Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 74
 Guðjón Þórðarson, þjálf- ari ÍA, fullyrti það í Kastljósi Sjón- varpsins í fyrrakvöld að Kristj- án Guðmundsson, þjálfari Kefla- víkur, hefði sent varamann inn á til þess eins að reyna að limlesta Bjarna Guðjónsson, leikmann ÍA. Einari Orra Einarssyni var skipt inn á í liði Keflavíkur skömmu eftir að Bjarni skoraði síðara mark sitt í leiknum. Markið hefur verið umdeilt, svo vægt sé til orða tekið, en Keflvíkingar vilja meina að Bjarni hafi hagað sér óheiðar- lega og óíþróttamannslega. Einar Orri tæklaði Bjarna illa skömmu eftir að hann kom inn á og fékk fyrir vikið að líta rauða spjaldið. „Ef Guðjón dregur ekki þessi orð til baka munum við leita rétt- ar okkar. Það er ekkert öðruvísi,“ sagði Einar Helgi Aðalbjörnsson, faðir Einars Orra, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég hef sagt Gísla [Gíslasyni, formanni rekstrarstjórnar KÍA] þetta. Guðjón heldur því fram að drengurinn hafi verið sendur inn á völlinn sem einhver hryðjuverka- maður.“ Spurður hvort hann telji að Einar Orri hafi viljandi ætlað að meiða Bjarna segist Einar Helgi hafa spurt son sinn að því sama. „Hann sagði við mig að ef hann hefði ætlað að gera þetta, hefði hann tæklað löppina sem Bjarni stóð í. Það gerði hann ekki. En þetta var hárréttur dómur og ekki hægt að mótmæla rauða spjaldinu sem Einar Orri fékk.“ Kristján Guðmundsson, þjálf- ari Keflavíkur, sagði svo í samtali við 14-2 í Sjónvarpinu að honum væri flökurt eftir að hafa hlustað á Guðjón í Kastljósinu. „Þetta er háalvarleg ásökun og efni í meiðyrðamál. Ég krefst þess að Guðjón biðjist afsökunar á þessum ummælum. Hann vegur að mínum heiðri sem knattspyrnu- þjálfara og jafnvel sem mann- eskju. Ég geri ekki svona hluti.“ Um atvikið sagði Guðjón orðrétt í Kastljósi: „Markið er eitt út af fyrir sig. [...] Það er sendur maður inn á til þess eins að limlesta leik- mann. Ég fullyrði það.“ Munum leita réttar okkar ef Guðjón biðst ekki afsökunar Höskuldur meiddur á þremur stöðum í einu Heiðar Helguson ætlar sér ekki að fara til 1. deildarliðs West Bromvich Albion. Fulham hefur komist að samkomulagi við WBA um kaup á Diomansy Kamara þar sem Heiðar var hluti af kaupverðinu. Samningur WBA og Heiðars var það eina sem gat komið í veg fyrir skiptin en svo virðist sem ekkert verði úr þeim. „Ég sagði endanlega nei við þá í gær (fimmtudag) og ég á alls ekki von á því að það breytist,“ sagði Heiðar. „Mér líst ekki mikið á þetta, þeir eru til dæmis að selja alla sína bestu leikmenn,“ sagði Heiðar. Hafnaði WBA endanlega Í gær var dregið í töfl- uröð fyrir Íslandsmótið í hand- knattleik sem hefst um miðjan september. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki taka á móti Hauk- um í stórleik fyrstu umferðar í nýju og glæsilegu íþróttahúsi sínu að Hlíðarenda. Þá mætast HK og Stjarnan, Fram fer til Vestmanna- eyja og Afturelding tekur á móti Akureyri. Átta lið eru í deildinni og verður leikin fjórföld umferð. Í kvennaflokki leika níu lið en þar verður spiluð þreföld umferð. Fram og Haukar mætast í fyrstu umferð- inni, FH og Stjarnan eigast við í Hafnarfirði, Grótta tekur á móti HK og Valsstúlkur mæta Akureyri. Auk þessara félaga tekur Fylkir þátt í Íslandsmóti kvenna. Stórleikur í fyrstu umferð Valur og KR eru enn jöfn á toppi Landsbankadeildar kvenna eftir 1-1 jafntefli á Valbjarnarvelli í gær. Hrefna Huld Jóhannesdótt- ir kom KR yfir snemma í leikn- um en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin í þeim síðari. KR-ingar komu Valsmönnum í opna skjöldu á fjórtándu mínútu þegar Hrefna Huld skoraði eftir laglegan undirbúning Hólmfríð- ar Magnúsdóttur. Skot Hrefnu var hnitmiðað og fast og kom Guð- björg Gunnarsdóttir engum vörn- um við. Leikmenn Vals létu sér þó ekki segjast og pressuðu stíft á vörn KR, sem náði þó að halda mjög vel. Miðverðirnir Agnes Árnadóttir og þá sérstaklega Alicia Wilson vörð- ust þó afar vel og gáfu snöggum sóknarmönnum Vals ekkert eftir. Besta færi Vals í fyrri hálf- leik fékk Margrét Lára en hún skaut hátt yfir úr miðjum teign- um eftir að hafa fengið laglega sendingu frá Guðnýju Óðinsdótt- ur. Þetta gerðist á 21. mínútu og skömmu síðar virtist brotið á Mar- gréti Láru í vítateignum en ekkert var dæmt. Hlúa þurfti að henni í dágóðan tíma en hún gat haldið áfram leik skömmu síðar. Það voru þó leikmenn KR sem voru nær því að auka muninn fyrir leikhlé því þeir áttu besta færi hálfleiksins. Hólmfríður átti á lokamínútu hálfleiksins skyndi- lega þrumuskot sem hafnaði í þverslánni en Guðbjörg virtist varla búast við skotinu. KR byrjaði síðari hálfleik af krafti og Hólmfríður átti skalla að marki strax á 48. mínútu eftir horn Eddu Garðarsdóttur. Vals- menn neyddust til að bjarga á línu og var Málfríður Erna Sigurðar- dóttir þar að verki. Valsmenn héldu þó sínu striki og uppskáru mark á 64. mínútu. Margrét Lára skoraði það mark með föstu skoti. Bæði lið áttu sín færi eftir þetta en það besta fékk Dóra María Lár- usdóttir. Hún fékk sendingu frá Nínu Ósk Kristinsdóttur sem færði sér mistök í vörn KR í nyt en hin stórefnilega Íris Dögg Gunnars- dóttir var vel á verði í markinu. „Ég er bara hundfúl með úrslit leiksins,“ sagði Elísabet Gunnars- dóttir, þjálfari Vals. „Við áttum miklu fleiri færi í þessum leik og áttum að vinna hann. Ég var mjög óánægð með varnarleikinn en við sköpuðum okkur aftur á móti fullt af færum og áttum að nýta þau. Við vorum ekkert góðar í dag en áttum samt að vinna.“ Þjálfari KR, Helena Ólafsdóttir, sagði úrslit leiksins nokkuð sann- gjörn, þegar á heildina er litið. „Ég hefði auðvitað viljað fara heim með þessa forystu sem við vorum komin með en úrslitin kannski sanngjörn. Við megum vera mjög ánægðar með baráttu leikmanna og stelpurnar gáfu allt það sem þær áttu í leikinn. Ég ætlaði liðinu sigur en jafntefli er betra en tap.“ Topplið Landsbankadeildar kvenna, Valur og KR, mættust á Valbjarnarvelli í gær. KR komst yfir í fyrri hálfleik en Valur jafnaði metin í þeim síðari. Bæði lið fengu sín færi til að tryggja sér stigin þrjú.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.