Fréttablaðið - 16.10.2007, Page 46
Ný safnplata frá Spice Girls er
væntanleg 12. nóvember. Á plöt-
unni verða tvö ný lög, annars
vegar Voodoo og hins vegar smá-
skífulagið Headlines (Friendships
Never Ends). Rennur allur ágóði
af síðarnefnda laginu til bresku
samtakanna Children in Need.
Meðal fleiri laga á plötunni verða
Wannabee, 2 Become 1, Who Do
You Think You Are? og Spice Up
Your Life.
Með safnplötunni fylgir DVD-
mynddiskur með fjölda tónlistar-
myndbanda og með viðhafnarút-
gáfu plötunnar fylgja tveir diskar.
Annar verður fyrir karókí og hinn
með endurhljóðblönduðum lögum.
Kryddpíurnar, sem komu nýver-
ið saman eftir nokkurra ára hlé,
ætla að fylgja plötunni eftir með
tónleikaferð um heiminn sem
hefst í Vancouver í Kanada 2.
desember. Kryddpíurnar hafa selt
55 milljónir platna á ferli sínum,
auk þess sem þær hafa komið níu
lögum í efsta sæta breska vin-
sældarlistans.
Ný lög á safnplötu
Ævintýrakvikmyndin Stardust,
með þeim Michelle Pfeiffer og
Robert De Niro í aðalhlutverkum,
hefur verið auglýst hér á landi af
miklum móð að undanförnu á þeim
forsendum að hún sé að stærstum
hluta tekin upp á Íslandi. Finnur
Jóhannsson hjá True North segir
að sú markaðsherferð hafi verið
fréttir fyrir starfsmönnum fyrir-
tækisins, sem aðstoðaði kvik-
myndatökuliðið þegar það kom
hingað til lands. „Þetta voru tveir
dagar í tökum, við tókum bak-
grunna sem síðan var skeytt inn í
myndina,“ segir Finni og telur að
þarna hafi Íslandskynningin
kannski gengið aðeins of langt.
Upphaflega stóð til að Stardust
yrði tekin upp að mestu leyti hér
á landi en sökum laga og
reglna um innflutning á hest-
um varð ekkert af því.
Ásgeir Kolbeinsson, mark-
aðsfulltrúi Sambíóa sem dreifa
myndinni hér á landi, segir
að Paramount-kvikmyndaverið
hafi lagt ríka áherslu á að Stardust
væri mjög góð Íslandskynnning í
sínum skjölum. „Allar útisen-
ur sem sjást í myndinni eru
frá Íslandi og ég held að
þessi kynningarherferð sem
við fórum í sé ekkert grófari
en það sem gengur og ger-
ist,“ bætir hann við og
segir að ekki sé því allt
sem sýnist. „Ég hef
ekki séð íslenskt
landslag svona áber-
andi í kvikmynd
áður.“
Tveir dagar í tökum
Stórstjarnan Brad Pitt á sér skugga-
lega fortíð að því er bandarískir
fjölmiðlar greina frá. Hann átti það til
að fara úr öllum fötunum fyrir
peninga þegar hann var meðlimur í
dansflokki í líkingu við Chippendales-
flokkinn á námsárunum í háskólanum
í Missouri. Leikarinn kunni var
aðalmaðurinn í danshópnum sem
kallaðist The Dancing Bares. Hópur-
inn dansaði fyrir stúlkur í afmælis-
veislum þeirra.
Thomas Whelihan, gamall vinur
Brads Pitt úr bræðrafélagi í háskóla,
segir frá þessu í viðtali í tímaritinu In
Touch Weekly. „Þegar stúlka úr einu
af systrafélögunum varð 21 árs settu
The Bares hana í stól og komu fram
allsnaktir með koddaver á höfðinu og
dönsuðu fyrir hana.“
Brad Pitt vann sem strippari
Þrír meðlimir hljómsveitar-
innar Reykjavík! fengu sér
alveg eins húðflúr í Montr-
eal á dögunum.
„Við vorum að spila í Eistlandi
fyrir ekki löngu síðan þegar við
Bóas ákváðum að merkja okkur.
Ef það væri eitthvað sem okkur
langaði að muna ef við værum
búnir að drekka frá okkur allt vit
þá væri það þetta ævintýri sem
við erum búnir að eiga
saman í hljómsveit-
inni,“ segir Haukur
S. Magnússon úr
Reykjavík!
Ekkert varð þó af
húðflúrinu í Eist-
landi en þess í stað
létu þeir verða af
því er þeir spiluðu í
Montreal í Kanada.
Með þeim tveimur í
för var nýr bassa-
leikari sveitarinnar,
Geiri, og Simon
Angell, gítarleikari
Patrick Watson sem
spilaði á Iceland Air-
waves á síðasta ári. Fengu þeir sér
allir eins húðflúr með tákninu R!,
sem stendur vitaskuld fyrir
Reykjavík!
„Ég hef alltaf haft ímugust á
húðflúrum og þrettán ára ákvað
ég að þetta myndi ég aldrei gera,“
segir Haukur. „Þannig að þetta
var ákveðið prinsipp-
brot en mér fannst
samt allt í lagi að
tengja þetta góðum
minningum. Ég
veit líka til þess að
einhverjir aðrir í
hljómsveitinni
hugsa sér gott til glóð-
arinnar að fá sér tattú,
enda eru allir alvöru
rokkarar með tattú.“
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
19
03