Fréttablaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 12
Lögreglan var
kölluð út í Meðalholt um klukkan
tvö í fyrrinótt vegna hópslags-
mála í götunni. Karlmaður á
þrítugsaldri braut rúðu í íbúð sem
hann hugðist ráðast inn í. Íbúar í
götunni kölluðu til lögreglu og
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru mikil ólæti af
mönnunum og bárust slagsmálin
út í garð. Lögregla gat ekki gefið
upplýsingar um hversu margir
voru í íbúðinni sem ráðist var inn
í. Sá sem rúðuna braut var
handtekinn og samkvæmt
lögreglu hefur maðurinn margoft
komið við sögu lögreglu áður.
Enginn meiddist í átökunum.
Hópslagsmál í
Meðalholti
„Þau skoðuðu meðal
annars fyrirhugaða virkjunarkosti
og umhverfi þeirra. Síðan var
haldinn fundur með hagsmunaað-
ilum og fleirum,“ segir Guðfinnur
Jakobsson hjá samtökunum Sól á
Suðurlandi.
Á dögunum ferðuðust nefndar-
menn í umhverfisnefnd og iðnað-
arnefnd Alþingis ásamt umhverf-
isráðherra um fyrirhugað
virkjunarsvæði við Þjórsá. Einnig
voru skoðaðar þær virkjanir sem
nú eru við Þjórsá. Með í för voru
fulltrúar Landsvirkjunar, Sólar á
Suðurlandi og áhugahóps um
verndun Þjórsárvera. Í lok ferðar-
innar fundaði hópurinn ásamt full-
trúum Flóahrepps og Skeiða- og
Gnúpverjahrepps.
„Á fundinum var upplýst um
afhendingu vatnsréttinda í Þjórsá.
Þau voru afhent Landsvirkjun
þann fimmta maí, skömmu fyrir
kosningar. Sumir þingmannanna á
fundinum höfðu ekki heyrt um
það áður,“ segir Guðfinnur.
Fulltrúar Landsvirkjunar á
fundinum voru spurðir um hvaða
starfsemi kæmi til með að fá fyr-
irhugaða raforku. Svörin voru að
það lægi ekki fyrir að svo stöddu.
„Það var líka upplýst um gang
mála í samningum Landsvirkjun-
ar við landeigendur um vatnsrétt-
indin. Landsvirkjun segir að við-
ræður gangi vel en bændurnir
segja að svo sé ekki.“
Kom þingmönnum á óvart
„Þetta komst því miður ekki í gegn þegar
samið var um stjórnarsáttmálann,“ segir Einar Már
Sigurðarson, fulltrúi Samfylkingar í menntamála-
nefnd.
Fyrir síðustu kosningar auglýsti Samfylkingin að
ein af tólf ástæðum þess að ungt fólk ætti að kjósa
flokkinn væri sú að námsmenn fengju þá ókeypis
skólabækur.
Einar segir að þótt þetta markmið hafi ekki náðst í
fyrsta áfanga, sé ekkert útilokað í þeim efnum.
„Þetta er auðvitað gífurlega mikilvægt til jöfnunar í
samfélaginu.“
Einnig megi koma til móts við foreldra framhalds-
skólanema með markvissum aðgerðum í skattkerf-
inu. Það komi til greina.
Spurður segir Einar það augljóst að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi staðið í vegi fyrir að málið næði
fram að ganga. „Það sem við náðum ekki að koma
fram er vegna þess að þetta voru kaup kaups.“
Alþýðusamband Íslands birti á dögunum niður-
stöður könnunar á verði á námsbókum. Kom fram í
henni að mismunur á innkaupa- og útsöluverði bóka
á skiptibókamörkuðum er allt að 80,6 prósent.
Algeng álagning á notaðar bækur er 45 til 67
prósent.
Engar ókeypis skólabækur í ár
Samfylkingin hefur
kallað eftir upplýsingum um
hvort borgarstjóri hafi skrifað
fleiri dagvöruverslunum eða
rekstraraðilum í borginni vegna
fregna um að Vínbúðin í Austur-
stræti hafi tekið bjórkælinn úr
sambandi og flutt hann niður í
kjallara.
Fyrirspurnin er eftirfarandi.
„Óskað er eftir því að bréf
borgarstjóra um að bjórkælir
verði tekinn úr sambandi hjá
ÁTVR í Austurstræti verði lagt
fyrir borgarráð sem og önnur
bréf borgarstjóra sem innihalda
ábendingar til dagvöruverslana
og annarra rekstraraðila í
miðborginni um hvernig þeir
þjónusti viðskiptavini sína.“
Samfylkingin
vill bréfið um
kælinn í ÁTVR