Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 20

Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 20
greinar@frettabladid.is Bæjarstjóri Kópavogs gerir tilraun til að réttlæta gjörðir sínar í Fréttablað- inu á laugardag. Sem kunnugt er réði Gunnar vin sinn og félaga til margra ára í starf samhliða ritara hjá bæjarskipulagi Kópavogs á nær tvöföldum hennar laun- um. Félagann kallar hann hvalreka fyrir Kópavogsbæ og slíkan úrvalsstarfsmann ráði maður ekki á „taxtalaunum“. Nú reynir hann að verja gjörðir sínar með þeim fátæklegu rökum að undirrituð hafi grafið þetta upp til að hefna sín á bæjarstjóran- um. Auðvitað sér hver maður hvurslags endaleysa það er. Til þess að hafa það sem sannara reynist var Þór Ásgeirsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í Skóla- nefnd Kópavogs, fyrir það fyrsta EKKI vanhæfur. Að þeirri niðurstöðu komst bæjarlögmaður Kópa- vogs, en Gunnar skellir við skollaeyrum! Rétt er það að vinur Gunnars var ráðinn til bæjar- ins fyrir um ári síðan og vissi ég af því allan tímann. Það sem ég vissi ekki fyrr en nýlega var að vinur Gunnars var ráðin inn á nærri tvöföldum launum ritara Skipulagsstjóra þrátt fyrir að sinna sama starfi. Það var þá sem ég brást við og óskaði eftir að bæjarstjóri gerði grein fyrir máli sínu. Gunnar getur kallað umrætt starf hvaða nafni sem er, verkefnisstjóra, ritara, stjórn- anda, eða hvalreka, en það sem skiptir öllu máli er hvað starfið felur í sér. Samkvæmt starfslýsingu beggja umræddra starfa (sem eru til skriflegar) er hér um sama starf að ræða. Ég vil taka sérstaklega fram að ekk- ert er athugavert við störf einkavinar Gunn- ars og ekki er ég að sjá ofsjónum yfir launa- kjörum hans, það má vel vera að hann sé happafengur eins og bæjarstjórinn kemst að orði. Það sem ég geri athugasemd við er að hér er ekki bara um einkavinavæðingu að ræða heldur einnig gróft brot á jafnréttislögum. Ennfremur vek ég athygli á undarlegum starfslokum ritarans, hún hætti samdægurs eftir að hafa skrifað undir starfs- lokasamning við bæjarstjórann og fallið frá öllum kröfum á hendur Kópavogsbæjar vegna starfsloka sinna. Sem bæjarfulltrúa í Kópavogi ber mér skylda til þess að veita bæjarstjóranum strangt aðhald; það geri ég bæjarstjóranum til mikillar gremju. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hvalreki bæjarstjórans Eitt af því sem tryggt hefur Sjálfstæðisflokknum vel- gengni í íslenskum stjórnmálum er geta flokksmanna til að standa þétt að baki foringjum flokksins. Þannig hefur flokkurinn bæði ræktað og notið sterkra foringja á borð við Ólaf Thors, Bjarna Benediktsson og Davíð Oddsson. Þótt vinstri menn hafi ekki átt síðri foringjaefni þá hefur ónáttúra þeirra leitt til þess að skórinn hefur verið nagaður af þeim flestum áður en þeir hafa getað gagnast flokkum sínum með sama hætti og foringjar sjálfstæð- ismanna. Þannig hafa vinstri menn – og við hin – misst af tækifærum til að sjá Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hanni- balsson ná fullum þroska sem stjórnmálaforingjar. Sjáið hversu Ólafur Ragnar Grímsson hefur blómstrað eftir að hann losnaði undan hjörðinni sinni. En þótt sjálfstæðismönnum hafi auðnast að búa til sterkari foringja en öðrum flokkum þá hefur á sama tíma enginn flokkur sýnt jafn mikið miskunnarleysi við að ganga að forystumönnum sínum dauðum. Meðferðin á Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni síðustu tvær vikur er í takt við þær trakteringar sem Þorsteinn Pálsson og Geir Hallgrímsson máttu þola af eigin flokksmönn- um. Og það hangir yfir Geir H. Haarde einskonar hótun frá ákveðnum kjarna flokksins um að hans bíði sambærileg örlög. Í raun má segja að sú sterka hefð innan Sjálfstæðisflokksins að styðja og styrkja foringja sína hafi breyst í undantekningu undanfarin þrjátíu ár. Ætli vendipunkturinn hafi ekki orðið þegar Davíð Oddsson náði kjöri sem borgarfulltrúi 1974. Þáver- andi borgarstjóri, Birgir Ísleifur Gunnarsson, fékk aldrei þann stuðning að vaxa upp í þann sess sem Geir Hallgrímsson, Gunnar Thoroddsen eða Bjarni Benedikts- son fylltu sem borgarstjórar. Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn missti borgina 1978 varð Birgir Ísleifur í raun lifandi pólitískt lík. Meðan Davíð var borgarstjóri gengu sjálfstæðismenn frá tveimur formönnum sínum; fyrst Geir Hallgrímssyni og síðan Þorsteini Pálssyni. Margt er líkt með örlögum Þorsteins og Vilhjálms Þ. nú. Ríkisstjórn Þorsteins gliðnaði í sundur, ekki síst vegna óbilgirni helstu ráðamanna Sjálfstæðisflokksins sem hrökktu Þorstein út í horn í eigin ríkisstjórn með hverjum afarkostunum á fætur öðrum. Þorsteinn var þá – líkt og unglið- arnir í borgarstjórnarflokknum nú – of óreyndur til að hafna misvitrum (og misvel innrættum) ráðum samherja sinna í forystu flokksins. Eftir að Davíð felldi Þorstein í formannskosningu, yfirgaf borgina og fór í landsmálin hefur sjálfstæðismönnum ekki auðnast að standa heilshugar að baki forystumönnum sínum í Reykja- vík. Og listinn yfir mannfallið er orðinn býsna langur: Markús Örn Antonsson, Inga Jóna Þórðardótt- ir, Árni Sigfússon, Björn Bjarna- son og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son. Og ráðin sem ungliðarnir þáðu í hildarleik síðustu vikna hafa að öllum líkindum gengið frá pólitískri framtíð Gísla Marteins Baldurssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttir. Hið áunna óeðli Sjálfstæðisflokksins hefur því varpað forystukreppunni út yfir næstu kosningar. Sjálfstæðismenn hljóta að spyrja sig þessa dagana hvort þeir hafi ekki launað Davíð Oddssyni nógsamlega fyrir störf hans fyrir flokkinn og hvort ekki sé kominn tími til að girða fyrir frekari áhrif hans. Hvort sem var á leið hans til valda eða frá þeim, hefur getuleysi Davíðs og helstu aðdáenda hans til að taka hags- muni flokksins fram yfir eigin hag (sem oftast er litaður ólund, óvild og getuleysi til að una öðrum framgang) haft eyðileggjandi áhrif á flokkinn og skaðað bestu og efnilegustu forystumenn hans. Ef sjálfstæðismenn spyrna ekki fast við fótum munu sömu öfl og klúðruðu borginni koma Sjálf- stæðisflokknum frá völdum í ríkisstjórn og á endanum út í sama hornið í pólitík og flokkur- inn hefur hrakið alla forystumenn sína – aðra en Davíð Oddsson – undanfarin þrjátíu ár. Glötuð verðmæti Og ráðin sem ungliðarnir þáðu í hildarleik síðustu vikna hafa að öllum líkindum gengið frá pólitískri framtíð Gísla Marteins Baldurssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttir. F riðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, varð í gær- kvöldi annar maðurinn á rúmri viku til að nota það orðalag að óorði hefði verið komið á útrás orkufyrir- tækjanna með málatilbúnaðinum í kringum samein- ingu Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy. Þessi ummæli lét Friðrik falla í viðtali við fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Hinn sem greip til sömu orða var Dagur B. Eggertsson í grein í Fréttablaðinu hinn 6. október. Friðrik og Dagur eru pólitískir andstæðingar. Annar kemur úr Sjálfstæðisflokknum, hinn úr Samfylkingunni. Báðir eru þó sammála um það grundvallarsjónarmið að íslenskum orku- fyrirtækjum ber skylda til þess að ávaxta óefnisleg verðmæti á borð við þekkingu og reynslu sem hefur byggst upp innan þeirra í áranna rás. Friðrik fangaði þá einföldu afstöðu með þessum orðum í fréttum Sjónvarps: „Orkufyrirtækin þurfa að horfa til langs tíma. Það er mjög mikilvægt fyrir þau að sjá fyrir verk- efni eftir tíu til tuttugu ár. Ef við horfum á það sem er að gerast hér á landi, getur farið svo að eftir fimm til tíu ár verði til dæmis engin verkefni í vatnsafli og minna af verkefnum í jarðvarma en hingað til. Þá sitjum við uppi með þekkingu og við sitjum uppi með reynslu sem fyrirtækin vilja auðvitað koma í verð til að auka verðmæti sitt. Það gerist ekki öðruvísi en að koma þessum verðmætum á markað erlendis.“ Ef þetta sjónarmið sjálfstæðismannsins Friðriks nyti stuðn- ings meðal flokkssystkina hans í borgarstjórn væri Dagur B. Eggertsson ekki að taka við sem borgarstjóri í dag. Reyndar er (eða var að minnsta kosti) einn maður á þessari skoðun í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna. Hann heit- ir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Aðrir borgarfulltrúar flokksins eru honum ósammála. Að þeirra mati er ekki rétt að Orkuveita Reykjavíkur eigi samstarf við einkaaðila í REI um útrás í orku- geiranum. Þó gengur það samstarf ekki út á annað en að koma verðmætum Orkuveitunnar á markað erlendis, svo notað sé orðalag Friðriks. Þessi afstaða var kynnt sem slíkt grundvallarprinsipp í mál- inu að Orkuveitunni bæri að selja hlut sinn í REI eins fljótt og auðið væri. Og á því brotnaði borgarstjórn. Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með sjálfstæðismönnum afneita REI á þessum forsendum. REI er þó skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins. Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafði frumkvæði að stofnun fyrirtækisins, formaður fyrstu stjórnar þess var náinn samherji hans, Björn Ársæll Pétursson, sem þar sat ásamt sjálfstæðis- manninum Hauki Leóssyni og framsóknarmanninum Birni Inga Hrafnssyni. Framlag Orkuveitunnar til REI er áfangi í því að einkavæða ákveðna þætti sem einkageirinn er farinn að teygja sig eftir. Það er ekkert að því að opinbera fyrirtækið reyni að fá sem mest fyrir sinn snúð í því ferli. Yfirlýstur tilgangur REI við stofnun var útrás í orkumálum með samstarfsaðilum til að takmarka áhættu Orkuveitunnar. Þessu markmiði er nú náð. Sjálfstæðismenn eiga að kannast við krógann, vera af honum stoltir og taka þátt í því að vinda ofan af óorðinu sem Friðrik og Dagur hafa gert að umtalsefni. Króginn er þeirra

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.