Fréttablaðið - 02.11.2007, Page 6
„Þessi afdráttarlausa
niðurstaða kemur mér á óvart
og veldur mér vonbrigðum,“
segir Bjarni Ármannsson,
stjórnarformaður Reykjavik
Energy Invest (REI). „Nú
þurfum við að fara yfir afleið-
ingar þessarar niðurstöðu og
skoða hver staða REI er í ljósi
hennar.“
Bjarni sagðist ekki geta sagt
til um áhrif ákvörðunar borgar-
ráðs á til dæmis samninga sem
REI hefur gert um uppbyggingu
erlendis fyrr en farið hefði verið
nákvæmlega yfir málið.
Sú viðskiptavild sem falin er í
Orkuveitu Reykjavíkur, og þar
með samningur til tuttugu ára
um einkarétt REI á hugviti OR
til útrásar, var metin á tíu millj-
arða króna við sameiningu REI
og Geysis Green Energy (GGE).
„Miðað við minn lestur á þeim
upplýsingum sem ég hef séð
virðist sem verulegum fjár-
hæðum sé varpað fyrir róða,“
segir Bjarni.
Bjarni fjárfesti í REI og kom
þar inn sem stjórnarformaður
nokkru áður en sameining REI
við GGE var ákveðin og útfærð.
Hann vildi ekki tjá sig nánar um
sína stöðu hjá fyrirtækinu, þau
mál yrði að skoða eins og önnur.
Sömu svör fengust þegar Bjarni
var spurður hvort hann hygðist
leita réttar síns fyrir dómstólum
gengju samningarnir ekki eftir.
Samningur um sameiningu
GGE og REI er enn í fullu gildi,
sem og þjónustusamningur til
tuttugu ára við Orkuveitu
Reykjavíkur. Þetta fullyrðir
stjórn GGE í yfirlýsingu í gær,
undirritaðri af Hannesi Smára-
syni, forstjóra FL Group og
stjórnarformanni GGE.
„Stjórn Geysis Green Energy
undrast niðurstöðu borgarráðs
og bíður þess að fá fullnægjandi
skýringar á ákvörðuninni og á
hvaða forsendum borgarráð
telur sig geta rift gerðum samn-
ingum,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar segir enn fremur að það
sé skilningur félagsins að gerð-
um samningum verði aðeins
breytt með nýjum samningum
eða ákvörðun dómara. Stjórn og
hluthafar muni fara vandlega
yfir málið á næstu dögum.
Vísað er til þess í yfirlýsing-
unni að í svari Reykjavíkur-
borgar til umboðsmanns
Alþingis lýsi borgarlögmaður
því áliti að um þá samninga sem
stjórn OR gerir gildi reglur
einkaréttar og þar með að stjórn
OR standi að þessum samning-
um en ekki borgarráð.
Stjórnin óttast að ákvörðun
borgarráðs geti sett stór verk-
efni í uppnám og að samningar
sem gerðir hafi verið við erlenda
samtarfsaðila geti verið í hættu.
Auk þess geti ímynd íslenskra
fyrirtækja á þessum vettvangi
skaðast til frambúðar vegna
ákvörðunarinnar.
Þannig bendir stjórnin á það í
yfirlýsingu sinni að „umtalsverð
fjárhagsleg verðmæti“ geti tap-
ast fyrir hluthafa í REI, GGE og
eigendur Orkuveitu Reykja-
víkur.
Reykjavíkurborg hafnar
samruna Reykjavik Energy Invest
(REI) og Geysis Green Energy
(GGE) og telur að einkaréttar-
samningur milli REI og Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) sé óásættanleg-
ur. Þetta var ákveðið á fundi
borgarráðs í gær. Þar var jafn-
framt ákveðið að ráðast í stjórn-
sýsluúttekt á Orkuveitunni.
Svandís Svavarsdóttir, for-
maður stýrihóps borgarráðs um
samruna REI og GGE, segir að
hún hafi fyrir hönd stýrihópsins
lagt fram þessar tvær tillögur í
borgarráði í gær. Þverpólitísk sátt
hafi náðst um tillögurnar og full-
trúar allra stjórnmálaflokka sem
sæti eiga í borgarráði samþykkt
þær. Borgarráð hefur beint
ákvörðunum sínum fyrir stjórn
OR, sem mun taka ákvörðun um
útfærslu.
Svandís segir stýrihópinn sam-
mála um að verulegur vafi leiki á
því hvort þeir samningar sem
lagðir hafi verið fyrir stjórnar-
fund OR 3. október síðastliðinn
hafi öðlast gildi. Þar var samein-
ing REI og GGE samþykkt.
Í greinargerð með tillögu stýri-
hópsins segir að upplýsingagjöf
og kynning á tuttugu ára þjónustu-
samningi OR við REI og samein-
ingu REI og GGE hafi brugðist.
Stjórnarmönnum sé ekki ætlað að
taka umfangsmiklar ákvarðanir
án þess að fyrir því hafi legið sam-
þykktir eða rökstuðningur.
„Hér hafa allar reglur verið
þverbrotnar,“ segir Svandís. „Hér
hefur umboð farið fyrir ofan garð
og neðan í sumum málefnum. Hér
hafa verkferlar verið meira og
minna á skjön. Það hefur blasað
við í opinberri umræðu að kynn-
ingu var ábótavant. Opinberri
umræðu var ábótavant, og kjörnir
fulltrúar fengu jafnvel ekki nægar
upplýsingar á ýmsum stigum. Það
út af fyrir sig er tilefni til að taka
allan gjörninginn upp.“
Borgarráð samþykkti einnig til-
lögu um að gerð yrði stjórnsýslu-
úttekt á OR, og hefur innri endur-
skoðun borgarinnar verið falið að
vinna úttektina. Þar á meðal ann-
ars að kanna stjórnskipulag og
ábyrgð á verkefnum, hlutverk
stjórnar og stjórnenda. Enn
fremur á að fara yfir það hvernig
OR hafi staðið að stofnun félaga,
og hvernig eftirliti með slíkum
félögum sé háttað.
Vinnu stýrihópsins er hvergi
nærri lokið þrátt fyrir að hann
skili af sér þessum tillögum, segir
Svandís. Ætlunin er að hópurinn
skili skýrslu til borgarstjórnar í
lok nóvembermánaðar.
Svandís segist ekki óttast að
ákvörðun borgarráðs í gær kunni
að skapa grundvöll fyrir því að
þeir sem stóðu að sameiningu
GGE og REI krefjist skaðabóta.
Besta niðurstaðan væri sú að allir
aðilar sættust á málalyktir, en
verði niðurstaðan óviðunandi fyrir
einhverja aðila geti þeir leitað
réttar síns.
„Ég myndi vilja sjá að fjárfestar
og aðrir sem koma að þessu máli
áttuðu sig á því að almenningur
gerir þessa kröfu sem við erum að
reisa hér í borgarráði í dag,“ sagði
Svandís.
Borgin hafnar sam-
runa orkufyrirtækja
Allar reglur voru þverbrotnar við sameiningu Geysis Green Energy og Reykja-
vik Energy Invest segir Svandís Svavarsdóttir. Borgarráð lætur vinna stjórn-
sýsluúttekt á Orkuveitu Reykjavíkur. Óttast ekki að ósáttir leiti réttar síns.
Fé kastað á glæ og
orðsporið skaðað