Fréttablaðið - 13.10.2007, Qupperneq 42
hús&heimili
„Massimo hannaði þetta allt saman,“ segir
Hörður en þeir hafa búið í tvö og hálft ár
í íbúðinni. „Við keyptum ris, rifum allt út
og byggðum allt upp á nýtt. Við opnuðum
loftið alveg upp í rjáfur en áður hafði verið
lágt til lofts inni í íbúðinni. Svo settum við
inn nýtt gólf, nýtt loft og nýja veggi,“ bætir
hann við.
Gólfið er unnið á sérstakan hátt og með
mjög óhefðbundu gólfefni. „Við flotuðum
gólfið og fengum svo bílasprautunarmann
til að sprauta það fyrir okkur og það er í
átta litum. Bláminn í íbúðinni er tekinn frá
útsýninu en við erum með mjög gott útsýni
yfir Kollafjörðinn, Esjuna og Akranes,“
segir Hörður og útskýrir að Massimo hafi
dregið blámann inn í íbúðina með því að
setja bláa litinn á gólfið. Spurður hvað sé
í uppáhaldi hjá honum á heimilinu, segir
Hörður: „Íbúðin öll. Það er unaðslegt að
búa þarna. Íbúðin er stílhrein og má segja
spartönsk því það er fátt inni í henni. Við
erum báðir mjög hrifnir af einföldum lífs-
stíl í stað þess að fylla allt af einhverju dóti
og við söfnum ekki dóti.“
Hörður segist hvergi annars staðar vilja
vera en í miðbænum þar sem hann geti
gengið allra sinna erinda. „Við eigum bíl
en notum hann sem allra minnst,“ segir
tónlistarmaðurinn Hörður. sigridurh@frettabladid.is
Íbúðin öll í
uppáhaldi
Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason og sambýlismaður hans, Massimo
Santanicchia arkitekt, hafa búið sér fallegt heimili við Njálsgötuna þar sem
alllt er stílhreint og í mínímalískum stíl.
Vinnuaðstaða er inn af stofunni fyrir Hörð og Massimo þar sem þeir sinna verkefnum sínum í arkitektúr og
tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hörður og Massimo eru báðir með græna fingur og hafa gaman af að rækta plöntur. Gólfið í íbúðinni er
sprautað í átta litum af bílasprautunarmanni.
Skemmtilegt horn þar sem viðurinn í kamínuna er geymdur. Bonsai-tréð er eitt margra plantna á heimilinu
og myndin fyrir ofan er vatnslitamynd sem Hörður málaði sjálfur árið 1979.
Tónlistarmaðurinn er hæstánægður með heimilið sitt sem sambýlismaður hans, Massimo, hannaði nánast
frá grunni.
13. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR6