Fréttablaðið - 13.10.2007, Side 6
Ætlar þú að sjá heimildarmynd
Sigur Rósar, Heima?
Ert þú ánægð(ur) með nýjan
meirihluta borgarstjórnar?
Þú færð meira í Krónunni!
*Matarkarfan er 1.156 kr. ódýrari í Krónunni en Bónus
og 2.019 kr. ódýrari en í Nettó. Heildar matarkarfan
kostar 9.156 kr. í Krónunni en 10.312 kr. í Bónus og
11.175 kr. í Nettó.
... ódýrust*
11.175
Krónan
9.156
Bónus
10.312
Nettó
13%
dýrari.
22%
dýrari.
ódýrast!
Björn Ingi Hrafnsson,
borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, sagði á opnum fundi
framsóknarmanna í gær að með
því að láta ekki fara fram opin-
bert verðmat á hlut Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) sem rann inn í
Reykjavík Energy Invest (REI),
við sameininguna við Geysi
Green Energy, hafi náðst sjö til
átta milljörðum króna hærra
verð. Hann gagnrýndi ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks fyrir söluna á hlut ríkis-
ins í Hitaveitu Suðurnesja.
„Ef við hefðum fengið opinbert
verðmat hefðum við aldrei feng-
ið tíu milljarða,“ sagði Björn Ingi
þegar hann var spurður um verð-
mat á hlut OR í REI. Hann sagði
niðurstöðuna um að óefnisleg
eign hafi verið metin á tíu millj-
arða sé eitt mesta viðskiptaafrek
síðustu ára í íslensku samfélagi.
Orkumál voru mikið til umræðu
og Björn Ingi gagnrýndi ákvörð-
un ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks á
sölu ríkisins á fimmtán prósenta
hlut í Hitaveitu Suðurnesja þegar
opinberum aðilum var meinað að
kaupa hlut. Hann sagði að hug-
sjón flokksins hafi vikið um að
samfélagsleg sjónarmið eigi að
ráða um að einokunarþjónusta sé
ekki einkavædd. „Þetta er stór-
mál og ég skil ekki hvers vegna
þessi ákvörðun var tekin á sínum
tíma og tel það hafa verið mikil
mistök af okkar hálfu.“
Spurður um málefnasamning
nýs meirihluta sagði Björn Ingi
að flokkarnir hefðu sömu áhersl-
ur og tók dæmi. „Ég tel að núna
verði farið aftur á fullt með gjald-
frjálsan leikskóla.“
Eins og vænta mátti gerði
Björn Ingi grein fyrir ástæðun-
um sem hann hafði fyrir að slíta
meirihlutasamstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn. Þar var veiga-
mest að hans mati þær innbyrðis
deilur sem hann taldi vera innan
samstarfsflokksins.
Á sama tíma og framsóknar-
menn funduðu í Framsóknarhús-
inu við Hverfisgötu gengu borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks á
fund í Valhöll þar sem fundað var
með varaborgarfulltrúum flokks-
ins og Verði, fulltrúaráði sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Að sögn borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins kom nokkur
gagnrýni fram á fundinum á
framgöngu borgarstjórnarflokks-
ins í aðdraganda meirihlutaslit-
anna en að loknum fundi lýstu
fundargestir yfir stuðningi við
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem
oddvita flokksins.
Milljarðar græddust
án opinbers verðmats
Björn Ingi Hrafnsson gagnrýndi eigin flokk harðlega á fundi framsóknar-
manna í gær. Hann segir verðmat á hlut Orkuveitu Reykjavíkur viðskiptaafrek.
Hann telur að gjaldfrjáls leikskóli sé aftur raunhæfur möguleiki í Reykjavík.
Ragnar H. Hall hæsta-
réttarlögmaður telur ekki ólíklegt
að málshöfðun Svandísar Svav-
arsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri
grænna, vegna eigendafundar
Orkuveitu Reykjavíkur verði látin
niður falla í ljósi þess að nýr
meirihluti er tekinn við stjórnar-
taumunum í Reykjavík.
„En maður skyldi aldrei segja
aldrei í máli sem tengist pólitísk-
um hitamálum,“ segir Ragnar. Enn
sem komið er hafa meirihlutaskipt-
in ekki haft nein áhrif á málið, sem
verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á mánudag.
Ragnar, sem fer með mál
Svandísar, segir að vel geti verið
að ákvarðanir verði teknar hjá
Orkuveitu Reykjavíkur sem leiði
til þess að málshöfðunin verði
óþörf.
„Það eru ýmsar leiðir sem fyr-
irtækið hefur til að upphefja
þetta ástand. Við getum hugsað
okkur að hvort sem meirihlutinn
hefði sprungið eða ekki gat
Orkuveitan alltaf losnað undan
málsókninni með því að boða til
nýs fundar og afgreiða þessa
hluti með formlega réttum hætti.
En það hafði ekki verið gert
þegar meirihlutinn sprakk.“
Aðspurður hvort Svandís
Svavarsdóttir sé í raun ekki að
höfða mál gegn sjálfri sér, í ljósi
þess að hún er fulltrúi Reykja-
víkur sem fer með meirihluta í
stjórn Orkuveitunnar, segir
Ragnar að þótt Svandís stýri nú
vinnu hjá nýja meirihlutanum
varðandi málefni Orkuveitunni
sé ekki búið að afmá það sem
gert var eða bæta úr annmörk-
unum.
„Svandís ræður því nú ekki
alveg ein en mér finnst vaxandi
líkur á því að teknar verði
ákvarðanir sem geti orðið til
þess að málshöfðunin falli
niður.“
Nýr fundur leysir vandamálið
„Lái okkur það hver
sem vill en við erum ósátt,“ segir
Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Kópa-
vogsbæjar (SFK).
Stjórn SFK fundaði í gær vegna
ummæla sem Stöð 2 hafði eftir
Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra
vegna ráðningar Guðmundar Gunn-
arssonar, fyrrverandi bæjarstjóra á
Álftanesi, á skipulagsdeild Kópa-
vogs. Guðmundur fær mun hærri
laun en ritari skipulagsstjóra sem
sagt er að vinni sömu störf. Bæjar-
stjórinn segir að Guðmundur sé
verkefnisstjóri en ekki ritari.
„Við erum ósátt við þau ummæli
bæjarstjórans að ekki sé hægt að fá
hæft fólk á taxta kjarasamnings hjá
Kópavogi,“ segir Jófríður.
Í fyrradag barst starfsmönnum
Kópavogsbæjar orðsending frá
bæjarstjóra sem sagði fréttina á
Stöð 2 hafa verið ónákvæma. Margt
hæft fólk ynni samkvæmt töxtum
hjá Kópavogsbæ. „Ég vildi koma
því á framfæri í viðtali við frétta-
manninn að viðkomandi verkefnis-
stjóri yrði ekki ráðinn til bæjarins á
launataxta ritara,“ sagði Gunnar.
Jófríður segir að þótt bæjarstjór-
inn mildi ummæli sín þurfi enn
margt að athuga. „Eftir því sem
okkur skilst á ummælum bæjaryf-
irvalda var þarna um að ræða nýtt
starf verkefnisstjóra sem aldrei
hefur farið í starfsmat eins og
kjarasamningar kveða á um. Við
viljum fá að sjá lýsingu fyrir þetta
starf,“ segir Jófríður.
Nýtt starf utan við reglurnar
Ef við hefðum fengið
opinbert verðmat hefðum
við aldrei fengið tíu milljarða.
Stærsti tölvuleikja-
framleiðandi heims, Electronic
Arts (EA), varð enn stærri í
fyrradag þegar fyrirtækið keypti
leikjafyrirtækin Bioware og
Pandemic. Samningurinn, sem
hljóðaði upp á rúma 52 milljarða
króna, er sá stærsti í sögu EA
samkvæmt fréttavef BBC.
Bioware er þekktast fyrir
hlutverkaleiki á borð við Baldur‘s
Gate, Star Wars: Knights of the
Old Republic og Neverwinter
Nights. Pandemic á meðal annars
heiðurinn að leikjunum Mercen-
aries og Star Wars: Battlefront.
EA áætlar að gefa út fjóra leiki
á ári næstu tvö árin.
Electronic Arts
í innkaupaferð