Fréttablaðið - 13.10.2007, Síða 28
„Mig langar að binda enda
á hungursneið í heiminum,
koma á heimsfriði, útrýma
spillingu og hindra að eitur-
lyf nái til barna.“
100.000 sjá „kraftaverk sólarinnar“
„Sem barn ætlaði ég alltaf að verða
söng- og leikkona, og á unglingsárunum
að frelsa heiminn, en það tókst ekki
því ég gifti mig og fór að hrúga niður
börnum,“ segir rithöfundurinn og
kennarinn Iðunn Steinsdóttir, sem
um þessar mundir fagnar 25 ára
rithöfundarafmæli sínu. Fyrstu bókina
skrifaði hún með lesblindan nemanda
sinn í Mývatnssveit í huga, þegar ekki
var búið að skilgreina lesblindu.
„Þessi strákur var óskaplega vel
gefinn og klár, en hann gat ekki lesið. Í
lestrartímum leyfði ég börnum að fara
í bókaskápinn og velja sér bók og þá
bað hann mig jafnan að leiðbeina sér.
Einu bækurnar sem ég gat bent honum
á voru smábarnabækurnar Græna
kannan og Blái hatturinn. Það þótti
niðurlægjandi og ég ákvað þá að skrifa
bók á léttu máli þess tíma, með stuttum
köflum og spennandi viðfangsefni í stíl
Enid Blyton,“ segir Iðunn um bókina
Knáir krakkar sem gefin var út árið
1982, en alls hefur hún skrifað á fimmta
tug bóka, auk fræðsluefnis og leikrita
í samvinnu við Kristínu Steinsdóttur
systur sína, sem fagnar tuttugu ára
rithöfundarafmæli í ár.
„Ég er sex árum eldri en Kristín og
passaði hana í bernskunni, en mamma
dó ung og það þjappaði okkur saman
svo við erum eins og helmingurinn
af hvorri annarri, þótt við skrifum
afskaplega ólíkt,“ segir Iðunn, sem
hvatti litlu systur til að senda handrit að
barnabók í samkeppni Vöku-Helgafells,
sem auðvitað vann til verðlauna.
„Líklega er ég svo mikið barn í
mér því mér finnst skemmtilegast að
skrifa fyrir börn og unglinga,“ segir
hún hlæjandi. „Eftir fyrstu bókina gat
ég ekki hætt, en ég hef mikið skrifað
um nemendur mína og barnabörn.
Þannig er drjúgur hluti bekkjar míns
í Laugarnesskólanum í tveimur bókum
af Fjallakrílunum,“ segir Iðunn, sem
er ekki í neinum vandræðum að nefna
eftirlætisbókina úr sínum ranni.
„Það er Víst er ég fullorðin sem ég
skrifaði um sjálfa mig, en hún byrjar á
fermingardaginn og gerist næsta árið
á eftir. Svona er sjálfselskan, að þykja
skemmtilegast að skrifa um það sem
maður upplifði sjálfur,“ segir Iðunn og
skellir upp úr, en nýjasta bók hennar,
Mánudagur bara 1 sinni í viku, er
væntanleg í verslanir.
„Börn eru alltaf eins því manneskjan
er alltaf sú sama, en áreitin hafa áhrif.
Ég fann að margt hefur breyst þegar
ég kom aftur að kennslu fyrir fjór-
um árum,“ segir Iðunn sem í nóvem-
ber ætlar að gera sér glaðan dag með
Kristínu systur sinni í tilefni tímamót-
anna.
„Þetta hefur verið skemmtilegt frá
upphafi og ég hef alltaf fengið mikil
viðbrögð frá börnum, en nú er vaxin úr
grasi kynslóð fullorðinna sem líka las
bækur mínar í æsku og það er verulega
indælt.“
Í dag verður starfsdagur í Gamla
bænum að Laufási í Eyfjafirði. Í
fréttatilkynningu frá Minjasafninu á
Akureyri segir:
Hefur þú séð hvernig kindahausar
og lappir eru sviðin? Hefur þú fylgst
með alvöru sláturgerð? Hefur þú
smakkað heimagerða kæfu, slátur,
brauð eða geitamjólk?
Ef ekki þá er tilvalið að leggja leið
sína í Gamla bæinn í Laufási laugar-
daginn 13. október milli kl. 14.00 og
16.00 til þess upplifa gamla tíð með
öllum skynfærum. Tóvinnufólk verð-
ur að störfum í baðstofunni og for-
vitnilegur markaður með ýmsu góð-
gæti fyrir munn og maga verður í
skálanum.
Þjóðlegar eyfirskar veitingar eru til
sölu í Gamla prestshúsinu.
Sýningin er í samvinnu við Matur
úr héraði sem stendur fyrir matarsýn-
ingunni Matur-inn sem fer fram um
helgina Akureyri.
Aðgangseyrir fyrir fullorðna 500 kr.
Allir velkomnir.
Haustverkin kalla í Laufási í Eyjafirði
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Ásgeir Sigurðsson
frá Hólmavík, áður til heimilis að
Lindargötu 57, Reykjavík,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Svava Ásgeirsdóttir Smári Jónatansson
Sigrún Ásgeirsdóttir
Ragnar Ásgeirsson Soffía Harðardóttir
Heiðrún Ásgeirsdóttir Jóhannes Hafsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og systur,
Önnu Soffíu
Hákonardóttur,
Austurbrún 2, 104 Reykjavík,
verður gerð frá Áskirkju Reykjavík þriðjudaginn
16. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Barnaspítala Hringsins.
Hákon H. Pálsson Ingibjörg Hafsteinsdóttir
Ingólfur Pálsson
Sigurður Pálsson Margrét Kristjánsdóttir
Sigurjón Pálsson
Halla Pálsdóttir Sigsteinn Sigurðsson
barnabörn og langömmubörn
Haraldur Hákonarsson og Þóra N. H. Hákonardóttir
Sigurður Tryggvason
Heiðargerði 86,
lést á heimili sínu aðfaranótt 11. október.
Útförin auglýst síðar.
Steinunn Ástvaldsdóttir Tryggvi Sigurðsson
Ástvaldur Tryggvason.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hrönn A. Rasmussen
fv. varðstjóri hjá Landssíma Íslands,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður til
heimilis að Vesturgötu 7, Rvk,
sem lést fimmtudaginn 4. október, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 15. október
kl. 15.00.
Óskar F. Sverrisson Sigurveig J. Einarsdóttir
Gunnar A. Sverrisson Hrafnhildur Garðarsdóttir
Garðar Sverrisson Gerður Kristjánsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.