Fréttablaðið - 26.10.2007, Page 83
Ian Jeffs, sem lék með
ÍBV í 1. deildinni í sumar, hefur
verið mikið í umræðunni upp á
síðkastið og meðal annars verið
orðaður við bæði Val og Fram í
Landsbankadeildinni. Jeffs var
hins vegar einungis í láni hjá ÍBV
síðasta sumar og er sem stendur
samningsbundinn Örebro út næsta
tímabil, en vill að eigin sögn losna
undan samningi við sænska liðið.
„Umboðsmaður minn hefur
þegar tilkynnt forráðamönnum
Örebro að ég hafi ekki áhuga á því
að spila áfram í Svíþjóð og vilji
því losna undan samningi við liðið
og vonandi verður fundin lausn á
þessu máli sem fyrst. Sem stendur
vill Örebro fá allt of mikinn pen-
ing fyrir mig en ég veit af áhuga
liða í Landsbankadeild. Umboðs-
maður minn er búinn að vera í við-
ræðum við nokkur lið og það eina
sem ég get sagt er að ÍBV er eitt af
þeim,“ sagði Jeffs og kvaðst líka
vel við lífið í Vestmannaeyjum en
hafa einnig mikinn áhuga og metn-
að til að spila í efstu deild á ný.
„Mér hefur liðið vel í Vest-
mannaeyjum og líkar vel við fólkið
í kringum félagið, en ég vill spila í
efstu deild og það voru því ákveðin
vonbrigði að hafa ekki komist upp
með ÍBV síðasta sumar og minnkar
líkurnar á því að ég spili þar aftur
næsta sumar,“ sagði Jeffs, sem að
öllu óbreyttu þarf að standa við
samning sinn við Örebro og snúa
aftur Svíþjóðar.
Lennart Sjögren, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Örebro, vildi
vel kannast við mál Ian Jeffs
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær og sagði hlutina vera
í ákveðnum farvegi.
„Eins og staðan er núna getum
við lítið aðhafst, því við erum að
ganga frá þjálfaraskiptum og
þegar því er lokið sjáum við betur
hvort við getum notað Jeffs og
hvort hann eigi framtíð hjá félag-
inu. Vilji hann ekki vera áfram, þá
þurfum við eðlilega að finna ein-
hverja lausn á því sem hentar
báðum aðilum, en það hafa alla
vega engin lið enn sem komið er
sett sig í samband við okkur með
hugsanleg kaup í huga,“ sagði
Sjögren en vildi ekki gefa upp þá
upphæð sem liðið væri að biðja
um fyrir Jeffs.
Ian Jeffs hefur spilað 48 leiki
fyrir ÍBV í efstu deild og skorað í
þeim átta mörk.
Örebro vill of mikinn pening fyrir mig
Njarðvíkingar geta í
kvöld unnið sinn átjánda deildar-
sigur í röð í Iceland Express deild
karla þegar þeir fá ÍR-inga í
heimsókn í 3. umferð.
Njarðvíkingar unnu fimmtán
síðustu leiki sína í deildarkeppn-
inni í fyrra og hafa því ekki tapað
deildarleik síðan gegn KR í DHL-
Höllinni 19. nóvember 2006.
Njarðvík hefur enn fremur unnið
alla heimaleiki sína í deildinni
síðan þeir töpuðu fyrir Grindavík
í framlengdum leik 4. desember
2005 og heimasigrarnir eru því
orðinir 18 í röð.
Teitur Örlygsson hefur stjórnað
Njarðvíkurliðinu til sannfærandi
sigra í fyrstu tveimur leikjunum,
liðið vann Snæfell 84-71 í fyrsta
leik og svo nýliða Þórs 101-73 í
síðasta leik.
Getur unnið
18. leikinn í röð
Gary Megson er orðinn
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Bolton eins og allir bjuggust við
eftir að hann sagði starfi sínu
lausu hjá Leicester City í vikunni.
Megson skrifaði undir tveggja og
hálfs árs samning og tekur við
Bolton af Sammy Lee, sem var
rekinn á dögunum. Megson mun
stjórna sínum fyrsta leik gegn
Aston Villa á sunnudaginn en
fylgdist aðeins með í Evrópu-
leiknum gegn Braga í gærkvöldi.
Megson, sem er 48 ára, hefur
farið víða en meðal liða sem hann
hefur stjórnað eru Stoke City.
West Bromwich Albion, Norwich
City, Blackpool og Nottingham
Forest.
Megson tekinn
við hjá Bolton
Yaya Toure, miðjumaður
Barcelona, vonast til þess að spila
með gegn Almeria á sunnudaginn
en hann hefur verið meiddur
undanfarnar vikur.
Fram að því hafði Frank
Rijkaard alltaf haft hann í
byrjunarliðinu en Barcelona
keypti þennan 24 ára landslið-
mann Fílabeinsstrandarinnar frá
Mónakó í sumar. „Ég er í góðu
standi og vonast eftir að geta
farið að spila sem fyrst,” sagði
Toure, sem var sáttur með Eið
Smára Guðjohnsen í leiknum
gegn Rangers. „Ég er virkilega
hrifinn af Guðjohnsen. Hann
hefur ekki verið að spila mikið en
það er mikil samkeppni um
stöður í liði Barcelona og
þjálfarinn er ekki öfundsverður
að þurfa að velja ellefu menn í
liðið. Eiður spilaði vel í Glasgow
og sýndi að hann styrkir liðið,”
sagði Yaya Toure um okkar mann
en þeir eru núna farnir að keppa
um miðjustöðuna hjá spænska
liðinu og nú er að sjá hver fær
tækifærið í næsta leik.
Toure vill spila
um helgina