Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 38
BLS. 8 | sirkus | 26. OKTÓBER 2007 „Það er skrítið að koma á framfæri einhverju um sjálfan sig. Ég, sem er vanur að hafa það þægi- legt á hliðarlínunni og ýta hlutum annarra áfram, er nú kominn með andlitið á mér framan á þessa bók. Þetta er ný reynsla en ég hef bara gott af henni,“ segir Einar Bárðarson athafna- maður, oftast nefndur umboðsmaður Íslands. Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður hefur ritað bók um reynslu Einars úr bransanum. Hægt er að fullyrða að af nógu sé að taka enda hefur Einar verið viðloðandi tónlistarheiminn frá því hann var unglingur á Selfossi. Hann átti stóran þátt í velgengni Skítamórals á sínum tíma en varð heimsfrægur á Íslandi eftir dóm- arastörf sín í Idol-stjörnuleit, þar sem hann var andstæða Bubba Morthens, og X-factor. Einlæg- ur, sanngjarn og óhræddur við að flíka tilfinn- ingum sínum vann hann hug og hjörtu áhorf- enda. Ekki hræddur við viðkvæm egó Bókin ber nafnið Öll trixin í bókinni en sam- kvæmt Einari kom til greina að titillinn yrði Rokkað feitt. „Ég vildi það nafn því verða ekki menn að fá eitthvað fyrir peninginn,“ segir Einar sem hefur greinilega húmor fyrir sjálfum sér en bætir við að í bókinni sé hann að miðla reynslu sinni af afþreyingariðnaðnum. „Ég held samt að þessi „trix“ ef svo mættu kallast gætu gagnast öllum þeim sem vilja taka á honum stóra sínum og ekki bara í tónlistarbransanum. Þetta er ekki sjálfshól á neinn hátt því þarna er margt sem ég hef lært af biturri reynslu og ég reyni að vera heiðarlegur í því sem og hinu sem manni hefur fundist ganga vel.“ Aðspurður af hverju Arnar Eggert hafi orðið fyrir valinu segir Einar að Kristjáni B. Jónassyni, sem ritstýrir bókinni, hafi litist vel á Arnar. „Þessi bók er upphafleg hug- mynd Kristjáns og ég tók vel í að fá Arnar til að gera þetta því við höfum fylgst svolítið að þótt við nálgumst geirann hvor á sinn hátt. Hann hefur alveg tekið plötur sem ég hef komið að og slátrað þeim á síðum Moggans en einnig hælt öðru þegar ég hef átt það skilið. Þetta er engin montbók og þar af leiðandi þurfti ég einhvern heiðarlegan til að skrifa þetta af raunsæi því ég geri stólpagrín að sjálfum mér, hæli mönnum og læt aðra fá það óþvegið.“ Einar segist ekki óttast að hann móðgi viðkvæm egó íslenskra stjarna þótt margar sögurnar séu djúsí og hafi ekki birst áður. Ein þeirra fjallar um þegar hann afstýrði slysi í Séð og heyrt þegar stjörnuparið Birgitta Haukdal og Jóhann Bachmann trommuleikari hættu saman. „Eitt af trixunum í þessum bransa er hvernig maður slær vopnin úr höndum fjöl- miðla. Fæstir gera sér líklega grein fyrir að vinn- an sem fer í að stýra einhverju fram hjá augum almennings er ekki minni en að koma einhverju í blöðin. Ég er samt ekkert hræddur um að móðga neinn. Erlendu stjörnurnar sem ég fjalla um tala ekki íslensku og það er hvort sem er ekk- ert meiðandi í þessari bók. Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki þannig. Þetta er fyrst og fremst hugsað til að hafa gagn og gaman af,“ segir Einar og bætir við að honum hafi fundist þörf fyrir svona bók. „Ég trúi að það sé margt gagnlegt í henni fyrir ungt fólk sem er að fara út í barátt- una, hvort sem það er tónlist, leiklist eða annað í atvinnulífinu. Þarna lýsi ég því þegar ég var að stofna mín fyrirtæki og vinna að mínum hug- myndum en ég hafði enga svona bók til að glugga í þótt það sé til mikið af erlendum bókum. Markaðurinn fyrir þessa bók er kannski ekki stór en þeir sem hafa gaman af henni munu fá mikið fyrir peninginn.“ Fjölskyldan flutt til Bretlands Síðustu árin hefur Einar verið með annan fótinn úti í Bretlandi þar sem hann hefur unnið hörð- um höndum að frægð og frama hljómsveitarinn- ar Nylon. Nú hefur Garðar Thor Cortes bæst í hópinn og Einar er svo sannfærður um að Garð- ar Thor eigi eftir að slá í gegn að hann hefur flust búferlum og í dag býr fjölskyldan í bítlabænum Esher í Bretlandi. „Ég hafði verið með vinstri fót- inn hér úti lengi en þann hægri heima en hef nú snúið því við og er farinn að keyra á vinstri helm- ingnum í kjölfarið,“ segir hann brosandi og bætir við að ef Garðar Thor verði ekki heimsfrægur sé það honum, Einari, sjálfum að kenna. „Hann er stærsta verkefnið mitt þessa dagana en aðrir fá að njóta góðs af hans velgengni eins og Garðar naut góðs af reynslunni sem við öfluðum okkur með Nylon. Nylon er að gefa út safnplötu og strákabandið Luxor kemur með plötu í næstu viku svo það er nóg að gera heima líka þótt fók- usinn sé aðallega úti,“ segir hann. Einar og eiginkona hans Áslaug Thelma Ein- arsdóttir seldu íbúð sína á Hagamelnum en hafa fjárfest í minni íbúð til að hafa aðhvarf hér heima líka. „Mér og fjölskyldunni líkar vel hér úti og við höfum komið okkur fyrir í húsi rétt utan við mesta skarkalann og erum ekki nema hálftíma í lest til borgarinnar sem þykir ekki mikið,“ segir hann en dóttir þeirra Áslaugar er að verða 18 mánaða. „Dóttir okkar er hér í góðu yfirlæti en í næsta húsi við okkur er hestabú- garður sem minnir helst á sveitina hjá afa og ömmu. Við vöknum saman alla daga og horfum á Latabæ og íþróttaálfinn og finnum varla fyrir því að vera flutt. Það er sama hvenær dagsins við kveikjum, Latibær er alltaf í gangi og það er gaman að fylgjast með hversu vel þetta gengur. Svo les maður bara fréttir Fréttablaðsins á net- inu og hlustar til skiptis á Bylgjuna eða Rás 2 í gegnum netið auk þess sem það tekur aðeins tvo tíma að fljúga heim. Það er styttra en að keyra til Akureyrar.“ Einar viðurkennir að atvinnuheitið „umboðs- maður“ hafi truflað hann í byrjun ferilsins og í bókinni talar hann um að hafa alltaf ætlað að finna sér „alvöruvinnu“. „Manni fannst þetta eitt- hvað hálf hallærislegt og mér fannst lengi að ég yrði að gera eitthvað annað og meira sem leiddi mig í háskólanám. Eftir nám í markaðsfræði og starf við hæfi uppgötvaði ég að ég var einfald- lega ekki að finna mig í þessari „venjulegu“ vinnu. Árið 2001 stofnaði ég fyrirtæki sem seinna varð að Concert og bjó ég til „venjulegt“ starf úr þessum draumum. Maður er ekki enn orðinn ríkur af þessu brölti en vonandi uppsker maður einhvern tímann.“ Jógvan langflottastur Einar segir aldrei að vita nema hann komi aftur fram í íslenskum hæfileikaþáttum á borð við X- factor og Idol-stjörnuleit. „Ég býst allt eins við að taka þátt í X-factor þegar sá þáttur byrjar aftur og EINAR OG FJÖLSKYLDA ERU FLUTT TIL BRETLANDS SVO EINAR GETI EINBEITT SÉR AÐ FERLI GARÐAR THORS CORTES EN EINAR SEGIR TÍMASPURSMÁL HVENÆR GARÐAR MUNI SIGRA HEIMINN Tröllið sem stelur jólabókaflóðinu UMBOÐSMAÐUR ÍSLANDS „Manni fannst þetta eitthvað hálf hallærislegt og mér fannst lengi að ég yrði að gera eitthvað annað og meira sem leiddi mig í háskólanám.“ DRAUMAR UM FRÆGÐ OG FRAMA „Þegar Garðar er kominn í fremstu raðir mun hann geta notið afrakstursins í tugi ára á meðan sönghópur eins og Nylon verður ekki túrandi á leikvöngum á efri árum. Maður á samt aldrei að segja aldrei. Eru Spice Girls ekki farnar af stað aftur?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.