Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2007, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 24.08.2007, Qupperneq 18
fréttir og fróðleikur Leit byggist á leitarfræðum Íslensk heimili hafa aldrei skuldað jafn mikið vegna yfirdráttarlána. Í lok síð- asta mánaðar skulduðum við bönkunum um 76 millj- arða í yfirdrátt, sem sam- svarar tæpri kvartmilljón á hvert mannsbarn í landinu. Bankakerfið hefur innheimt um tvær milljónir á klukku- stund allan sólarhringinn, allt árið vegna yfirdráttar- skulda, sem nema um tíu prósentum heildarskulda heimilanna í landinu. Seðlabankinn birti hagtölur banka- kerfisins fyrir nokkrum dögum, þar sem staðan, eins og hún var í lok júlí, kom fram. Greiningar- deildir bankanna fjölluðu um töl- urnar í fyrradag, meðal annars um það að yfirdráttarlán heimil- anna hafa aldrei nokkurn tímann verið hærri en nú. Á einum mán- uði jukust þau um ellefu milljarða, eða tæp sautján prósent. Eins og flestir sem tekið hafa yfir- dráttarlán vita eru þau yfirleitt dýrustu lán sem hægt er að taka. Miðað við vaxtatöflur bankanna eins og þær voru í gær er algengt að 23,95 prósenta vextir séu greiddir árlega af yfirdráttarlán- um. Hægt er að fá betri kjör á þessum lánum, til dæmis með því að velta ákveðið miklu fé á ári eða vera í ákveðnum hóp viðskipta- vina, en flestir greiða vextina eins og þeir eru hæstir, 23,95 prósent. Til viðbótar við háa vaxtabyrði þeirra sem taka yfirdráttarlán hjá banka þá eru háar fjárhæðir rukk- aðar fyrir að fara yfir heimildina á debetkortareikningnum. Hjá viðskiptabönkunum þremur; Kaupþingi, Glitni og Landsbank- anum, auk Byrs og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis kostar hver færsla án innistæðu 750 krónur að lágmarki, en fer hækk- andi eftir því sem færslan er hærri. Þessi gjöld, sem nefnast FIT (færsluskrá innistæðulausra tékka), hafa verið gagnrýnd fyrir að endurspegla ekki þau útgjöld sem bankinn verður fyrir við inn- heimtuna. Það kostar því mikið að lifa á yfirdrætti, sérstaklega ef maður heldur ekki nógu vel um budduna og lendir í því að fara yfir á reikn- ingi. Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hag- fræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, segir ekki ljóst hvers vegna yfirdráttarskuldir heimil- anna hafa aukist svona mikið und- anfarið, en það sé vissulega áhyggjuefni. Yfirdráttarlán séu talin vera óhagstæðust af öllum lánum, og það sé ekki gott að taka þau til lengri tíma. „Þegar við hjá ASÍ skoðuðum vaxandi skuldir heimilanna í vor sáum við að þjóð- in hefur í raun verið að eyða langt umfram það sem hún hefur verið að afla,“ segir hún. „Hvort neyslan sé óþörf eða ekki verður hver og einn að eiga við sig, en við höfum verið að sjá gífurlega aukningu í sölu á lúxus- vörum eins og tjaldvögnum og fellihýsum.“ Hún ráðleggur þeim sem eru illa staddir fjárhagslega að leita aðstoðar hjá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna áður en vand- inn verður að ókleifum múr. „Fólk þarf að fara yfir fjármálin og finna hvar hægt er að spara. Það er ótrúlegt hvað er hægt að finna til að spara þegar farið er yfir neyslu heimilisins.“ Fram kemur í nýjustu hagtölum Seðlabanka Íslands að heildar- skuldir heimila til bankakerfisins námu tæpum 780 milljörðum króna í lok júlí. Yfirdráttarlánin, tæpir 76 milljarðar, eru því rétt um tíu prósent af öllum skuldun- um. Alls hafa skuldir heimilanna vaxið um átján prósent frá sama tíma í fyrra, samkvæmt hálffimm fréttum greiningardeildar Kaup- þings í fyrradag. Langstærsti hluti skuldanna er vegna verðtryggðra lána, samtals um 558 milljarðar eða rúm sjötíu prósent. Verðtryggð lán tóku mik- inn kipp í september 2004, þegar bankarnir héldu inn á íbúðalána- markað, og hafa rúmlega fimm- faldast síðan þá. Gengisbundin lán vega einnig þungt á skuldavog- inni, eða um tólf prósent allra skulda heimila í landinu. Þau hafa næstum því tvöfaldast á einu ári miðað við fast gengi. Yfirdráttarskuldir heimilanna hafa sveiflast nokkuð milli mán- aða það sem af er árinu, en sé tekið meðaltal af stöðunum í lok hvers mánaðar fæst 71 milljarður króna. Miðað við 23,95 prósenta vexti á ári, sem jafngilda rétt tæpum tveimur prósentum í vexti á mán- uði, borga íslensk heimili um 1.400 milljónir í vexti vegna yfirdrátt- arlána mánaðarlega. 1.400 milljónir á mánuði eru tæpar fimmtíu milljónir á dag, tvær milljónir á hverja klukku- stund eða rúmar fimm hundruð krónur á sekúndu. Tvær milljónir á tímann í yfirdrátt Útflutningsbanni til ESB aflétt af Bretum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.