi verið lögð á
að aðgerðirnar samrýmdust því
meginmarkmiði ríkisstjórnarinn-
ar að treysta stöðugleika í efna-
hagslífinu.
Það kemur ekkert í staðinn
fyrir 60.000 tonn af þorski
Ríkisstjórnin ætlar að grípa til sérstakra aðgerða til að styrkja atvinnulíf á þeim svæðum sem verst verða
fyrir barðinu á aflasamdrættinum. Bæði er um að ræða skammtímaaðgerðir og aðgerðir til lengri tíma.
Launakjör fatlaðra
ungmenna verða leiðrétt nú
þegar, samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá félagsmálaráðuneyti.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra kynnti sér mál
þeirra eftir umfjallanir í fjölmiðl-
um og ákvað í kjölfarið að veita
sérstakan styrk til að þessi
mismunun yrði leiðrétt.
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að ráðuneytið leggur ríka
áherslu á mikilvægi virkrar
þátttöku fatlaðra á vinnumarkaði.
Félagsmálaráðherra fagnar
áhuga og árangri átaksverkefnis
ÍTR og Svæðisskrifstofu.
Launakjörin
leiðrétt strax