Fréttablaðið - 13.10.2007, Side 38
hús&heimili
„Ég safnaði mér fyrir píanóinu,“
segir Ingunn. „Afi var haukur í
horni og gaf mér alltaf aur þegar
hann kom í bæinn frá Bíldudal. Ég
var nefnilega alnafna ömmu minn-
ar sem hann var búin að missa og
hann lét mig njóta þess.“
Ingunn kveðst hafa farið að
læra á hljóðfærið fljótlega eftir að
hún fékk það, enda svo heppin að
píanókennarinn Hermína Kristj-
ánsson bjó í næsta húsi. „Svo
leigðu góðir frændur hjá foreldr-
um mínum sem voru miklir djass-
arar og þeir kenndu mér sitthvað
sem ég gat tileinkað mér. Ég gat
því fljótlega spilað eftir eyranu
og greip lögin upp úr útvarpinu.“
Píanóið er tékkneskt og viður-
inn í því er hnota. Ingunn segir það
alltaf hafa staðið í stofunni henn-
ar eftir að hún fór að búa. Meðal
annars á Hornafirði, Hvolsvelli
og nokkrum stöðum í Reykjavík.
Píanóbekkurinn er stór og glæsi-
legur og Ingunn sá um útsauminn
á áklæðinu. „Það tók tvær með-
göngur,“ segir hún hlæjandi. Uppi
á hljóðfærinu eru trúðar sem hún
hefur safnað um árin og tengjast
leiklistaráhuganum. „Ein vinkona
mín spurði mig einhvern tíma
hvernig ég gæti haft allt þetta dót
hér inni. Mér varð svarafátt. Þetta
er bara mín saga og hluti af minni
tilveru. Nú er tíska að hafa ekkert
í kringum sig en mér finnst hún
kuldaleg,“ segir Ingunn einlæg.
Ingunn er alltaf að mála og
í sumar sýndi hún í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn. Myndir henn-
ar hanga nú uppi á Kaffi Mílanó
í Faxafeni, bæði vatnslitamynd-
ir og akrýlmyndir með tjulli. Hún
veltir fyrir sér hvort orðið tjúll-
að sé komið af tjulli. „Þetta eru að
minnsta kosti tjullaðar myndir,“
segir hún glaðlega.
gun@frettabladid.is
Keypti sér píanó sjö ára
Fagrir munir og myndir prýða heimili Ingunnar Jensdóttur myndlistakonu og leikstjóra.
Einn hlutur er henni kærari en flestir. Það er píanóið sem hún keypti þegar hún var sjö ára.
Ingunn saumaði sjálf út í píanóstólinn. „Það tók tvær meðgöngur,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Uppi á píanóinu eru trúðar sem Ingunn
hefur safnað í gegnum tíðina og tengj-
ast leiklistaráhuganum.
Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók myndina á
heimili Harðar Torfasonar tónlistarmanns. Útgáfufélag: 365
- miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Rit-
stjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Emilía
Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi
Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 517 5724 Útlits-
hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
HITANÆMT
VEGGFÓÐUR
Veggfóðrið á mynd-
inni er hannað af
fyrirtækinu Shiyuan.
Það er hitanæmt og
því birtast útsprungin
blóm þegar kveikt er á
ofninum við vegginn.
Sniðugt.
http://www.shiyuan.
co.uk/
SNIÐUGT FRÁ UMBRA
Fyrirtækið Umbra er vel þekkt fyrir
fylgihluti á heimilinu. Það selur þó
einnig húsgögn og má þar finna
ýmsa skemmtilega hönnun.
Hillan hér til hliðar er eftir Matt
Carr og er hluti af U+ línunni. Carr
fékk hugmyndina að hillunni þegar
hann fann tvö antík sófaborð. Úr
þeim bjó hann til hillu fyrir heimili
sitt en nú hefur hönnunin verið
framleidd fyrir Umbra.
Önnur sniðug hönnun frá
Umbra er tímaritaborð eftir
Satinu Turner. Í sófaborð-
inu eru raufir sem
hægt er að stinga
tímaritum inn í
og er það því bæði
góð geymsla og
flott hönnun.
hönnun
13. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR2