Fréttablaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 60
BLS. 14 | sirkus | 2. NÓVEMBER 2007
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Rétt svör: 1.Mugiboogie. 2. Paulo Coelho. 3. 1986. 4.Veðra-
mót (11 tilnefningar). 5. Synir Beckhamhjónanna. 6. Gunnar
Hansson. 7. Ben Stiller. 8. Gary Megson. 9. James Hetfield.
10. 27. október.
Steinn Ármann
1. Mugiboogie.
2. Ekki hugmynd.
3. 1985.
4. Veðramót.
5. Beckham-drengirnir.
Hannes Heimir heldur sigurgöngu sinni áfram. Hannes fékk 9 stig af tíu mögulegum á móti sex stigum
Steins Ármanns. Steinn Ármann skorar á Davíð Þór Jónsson svo Hannes má taka á honum stóra sínum í
næstu viku. Fylgist með.
1. Hvað heitir þriðja sólóplata Mugi-
son?
2. Hver skrifaði bókina Verónika
ákveður að deyja?
3. Hvaða ár hóf Stöð 2 útsendingar?
4. Hvaða kvikmynd fékk flestar
Eddutilnefningar í ár?
5. Hverjir eru Brooklyn, Romeo og
Cruz?
6. Hver stjórnar þættinum Ertu skarp-
ari en skólakrakki á Skjá einum?
7. Hver leikur aðalhlutverkið í The
Heartbreak Kid?
8. Hver var nýlega ráðinn knatt-
spyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðs-
ins Bolton?
9. Hver er söngvari Metallica?
10. Hvenær var fyrsti vetrardagur?
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. HANNES HEIMIR VIRÐIST ÓSIGRANDI
EN HANN HEFUR UNNIÐ SEX MÓTHERJA. HELGI SELJAN Á HINS VEGAR METIÐ, 8
SIGRA. HÉR REYNIR STEINN ÁRMANN VIÐ HANNES.
9 RÉTT SVÖR 6 RÉTT SVÖRHannes Heimir
1. Mugiboogie.
2. Paulo Coelho.
3. 1986.
4. Veðramót.
5. Börn Davids og
Victoriu Beckham.
6. Gunnar Hansson.
7. Ben Stiller.
8. Gary Megson.
9. James Hetfield.
10. 15. okt.
6. Gunni Hansson.
7. Ben Stiller.
8. Veit ekki.
9. Veit ekki.
10. 15. september.
„Ég mæli með Fair trade-búðinni. Með
því að versla fair trade-vörur er maður
að stuðla að því að fólk annars staðar í
heiminum fái mannsæmandi laun fyrir
vinnuna sína, auk þess sem hluti af
hagnaðinum fer í að byggja upp
samfélögin þar sem vörurnar eru
framleiddar. Fyrir utan það hve
málstaðurinn er góður þá er þetta líka
vönduð og falleg vara.“
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR
BACHMANN
leikkona.
„Ég mæli með því að fólk skelli sér á
Hótel Búðir og njóti náttúrunnar og
matarins þar. Þar er himneskt að vera,
sérstaklega eftir að snjórinn kom í fjöllin.
Maturinn á Búðum er yndislegur og get
ég mælt með kenjum kokksins sem er
ævintýralegur góður matur. Svo er
einstaklega skemmtilegt að hlusta á
yfirþjóninn því hann veit hreinlega allt um
vín.“
ALEXÍA BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
leikkona.
„Mæli með OSushi the Train í Iðuhúsinu.
Ég reyni að borða fisk reglulega og fátt
jafnast á við gott sushi. OSushi hefur
bætt matarmenninguna á Íslandi með frá-
bæru sushi sem er á góðu verði.
Fljótlegt og hollt í hádeginu.“
DAGMAR UNA ÓLAFSDÓTTIR
verslunarkona.
„Ég mæli með myndinni The Secret.
Þetta er frábær mynd sem allir ættu að
sjá og fara eftir. Þetta er leyndarmál sem
við ættum öll að vita af.“
KARL BERNDSEN
förðunarfræðingur.
„Einar Bárðarson er ein fallegasta sál
þessa lands,“ segir Sigríður Klingen-
berg um athafnamanninn. „Einar er
andleg týpa, dálítið dulrænn, næmur
á fólk og getur þar af leiðandi veðjað
á réttan hest þegar þar að kemur.
Hans helsti veikleiki er að hann segir
já við alla og tekur stundum að sér
meira en góðu hófi gegnir. Hann
hefur ómælda bjartsýni fyrir öllu sem
hann tekur sér fyrir hendur og þess
vegna gerast hlutirnir hjá honum.
Hann hefur stundum eytt of miklum
peningum í bjartsýnisköstin sín svo
það hefur verið hans helsta áhyggju-
mál. Þetta er hins vegar komið til
með að leysast 1,2 og 3 þar sem hinir
ýmsu fjárfestar eiga eftir að hafa
mikinn áhuga á honum og sjá hversu
mikill prýðispiltur þetta er. Fley hans
mun sigla seglum þöndum um allan
heim þar sem hann mun negla á
himnafestingarnar hinar ýmsu
stjörnur sem eiga eftir að þakka
honum mikinn part í frama sínum og
lífi. Einar er fram úr hófi rómantískur
og miðað við talna- og stafaspeki
FRÁBÆR elskhugi, bæði hugmynda-
ríkur og lipur í sekknum. Hann er að
fara á strembið ár á næstunni, þar
sem hann þarf að læra að fá aðra til
að vinna því hann á bara að stjórna.
Hann mun líka stofna nýtt fyrirtæki
sem gæti starfað á erlendri grundu og
verður það happadrjúgt. Halelúja,
Einar Bárðarson.“
WWW.KLINGENBERG.IS
Fallegasta sál landsins
EINAR BÁRÐARSON „Einar er fram úr hófi
rómantískur og miðað við talna- og
stafaspeki FRÁBÆR elskhugi, bæði
hugmyndaríkur og lipur í sekknum,“
segir frú Klingenberg um athafna-
manninn.
Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus
www.klingenberg.isMælum
með
S tuðpinnarnir Siggi Hlö og Valli sport hafa engu gleymt þótt
hárið sé farið að hvítna í vöngum. Á
morgun ætla þeir að troða upp á
Gauki á Stöng með ógurlegu diskó-
balli þar sem þeir setja sig í stelling-
ar plötusnúða. Af því tilefni létu
þeir klippa sig í anda diskótímans.
„Við vorum fengnir til að spila á
Queen-kvöldi á Players um daginn
þar sem Eiríkur Hauksson, Magni
og Jónsi voru að syngja og við að DJ-
ast á undan og í hléi. Stemningin
var svo gríðarleg, en það mættu um
þúsund manns á þessa uppákomu,
að okkur langaði til að gera eitt
stórt ball eins og í gamla daga,“
segir Valli sport og bætir við að
þetta sé svona „Leikhúskjallara-
stemning“ fyrir þá sem muna eftir
því.
„Við erum í þessu til að skemmta
fólki og fíflast, hoppa og láta öllum
illum látum. Hjá okkur mega menn
vera asnalegir og sleppa sér. Enginn
þarf að reyna að halda kúlinu, það
tapa því flestir strax hvort sem er
þegar fjörið byrjar. Við munum gefa
500 fyrstu gestum kvöldsins geisla-
diskinn með nýju syrpunni okkar
ásamt því að þeir sem mæta snemma
fá að smakka Gordon‘s Space-drykk-
inn og hlusta á Kidda Bigfoot sem
mun hita upp fyrir okkur.“
Þeir félagar lofa því að vera í
karakter allan tímann en fyrr í vik-
unni fóru þeir í ekta diskóklippingu
en þeir voru búnir að safna hári í
þónokkurn tíma.
„Siggi tekur þetta aðeins meira út
í tískupönkið sem var í gangi um
1984. Báðir höfum við verið með
mottu í meira en mánuð og blöndum
þessu saman við mottukeppni aug-
lýsingastofunnar Pipars, en þar eru
allir karlmenn með mottu þessa
dagana. Mottukeppnin endar á
þessu kvöldi og er frítt inn fyrir alla
sem eru með mottu.“
Þeir félagar segjast finna fyrir
miklum spenningi vegna diskó-
kvöldsins enda ekki á hverjum degi
sem Hollywood-kynslóðin fær að
sletta úr klaufunum á dansstöðum
bæjarins.
„Það hafa margir þekktir ein-
staklingar boðað komu sína og það
er aldrei að vita hver tekur lagið og
hver tekur í græjurnar,“ segir Valli
alsæll með nýju hárgreiðsluna sína.
martamaria@365.is
VALLI SPORT OG SIGGI HLÖ ERU PLÖTU-
SNÚÐAR Á DISKÓKVÖLDI Á GAUKNUM
Fengu nýtt hár
MEÐ MOTTU OG ALLT
Valli sport og Siggi Hlö eru
farnir að hlakka til kvöldsins
en þeir lofa því að margir
þekktir einstaklingar muni
verða á svæðinu.