Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 30

Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 30
6 16. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGURlh hestar Fulltrúar Rangárhallarinnar ehf. og Landstólpa skrif- uðu undir samning 10. október um byggingu reiðhall- ar á Gaddstaðaflötum sem hefur fengið nafnið Rang- árhöllin. Um er að ræða 26 sinnum 79 metra stálgrindar- hús klætt með yleiningum, ásamt 240 fermetra and- dyri. Höllin verður staðsett rétt vestan við núverandi stóðhestahús. Stefnt er að því að hún verði tilbúin til notkunar fyrir landsmót næsta sumar. Áætlaður byggingarkostnaður er 160 milljónir. Aðilar að Rangárhöllinni eru Hestamannafélagið Geysir, Rangárbakkar ehf., Ásahreppur, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra. Formaður byggingarnefndar er Kristinn Guðnason og með honum í nefndinni eru Ómar Diðriksson, for- maður Hestamannafélagsins Geysis, og Þröstur Sig- urðsson, gjaldkeri Rangárbakka ehf. Framkvæmda- stjóri er Guðmundur Einarsson. Því má bæta við að nýtt hesthúsahverfi hefur verið skipulagt á svæði Rangárbakka á Gaddstaðaflötum og verður það skammt frá Rangárhöllinni. Laufskálaréttarhelgin í Skagafirði er verulegur búhnykkur fyrir sveitarfélagið, þar sem giskað er á að gestir séu allt að 2.000. Samkvæmt talningu ferðamála- deildar Hólaskóla fyrir nokkrum árum komu 3.000 manns í Lauf- skálarétt á réttardaginn. Um 1.200 manns voru á föstu- dagssýningu í Svaðastaðahöllinni nú í ár og á bilinu 1.500 til 2.000 manns á dansleiknum á laugar- dagskvöldinu. Ljóst er að verulegur fjöldi gesta kaupir gistingu og mikil velta er í söluskálum og veitinga- húsum. Ekki má gleyma því að umtals- verður fjöldi hrossa skiptir um eigendur þessa helgi og sambönd myndast sem hafa langtímaáhrif sem erfitt er að mæla. Það má því segja að Laufskálarétt sé mjólk- urkýr fyrir sveitarfélagið, eins og sagt er máli viðskiptafræðinnar. Hrossum í stóðréttum hefur hins vegar fækkað og nú eru ekki nema 1.200 til 1.300 hross rekin á fjall í Skagafirði. Í Staðarrétt koma í kringum 400 hross, í Skarðarétt um 150 hross, í Silfrastaðarétt rétt innan við 100 og í Laufskálarétt um 600 hross. Fjöldi manns tekur þátt í Laufskálarétt- arhelginni í Skagafirði ár hvert. MYND/STEINUNN GUÐBJÖRNSDÓTTIR Laufskálarétt er mjólkurkýr Rangárhöllin tilbúin fyrir landsmótið á næsta ári Drífa frá Hafsteinsstöðum setti í sumar heimsmet í 100 m skeiði, 7,18 sekúndur, og hefur það verið staðfest af alþjóðasamtökum eigenda íslenska hestsins, FEIF. Knapi var Sigurður Sigurðarson. Fyrra metið, 7,24 sekúndur, sem sett var í fyrra átti Keimur frá Votmúla en þá var knapi Jens Füchtenschnieder frá Þýska- landi. Þetta er þriðja keppnistíma- bil Drífu og Sigga. Fyrsta árið var rólegt en síðastliðin tvör ár hefur Drífa verið nær ósigrandi í þessu hlaupi. Drífa er tólf vetra, undan Fána frá Hafsteinsstöðum og Orku frá Hafsteinsstöðum, Gáskadóttur frá Hofstöðum. Heimsmet í hundrað metra skeiði Drífa frá Hafsteinsstöðum. Knapi Sigurður Sigurðarson. MYND/JENS EINARSSON Skrifað undir samning. Frá vinstri: Þröstur Sigurðsson, Ómar Diðriksson með Lilju Margréti Ómarsdóttur í fanginu, Ásgeir Eiríksson frá Landstólpa, Arnar Bjarni Eiríksson framkvæmda- stjóri Landstólpa, Guðmundur Einarsson og Kristinn Guðna- son. MYND/FANNBERG FRÉTTAMIÐLAR: www.eidfaxi.is www.hestafrettir.is www.847.is www.horse.is STOFNANIR: www.lhhestar.is wwww.feir.org www.holar.is www.worldfengur.is www.tamningamenn.is www.fhb.is HROSSABÚ SÝNISHORN: www.fornhagi.is www.flugumyri.com www.gauksmyri.is www.grafarkot.is www.hesturinn.is Hestamenn á netinu Anna Guðrún Grétarsdóttir og Arnar Sigfússon eru í hestamennsku allan sólar- hringinn, bæði heima og í vinnunni. „Við erum bæði alveg forfallin og sjálfsagt erfitt að finna fjölskyldu sem er jafn illa farin af hestabakteríu,“ segir Anna Guðrún Grétars- dóttir á Fornhaga í Hörgárdal í Eyjafirði. Anna Guðrún og maður hennar Arnar Sig- fússon keyptu Fornhaga fyrir tveimur árum en voru áður búsett á Akureyri. Þar eru þau með lítils háttar hrossarækt og nokkrar kindur. Þau eru bæði í hestatengdri vinnu. Anna er nýráð- inn skrásetjari hjá WorldFeng með aðsetur í Búgarði á Akureyri og Arnar vinnur í hesta- vöruverslun. „Það er vissulega dýrt fyrir venjulegt launa- fólk að stunda hestamennsku, en okkur hefur tekist að láta drauminn rætast með því að kaupa og selja hross. Það er vissulega umhugs- unarefni hvaða áhrif þessi „þensla“ í hesta- mennskunni kann að hafa til lengri tíma litið; hvort það endar með því að hestamennska verður bara fyrir þá efnuðu,“ segir Anna. „En hér í Hörgárdal hefur hún alla vega haft mjög jákvæð áhrif,“ heldur hún áfram. „Hér er fullt af ungu fólki að koma sér upp aðstöðu fyrir hrossabú og það er mikil eftirspurn eftir hrossum og þjónustu. Hestafólki virðist því vera að fjölga en ekki að fækka. Það er hins vegar spurning hvort hesta- mannafélögin ættu ekki að koma upp félags- hesthúsum eins og tíðkuðust hér í eina tíð. Þar gætu börn og ellilífeyrisþegar og aðrir sem hafa minna milli handanna hugsanlega fengið ódýrari pláss.“ Jákvæð þensla í Hörgárdal Anna Guðrún Grétarsdóttir heilsar upp á vinina. Arnar með synina Auðun Orra 8 ára og Ævar Ottó 17 mánaða. M YN D /A RN A R SIG FÚ SSO N M YN D /A N N A G U Ð RÚ N G RÉTA RSD Ó TTIR - Í sveitinni býrðu að lágmarki á 10 sinnum stærri lóð en í þéttbýli - Í sveitinni eru rýmri mörk á hæð og gerð húsa en í þéttbýli - Í sveitinni er hægt að stunda fjarvinnu með öflugu netsambandi - Í sveitinni kemur skólabíllinn heim á hlað og sækir börnin í skólann - Í sveitinni er mannlíf gott og fjölbreytt Lóðir í Selási í Holtum, Rangárþingi ytra eru góður kostur fyrir þá sem vilja setjast að í sveitinni og njóta þeirra kosta sem hún hefur uppá að bjóða. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.kubbar.is/astrod eða í síma 8995530 Hefur þú kynnt þér kosti þess að búa í sveit…

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.