Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2007, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 24.08.2007, Qupperneq 56
BLS. 14 | sirkus | 24. ÁGÚST 2007 SPURNINGAKEPPNI sirkuss Helgi Seljan 1. Bresk. 2. Golden Gate. 3. Sigurður Ragnar Eyjólfsson. 4. Ólafía Hrönn. 5. Ekki hugmynd. 6. Svíþjóð. Ólafur J. 1. Bresk. 2. Golden Gate. 3. Sigurður Ragnar Eyjólfsson. 4. Elín Reynisdóttir. 5. Ellý Ármanns. Helgi Seljan er ósigrandi. Hér sigrar hann leikstjórann Ólaf Jóhannesson með 6 stigum gegn 5. Ólafur skorar á kvikmyndagerðamanninn Ragnar Santos. Fylgist með í næstu viku. 1. Hvers lensk er söngkonan Amy Winehouse? 2. Um hvaða brú fjallar heimildar- myndin The Bridge? 3. Hver er landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu? 4. Hver lék Florence, verstu söng- konu allra tíma, í leikriti Þjóðleikhús- ins á síðasta ári? 5. Hver er ritstjóri Vikunnar? 6. Hvar verður heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum haldið um helgina? 7. Hvaða hátíð fer fram á Akureyri um helgina? 8. Hvað heitir þáttur Sirrýar sem sýndur er á Stöð 2 á sunnudags- kvöldum? 9. Hver lék Manna í sjónvarpsþátta- röðinni sem sýnd var árið 1988? 10. Hvers konar samtök eru Ný dögun? 6 RÉTT SVÖR 6. Færeyjum. 7. Hátíð gegn spillingu. 8. Lífið og ég. 9. Einar Einarsson. 10. Sorgarsamtök. 5 RÉTT SVÖR SPURNINGAKEPPNI SIRKUS HELDUR ÁFRAM. HÉR KEPPIR HELGI SELJAN VIÐ ÓLAF JÓHANNESSON LEIKSTJÓRA. Ré tt sv ör :1 . B re sk .2 . G ol de n Ga te b rú na v ið S an Fr an si sc o. 3. S ig ur ðu r R ag na r E yj ól fs so n. 4. Ó la fía H rö nn Jó ns dó tti r.5 . E lín A rn ar .6 . J ap an .7 . A ku re yr ar va ka .8 . Ö rla ga da gu rin n. 9. E in ar Ö rn E in ar ss on .1 0. S am tö k um so rg o g so rg ar vi ðb rö gð . 7. Djasshátíð. 8. Örlagadagurinn. 9. Guðjón. 10. Sorgarsamtök. D r Gunni hefur töluna 29-11-2 og er þar að leiðandi í sumum bókum 11 en öðrum bókum tvistur. Þetta er mikil mastertala og margir þeirra sem hafa náð gífurlega langt hafa haft þessa tölu. Hún hefur einnig þann akkilesarhæl að þetta fólk lendir í mjög sérkennileg- um atburðum í lífinu og veikindum í kringum sig sem og aðra hluti sem það þarf að þola meira en aðrir. Ef þetta fólk lokar alltaf eða reglulega eftir sér hurðinni til fortíðar og lifir í deginum og hugsar ekki eina stund um það meir hvað er búið að gerast verður það sigurvegarar. Margt stórkostlegt fólk er með þessa tölu, samanber Madonna og fleiri sem hafa náð á toppinn. Dr. Gunni stefnir að sjálf- sögðu á toppinn, það er ekki vandamál. Hann er mikill réttlætissinni og laðar að sér fólk sem er að mörgu leyti dálítið sérkennilegt. Honum finnst gaman að fólki og er mikill „people person“. Dr Gunni þarf helst að vinna í skorpum, honum leiðist þetta 8-5 væl og hann þarf að hafa visst frjálsræði til að hlutirnir gerist eins og hann vill hafa þá. Hann er í eðli sínu svolítið bæði karl og kona og þar að leiðandi elskum við stelp- urnar að tala við hann, hann virðist hafa skoðun á öllu. Dr Gunni er á áttunni sem er tala hraða, sú tala sem maður þarf að taka snöggar ákvarðanir og grípa allar þær gæsir sem gefast. Oft eru möguleikar á breytingum á vinnu, nýjum tilboðum tengdum vinnu. Ég get ekki séð annað en að Dr Gunni hafi vit á að grípa réttu tilboðin. Það verða miklar breytingar á næsta ári þar sem hann hendir öllu út sem hann nennir ekki að hafa með sér yfir á næsta tímabil. Þá fær hann þriggja ára mjög sterka orku. Dr Gunni verð- ur sem sagt í stuði með guði og í botni með drottni. Grípur þær gæsir sem gefast Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is DR. GUNNI Samkvæmt Sigríði er Dr. Gunni eða Gunnar Hjálmarsson með sömu tölu og Madonna. „Hlutverkið er ansi krefjandi líkamlega og því hafa þrír íþróttaálfar verið ráðnir til að fylla í skarð Magnúsar Scheving,“ segir Suzanne Noble sem starfar sem almannatengslafulltrúi Latabæjar í Bret- landi. Búið er að ráða sjö breska leikara til að fara með hlutverk í leiksýningunni Lazy- town sem verður frumsýnd í London í október og mun ferðast víða um Bret- landseyjar. Íþróttaálfarnir þrír munu hins vegar heimsækja Ísland í lok ágúst- mánaðar. „Magnús hefur þróað hlut- verkið af mikilli nákvæmni og í Íslands- ferðinni ætlar hann að kenna álfunum hvernig þeir eiga að hreyfa sig og ná til barnanna. Við verðum líka stundum vör við að fólk í Bretlandi heldur að Latibær sé upprunninn í Bandaríkjunum og því viljum við gera það sem í okkar valdi stendur til að vekja athygli á því hvaðan álfurinn kemur.“ Það er eins gott að leikararnir undir- búi sig vel því að miðarnir á leiksýning- una í Bretlandi hafa rokselst þó að enn séu tveir mánuðir í frumsýningu. „Það hefur verið gríðarlega mikil fjölmiðla- umfjöllun í bresku pressunni um leik- sýninguna og ég hef tekið eftir því að kvenkyns blaðamenn sem eiga lítil börn hafa verið sérstaklega áhugasamir um að mæta og taka viðtöl við Magnús,“ segir Suzanne. „Á heimasíðu sjónvarps- þáttarins sendi ein móðirin fyrirspurn um daginn um hvort að hún væri sú eina sem léti sig dreyma um íþróttaálfinn á nóttunni. Svo reyndist ekki vera svo að íþróttaálfurinn virðist ekki síður ná til bresku húsmæðranna en barnanna.“ Breskum blaðamönnum var boðið að mæta í leikprufurnar fyrir íþróttaálfinn í Bretlandi. „Við vildum koma í veg fyrir að krakkarnir héldu að þeir myndu sjá sömu leikara í sjónvarpsþáttunum og á sviðinu og þess vegna buðum við blaða- mönnunum á svæðið.“ Svo fór að lokum að nokkrir blaða- menn spreyttu sig á leikfimiæfingum álfsins en það var þó sex ára strákur sem stal allri athyglinni. „Hann grátbað for- eldra sína um að fá að koma í prufu og það var ekki hægt að neita honum. Drengurinn varð orðlaus af aðdáun þegar hann sá Magnús, sem tók auðvitað vel á móti honum og saman tóku þeir nokkrar armbeygjur.“ - þká Íþróttaálfurinn heillar breskar húsmæður SINNIR AÐDÁENDUM Magnús Scheving leyfði þessum unga dreng að spreyta sig í prufunum og tók með honum nokkrar armbeygjur. BRESKUR ÍÞRÓTTAÁLFUR Þessi piltur reyndi fyrir sér í hlutverki íþróttaálfsins. „Ég hef ekki enn farið en ætla örugglega að skella mér. Í fyrra fór ég í Heiðmörk en það er misjafnt hvert ég fer. Það verður bara að koma í ljós.“ Fanney Lára Guðmundsdóttir Ungfrú Reykjavík „Ég fór í berjamó um síðustu helgi í frábæru veðri á Snæfellsnesi. Þetta var glæsileg ferð og konan mín ætlar að búa til berjasaft í kvöld. Við tínum bæði krækiber og bláber en á Snæfellsnesinu var einhverja hluta vegna miklu meira af bláberjum.“ Guðjón Bergmann jógakennari „Nei ég hef ekki farið í berjamó síðan ég var krakki. Mér finnst samt berin góð, sérstaklega bláberin í eftirrétti og ýmsar kræsingar. Hins vegar borða ég ekki mikið af krækiberjum.“ Harpa Melsted handboltakona Ertu búin(n) að fara í berjamó?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.