Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 13

Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 13
Nokkrir ungir Danir gerðu sér leik að því að skrúfa stýrið af bíl sem þeir óku á 100 km hraða, taka myndir af öllu saman og setja myndskeiðið á netið – án þess að gera skráningarnúmer bílsins óþekkjanlegt. Lögreglan brást skjótt við. Fréttavefur Der Spiegel hefur eftir Der Nordschleswiger, dagblaði þýskumælandi minnihlut- ans syðst á Jótlandi, að danska lögreglan hafi verið fljót að hafa uppi á hinum tvítuga ökumanni bílsins. Hann eigi að sögn lögreglu hugsanlega yfir höfði sér fangels- isdóm fyrir að stofna mannslífum í hættu. Tóku stýrið af á 100 km hraða Viðvörun vegna sniffs á gasi Ísland er í sjötta sæti af ríkjum OECD hvað varðar útgjöld til rannsókna og þróunar árið 2005. Þetta er meðal annars það sem kemur fram í nýrri skýrslu Rannís. Þar er fjallað um stöðu Íslendinga á sviði rannsókna, þróunar og þekkingarsköpunar. Þar er að finna nýjustu hagtölur vísinda, tækni og nýsköpunar og yfirlit gefið yfir þróun þeirra á undanförnum árum og áratugum. Fjallað er um Ísland í alþjóðlegum samanburði. Verkefnið vann Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðs- stjóri greiningarsviðs, og Elva Brá Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði. Rannsóknir og þróun á Íslandi „Starf forsetans hefur opnað nýja möguleika fyrir íslenskan þekkingariðnað á sviði orkumála,“ segir Pétur Stefáns- son, fjármálastjóri Enex. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti í vikunni fund með Barböru Boxer, formanni umhverfisnefndar öldungadeild- arinnar í Bandaríkjunum, um sam- starf Íslendinga við Bandaríkja- menn á sviði orkuöflunar hreinna orkugjafa. „Forsetinn hefur átt marga fundi bæði hér heima og erlendis með þungavigtarfólki úr stjórn- málunum sem og fólki úr tækni- og fjármálageiranum. Þá hefur hann upplýst stjórnmálamenn vestra um hvað íslenskur þekk- ingariðnaður hefur upp á að bjóða. Því er ljóst að það eru miklir möguleikar í boði og við hyggjum á gríðarlega landvinninga,“ segir Pétur. Enex er nú þegar að vinna að verkefnum í Bandaríkjunum. „Í haust hefjum við borframkvæmd- ir í Truckhaven í Kaliforníu. Þar byggjum við 50 megawatta gufu- aflsvirkjun.“ Enex er orkufyrirtæki sem reis- ir virkjanir og markaðssetur tækniþekkingu og reynslu íslenskra fyrirtækja á sviði jarð- varma og vatnsafls. Fyrirtækið er með verkefni um allan heim til dæmis í Kína, Þýskalandi og El Salvador. Miklir möguleikar vestan hafs Stéttarfélög opinberra starfsmanna fylgjast með vinnu Alþýðusam- bandsins og Samtaka atvinnulífsins að breytingum á veikinda- og slysarétti á almennum vinnumarkaði. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segist hafa átt í óformlegum viðræðum við ASÍ um veikindakerfið almennt. „Skoða þarf hvernig hægt er að standa rækilega vörð um réttindi þeirra sem eru veikir jafnframt því sem stuðlað er að því að fólk nái heilsu og komist út á vinnu- markaðinn. Markmiðin eru þau sömu en leiðirnar sem farnar eru hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði eru ekki að öllu leyti áþekkar. Þetta þarf að íhuga.“ Óformlegar við- ræður við ASÍ Grunur leikur á að hópur ungmenna í umdæmi Heilsugæslustöðvarinnar á Selfossi hafi að undanförnu fiktað við að sniffa gas. Tómir gasbrúsar hafa fundist á víð og dreif. Hjúkrunarfræðingar stöðvarinn- ar hafa sent frá sér viðvörun vegna málsins. Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrun- arstjóri á Heilsugæslustöðinni segir að fikti fólk við að sniffa gas, bensín, lím eða önnur svipuð efni, geti það kostað viðkomandi lífið eða valdið alvarlegu líkams- tjóni. Eiturgufurnar sem þeir anda að sér skaði taugakerfið og önnur líffæri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.