Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 2
 „Það er ekki verið að fresta framkvæmdum við Sunda- braut og það stendur ekki til,“ segir Kristján L. Möller sam- gönguráðherra. Fréttablaðið upplýsti í gær að hluti þeirra fjögurra milljarða króna, sem samkvæmt sam- gönguáætlun eiga að fara í Sunda- braut á næsta ári, yrði nýttur til vegaframkvæmda annars staðar á landinu. Kom jafnframt fram að útlit væri fyrir að peningarnir nýttust ekki allir til verksins þar sem undirbúningur er tiltölulega skammt á veg kominn. Kristján staðfestir þetta en segir óvíst hve miklu af Sunda- brautarpeningunum verður ráð- stafað til annarra verka. Enn sé ekki hægt að segja til um hver fjárþörfin verður enda verkframvind- an óljós. Eftir er að meta umhverfis- áhrif, ákvarða legu og í fram- haldi þess; hanna mann- virkið. „Það verður farið í Sunda- braut um leið og verkið er tilbúið til fram- kvæmda. Ég er jafn áhugasamur og aðrir um að ráðist verði í lagn- ingu Sundabrautar,“ segir Kristj- án L. Möller. Við tökum vel á móti þér í Borgartúni 25 Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is Fanginn sem talið er að hafi verið fótbrotinn af samföngum sínum á Litla-Hrauni á miðvikudag heitir Hákon Eydal. Hann afplánar sextán ára fang- elsisdóm, sem hann hlaut fyrir að hafa banað fyrrverandi sambýl- iskonu sinni, Sri Rhama- wati, þann 4. júlí 2004. Ekki er vitað hvort til- viljun réði því að atvikið átti sér stað 4. júlí, nákvæmlega þremur árum eftir morðið. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru tveir fangar grunaður um verknaðinn. Ekki er vitað hver átti upptökin, en fang- arnir börðu og spörkuðu í Hákon á gangi í fangelsinu og inni í fangaklefa. Spörk fanganna urðu til þess að efri hluti lærleggs Hákons brotnaði og hnéskel laskaðist. Enn er ekki fullkomlega ljóst hvað hrinti þessari atburðarás af stað, en rannsókn málsins stend- ur enn yfir. Hákon gekkst undir aðgerð á bæklunardeild á Landspítala í gær og dvelur enn á sjúkrahús- inu. Samkvæmt lögreglu eru alvar- legar líkamsárásir innan veggja fangelsa ekki algengar þótt eitt- hvað sé um pústra og minnihátt- ar stimpingar. Fótbrotinn þremur árum eftir morðið Hákon Eydal liggur lærleggs- og hnéskeljarbrotinn á spítala. Talið er að sam- fangar hafi sparkað ítrekað í hann. Árásin átti sér stað sléttum þremur árum eftir að hann barði sambýliskonu sína, Sri Rhamawati, til bana með kúbeini. Live Earth tónleik- arnir fara fram í átta borgum í sjö heimsálfum í dag og standa yfir í 24 klukku- stundir. Meira en 150 tónlistar- menn koma fram á tónleik- unum sem haldnir eru til þess að vekja athygli fólks á loftslagsbreyt- ingum og mengun. Tónleikarnir fara fram í New York, London, Sidney, Hamborg, Jóhannesar- borg, Rio de Janeiro, Tókýó og Sjanghæ. Um tíma var rætt um að tónleikarnir yrðu haldnir í Reykjavík en ekkert varð af því þar sem samkomulag náðist ekki við stjórnvöld. Tónleikunum er sjónvarpað beint á Skjá einum. Sýndir beint um allan heim Úrskurður mannrétt- indadómstóls Evrópu um brot Hæstaréttar á réttindum níu ára fjölfatlaðrar stúlku er ekki endilega álitshnekkir fyrir Hæstarétt. Þetta sagði Björn Bjarnason dóms- málaráðherra við blaðamenn fyrir utan Stjórnarráðið í gær. Hann vildi að öðru leyti lítið tjá sig um dóminn vegna þess að hann sé óþýddur. Samkvæmt dómnum braut Hæstiréttur á stúlkunni þegar hann byggði úrskurð sinn í læknamistakamáli á umsögn Læknaráðs. Mannréttindadóm- stóllinn dró í efa að ráðið gæti verið hlutlaust, enda sátu þar fjórir starfsmenn Landspítala. Ekki endilega álitshnekkir Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók í gær við nýjum forsetabíl af gerðinni Lexus LS600h. Forstjóri Toyota í Evrópu, Tadashi Arashima, afhenti forsetanum lyklana á Bessastöðum. Bíllinn er tvinnbifreið og sá fyrsti sinnar tegundar í flokki við- hafnarbifreiða. Bíllinn er knúinn af svokölluðu Hybrid-kerfi sem samanstendur af rafmótor og bensínvél. Bíllinn getur ekið á 60-70 kíló- metra hraða á rafmótornum einum saman og er þá laus við útblástur og fullkomlega hljóðlátur. Ólafur Ragnar er fyrsti þjóðhöfðinginn í Evrópu til að fá slíkan bíl. „Þrettán ár eru síðan við keypt- um síðast nýjan bíl, þannig að við sóum ekki peningum og förum vel með bílana okkar,“ sagði forsetinn við Arashima þegar hann tók við lyklunum. „Við svipuðumst eftir bíl sem sendir þau skilaboð til Íslendinga og annarra þjóða að ef okkur sé alvara í umræðunni um ógnir vegna hlýnunar jarðarinnar þurf- um við að sýna fordæmi,“ sagði forsetinn. Lexus tvinnbifreiðar af þessari gerð kosta allt frá 11 milljónum upp í 15 milljónir króna hjá Toyota á Íslandi. Engin peningasóun Pétur, lá ekki beinast við að spila Money? „Það er töluverð söluaukning hjá okkur í gasgrill- um og garðvörum og þá sérstak- lega sláttuvélum,“ segir Júlía Vilbergsdóttir, starfsmaður á þjónustuborði í BYKO. Hún segir einstaka vörutegundir þó ekki búnar. „Við vonumst auðvitað til að veðrið verði áfram gott í sumar eins og allir landsmenn gera eflaust,“ segir Júlía. Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúnsverslan- anna, segir grillkjötið rjúka út í góða veðrinu. „Sósur og tilbúnir réttir á grillið hafa selst vel og starfsmenn kjötborða í öllum verslunum okkar hafa orðið varir við söluaukningu enda fara margir að grilla þegar sólin skín,“ segir Bjarni Friðrik. Sláttuvélar og grillkjöt vin- sælt í sólinni Lögreglan í Borgarnesi veitti karlmanni á miðjum aldri eftirför eftir að bíll hans mældist á 116 kílómetra hraða undir Hafnarfjalli laust fyrir klukkan fimm í gær. Maðurinn, sem var einn í bílnum, sinnti ekki stöðvunar- merkjum lögreglu og keyrði inn Hvalfjörð. Þar mældist hann mest á 150 kílómetra hraða. Lögreglan á Akranesi og í Reykjavík kom til aðstoðar og tókst að króa manninn af á brúnni yfir Laxá í Kjós. Þar læsti hann að sér, neitaði að koma út og þeytti bílflautuna. Brjóta þurfti rúðu í bílnum til að ná manninum út og drepa á bílnum. Maðurinn var hvorki ölvaður né undir áhrifum lyfja, en læknir var fenginn til að meta andlegt ástand hans við skýrslu- tökur. Króaður af á einbreiðri brú „Sveitarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með að fjármálaráðherra skuli ekki hafa gefið meira eftir í kröfum til lands Grýtubakkahrepps og fer þess enn á leit við fjármálaráð- herra að hann dragi til baka kröfur í eignarland hreppsins,“ eru viðbrögð sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps við bréfi Óbyggðanefndar um þjóðlendu- mál á austanverðu Norðurlandi. Sveitarstjórnin segir ríkið aðeins hafa breytt landakröfum sínum örlítið og minnir þing- menn kjördæmisins á að þeir hafi fyrir kosningar sagst mundu fylgja málinu eftir. Vonbrigði með þjóðlendukröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.