Fréttablaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 4
Veist þú hver lífeyrisréttindi þín eru?
• Er skylt að greiða í lífeyrissjóð?
• Hvað felst í lífeyrissréttindum?
• Hvers vegna þarf að greiða skatt af lífeyrisgreiðslum?
• Hvaða ávinningur er fólgin í því að greiða í lífeyrissjóð?
Svörin við þessum spurningum og fjölda annarra væri
sannarlega gott að vita og þú finnur þau á www.gottadvita.is
www.gottadvita.is
Litháarnir þrett-
án sem setið hafa í farbanni að
undanförnu verða að una því
enn um hríð. Þeir voru í gær
úrskurðaðir í áframhaldandi far-
bann til 13. nóvember.
Mennirnir eru taldir tengjast
þjófnaðarmálum, en lögreglan
fann mikið magn af þýfi í hús-
leitum í byrjun síðasta mánuðar.
Um var að ræða fatnað, snyrti-
vörur og tölvu- og tæknibúnað.
Auk þýfisins fann lögregla hálfa
milljón króna í reiðufé. Ekki er
talið að mennirnir hafi staðið í
innbrotum heldur hafi þeir ein-
göngu hnuplað vörunum úr versl-
unum.
Litháarnir sitja
enn í farbanni
Ríkisstjórnir
Norðurlandanna munu skipa sam-
eiginlegan starfshóp sem vinna á
að því að finna leiðir til að þróa
áfram sameiginlega lyfja- og
heilsumarkaði á Norðurlöndum.
Þetta var samþykkt á sérboðuðum
fundi norrænu heilbrigðis- og
félagsmálaráðherranna í tengsl-
um við þing Norðurlandaráðs í
Ósló í gær.
Frumkvæði að því að ráðherr-
arnir ræddu þetta átti Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráð-
herra. Í samtali við Fréttablaðið
sagði Guðlaugur að á fundinum
hefði verið lýst mikilli ánægju
með þetta frumkvæði.
„Niðurstaðan er þessi: Það er
kominn vinnuhópur af stað sem
er að fara yfir þessi mál. Við von-
umst til að hann skili niðurstöðu
sem allra fyrst. Markmiðið er
skýrt. Við höfum áhuga á því að
opna íslenska, og í rauninni nor-
ræna lyfjamarkaðinn til þess að
fá aukna samkeppni og lægra
verð,“ segir Guðlaugur. „Þetta er
lítill og lokaður markaður, sam-
keppni er ekki mikil og verðið of
hátt. Og það er það sem við erum
að vinna í, við erum að reyna að
opna hann og reyna að njóta kosta
stærri markaðar eins og við
gerum á flestum öðrum sviðum.“
Íslenskar tillögur samþykktar
Þeir sem telja sig
hafa upplýsingar um brot á sam-
keppnislögum eru hvattir til þess
að koma þeim upplýsingum á
framfæri við Samkeppnis-
eftirlitið.
Hvatningin er sögð sett fram í
tilefni af umfjöllun fjölmiðla
undanfarna daga þar sem því hafi
verið haldið fram að matvöru-
verslanir hafi með sér ólögmætt
samráð. Samkeppniseftirlitið
segir að upplýsingunum sé hægt
að koma á framfæri í síma eða á
skrifstofu eftirlitsins og að starfs-
menn eftirlitsins séu reiðubúnir
til að eiga fundi með viðkomandi.
Einnig er hægt að senda ábending-
ar á www.samkeppni.is, nafnlaust
eða undir nafni.
„Af eðli máls leiðir að ábending-
ar sem eru ítarlegar um stað-
reyndir máls eru haldbetri en
órökstuddar fullyrðingar,“ segir í
tilkynningu Samkeppniseftirlits-
ins, sem vill fá upplýsingar um
það hvaða fyrirtæki sé um að
ræða, hvenær brotin hafi átt sér
stað, hvernig staðið hafi verið að
samráði og hversu umfangsmikið
það hafi verið.
Í umfjöllun um verðsamráð síð-
ustu daga hefur spjótum einkum
verið beint að lágvöruverslunum
Bónus og Krónunni. Forsvars-
menn þessara matvörurkeðja
neita því harðlega að þau hafi
nokkurt samráð um verðlagningu.
„Þetta eru fáranlega fjarstæðu-
kenndar ásakanir,“ segir Kristinn
Skúlason, rekstrarstjóri
Krónunnar. „Við erum alla daga að
breyta verði og seljum sumar
vörur langtímum saman undir
kostnaðarverði vegna harðrar
samkeppni frá þeim sem eru
markaðsráðandi. Halda menn
virkilega að við myndum standa í
þessu ef við ættum í samráði við
samkeppnisaðilann? Við höfum
ekkert að fela.“
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, tekur í
sama streng.
„Það er á alveg á kristaltæru að
það er ekkert samráð, ég vísa því
algerlega á bug,“ segir Guðmundur,
sem kveður það fráleitar ásakanir
að menn eigi stefnumót á kaffi-
húsum til að sammælast um verð.
Hann hitti forsvarsmenn Krón-
unnar aldrei. „Ég tala ekkert við
þessa menn,“ segir hann.
Umræða liðinna daga hefur að
sögn Guðmundar verið mjög skað-
leg fyrir Bónus. „Ég vona að Sam-
keppnisstofnun fari yfir þetta mál
hið fyrsta. Við höfum ekkert að
fela,“ segir hann.
Biðja uppljóstrara
að afhjúpa samráð
Samkeppniseftirlitið segist í tilefni af fullyrðingum í fjölmiðlum hvetja alla sem
telji sig vita um ólögmætt verðsamráð að gefa upplýsingar. Forsvarsmenn bæði
Krónunnar og Bónuss segja allar ásakanir um verðsamráð vera fráleitar.
Vilhjálmur Hans
Vilhjálmsson, lögfræðingur Loga
Freys Einarssonar, sem grunaður
var um að hafa átt aðild að
Pólstjörnumálinu á Fáskrúðsfirði,
hefur farið fram á það við
ritstjóra Vísis að nafn Loga verði
afmáð úr öllum fréttum í
fréttasafni Vísis.
„Verði hann ekki við beiðninni
mun ég athuga hver næstu skref í
stöðunni eru,“ segir Vilhjálmur.
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
ritstjóri Vísis, segist hafa farið
vandlega yfir málið og komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
hægt að verða við bón Vilhjálms.
Það sé staðreynd að Logi Freyr
hafi verið handtekinn og erfitt sé
að endurskrifa söguna.
„Skjólstæðingur Vilhjálms
hefur notið fyllstu sanngirni í
umfjöllun okkar,“ segir Óskar
Hrafn og bætir við að sé Vil-
hjálmur ósáttur verði hann að
leita annarra leiða til að ná sínu
fram.
Vill nafn sitt af-
máð úr fréttum
Ríkið skal greiða 23 ára
karlmanni fimmtíu þúsund
krónur fyrir ólögmæta sím-
hlerun. Maðurinn var yfir-
heyrður vegna bruna sem varð á
Sauðárkróki í desember 2004 og
var sími hans hleraður í tvær
vikur í kjölfarið.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður komist að þeirri
niðurstöðu að símhlerunin hefði
falið í sér skerðingu á friðhelgi
einkalífs því hver sem sakaður sé
um refsiverða háttsemi sé
saklaus uns sekt hans er sönnuð.
Hæstiréttur staðfesti þetta.
Málskostnaður, hálf milljón, var
greiddur af ríkinu.
Bætur vegna
símhlerunar
Rjúpnaskytta var flutt á
Landspítalann í Reykjavík síð-
degis í gær eftir að hafa slasast á
Fróðárheiði, nálægt Ólafsvík.
Vegfarandi tók eftir undar-
legri þúst um fimmtíu metra frá
veginum yfir Fróðárheiði. Við
nánari fyrirgrennslan sá hann að
þetta var meðvitundarlaus maður.
Hann kallaði því á hjálp og rank-
aði maðurinn fljótt við sér.
Lögreglu grunar að maðurinn
hafi verið ölvaður við veiðarnar
og fallið niður fimmtán metra háa
brekku. Var hann aumur í baki
eftir fallið.
Slösuð rjúpna-
skytta sögð ölvuð