Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 10
Tvö verkalýðsfé-
lög innan Starfsgreinasambands-
ins sækjast eftir verulegum hækk-
unum á lágmarkslaunum fyrir
félagsmenn sína. Verkalýðsfélag
Akraness telur að hækka beri lág-
markslaun úr 125 þúsund krónum
í 170 þúsund og Verkalýðsfélag
Húsavíkur telur að hækka beri
lágmarkslaun í 180 þúsund krón-
ur, eða hátt í fimmtíu prósent.
Kristján Gunnars-
son, formaður Starfs-
greinasambandsins,
segir að sér komi háar
launakröfur frá ein-
stökum félögum ekki
á óvart. Fólk hafi mikl-
ar væntingar vegna
komandi samninga og
vilji verulega hækkun
launataxta og vernda
kaupmáttinn. „Það er
okkar vandasama
verk fram undan,“ segir hann.
Starfsgreinasambandið hefur
gert viðræðuáætlun og segir
Kristján að kröfur sambandsins
verði tilkynntar fyrir lok október.
Lögð verði síðasta hönd á kröfu-
gerðina á formannafundi 24.
október.
Á þingi Starfsgreinasambands-
ins nýlega kom fram að gríðarleg-
ur munur er á launakjörum á höf-
uðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni. Vil-
hjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags
Akraness, segir að þar
sé „himinn og haf á
milli“.
Samkvæmt könnun
sem gerð var innan
Flóabandalagsins eru
meðaldagvinnulaun
201 þúsund krónur.
Vilja hátt í fimmtíu
prósenta hækkun
Háskerpuútsendingar hefjast á dreifikerfi Digi-
tal Íslands á morgun. Þetta er í fyrsta skipti sem sjón-
varpsefni í háskerpu er dreift á Íslandi. Fyrst um sinn
verða tvær rásir í boði: Discovery HD sem sýnir nátt-
úrulífs- og heimildarmyndir, og Sýn HD sem sýnir
valda leiki úr ensku knattspyrnunni.
Sérstakan háskerpumyndlykil þarf til að taka á móti
útsendingunum. Til að njóta tækninnar til fulls þarf
sjónvarp sem ræður við háskerpuútsendingar, merkt
„HD“ eða „HD Ready“.
Munurinn á venjulegu sjónvarpsefni og sjónvarps-
efni í háskerpu er upplausnin, sem er um það bil fjór-
falt hærri í háskerpuútsendingu. Það þýðir að myndin
verður skýrari og smáatriði sjást betur en áður. Litir
koma einnig betur út og hljóð er sent út í meiri
gæðum.
Hrannar Pétursson, forstöðumaður almannatengsla
hjá Vodafone, segir ekki ákveðið hversu margir leikir
í enska boltanum verði sýndir í háskerpu, en það verði
að minnsta kosti einn leikur um hverja helgi. Fyrsti
leikurinn sem sýndur verður á Sýn HD er viðureign
Everton og Liverpool á laugardaginn kemur.
Háskerpuútsendingar hefjast
Stór svæði í Tungudal
eru meðal þeirra svæða sem eru í
hættu vegna ofanflóða við
Ísafjörð. Þetta kemur fram í nýju
hættumati Veðurstofu Íslands
fyrir svæði umhverfis þéttbýlið á
Ísafirði.
Flugvallarbyggingar og svæðið
í kringum þær eru meðal þess
sem er í hættu. Fram kemur í
mati Veðurstofunnar að þó ekki
sé mikil byggð á svæðinu sé þar
starfsemi sem er mikilvæg fyrir
Ísafjarðarbæ og nágrannasveitar-
félög. Huga þurfi sérstaklega að
viðbrögðum vegna þess að búast
megi við miklum mannsöfnuði
þar.
Flugvöllurinn í
snjóflóðahættu
Japanska tölvufyrirtæk-
ið Hitachi áformar að búa til
fjögurra terabæta harðan disk
á næstu fjórum árum. Stærstu
hörðu diskarnir sem fást í dag eru
eitt terabæti að stærð, eða 1024
gígabæti. Enn frekari smækkun
leshausa í hörðum diskum, niður
í einn tvö þúsundasta af breidd
mannshárs, gerir fyrirtækinu
þetta kleift.
Á slíkan harðan disk væri hægt
að koma fyrir ríflega átta hundruð
DVD-myndum, um einni milljón
laga eða um fimm milljónum ljós-
mynda í hárri upplausn.
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
05
MotorScrubber
Létt og afkastamikið
hreingerningartæki
Nú á
kynn
inga
rtilb
oði
Moto
rScru
bber
start
pakk
i
69.7
18Kr.
MotorScrubber startpakkinn inniheldur:
Stillanlegt skaft frá 81-128 cm, D- handfang,
axlabönd, 12 V rafhlöðu, 230 V hleðslutæki,
bursta, paddahaldara og padda
í mismunandi grófleikum.
Karsten Jessen,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is