Fréttablaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 52
2. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið vetrarlíf
Á veturna sækja smáfuglarnir í
garða víðs vegar um landið og
þá getur verið gaman að setja
upp fuglahús eða bretti og
gefa þeim örlítið í gogginn.
„Margir fóðra smáfugla ár eftir
ár og finnst gaman að fá þá í
mat. Þess vegna er mikilvægt
að bjóða fuglana velkomna með
góðri aðstöðu og vanda fóðrið,“
segir Einar Ó. Þorleifsson,
náttúrufræðingur hjá Fuglavernd.
Helstu garðfuglarnir á Íslandi
eru skógarþrestir, auðnutittlingar
og starrar og Einar segir það
mikilvægt að fuglarnir séu
fóðraðir daglega svo þeir eyði
ekki orku í fæðuleit. „Fuglarnir
vilja helst mjúkt fæði, haframjöl,
brauðmola og kartöflur. Auk þess
sem matarafgangar eins og kjöt
og fita hakkað saman eru góður
orkugjafi. Fuglarnir þurfa fitu á
veturna og þess vegna er gott að
dýfa brauðinu í matarolíu og blanda
henni í annað fæði,“ segir Einar og
bætir við: „Mörgum fuglum finnst
líka gott að fá epli og rúsínur. Það
laðar líka að sjaldséða og skraut-
lega fugla eins og silkitopp, svart-
þresti og gráþresti. Hins vegar er
best að gefa snjótittlingum fræ á
bersvæði og fóðra auðnutittlinga
með fræjum úr þar til gerðum
fóðrara.“
Til þess að fuglarnir nái að matast
er mikilvægt að þeir hafi greiðan
aðgang að fóðrinu og þá eru bæði
fóðurbretti, hús og fuglafóðrarar
tilvalin lausn. Fóðurbrettin fást í
ýmsum búsáhalda- og byggingar-
vöruverslunum en síðan er líka
gaman að smíða sín eigin með
krökkunum og muna að þrífa þau
þegar milt er í veðri.
Brettið á að vera 60-80 cm
á lengd og 50 cm á breidd með
köntum svo fóðrið fjúki ekki burt.
Síðan er það fest á 1,5 m háa stöng,
svo kisa nái ekki til, og stungið
ofan í jörðina. Þá þarf fólk að vera
vakandi fyrir því að setja bjöllur á
kisurnar sínar.
Fuglahús eru af öllum stærðum
og gerðum og þar verpa sumir
fuglar eggjum. Á vef Fuglaverndar
má sjá nokkrar tegundir af húsum
og þau er einnig hægt að búa til
heima. „Fuglarnir þurfa að snyrta
fjaðrirnar vel allan ársins hring
og þá getur verið gott fyrir þá að
komast í bað enda sérstaklega
mikilvægt á veturna til þess að
fiðrið haldi einangrunargildinu,“
segir Einar og heldur áfram: „Best
er að hafa fuglabaðið nokkra senti-
metra hátt og síðan þarf vatnið
alltaf að vera hreint og má ekki
vera klístrað svo þeir geti líka
fengið sér að drekka.“
Fram undan er margt spenn-
andi hjá Fuglavernd, meðal annars
nýtt tímarit og fyrirlestrar. „Við
erum nýbúin að gefa út garðfugla-
bæklinginn endurskoðaðan. Síðan
er fram undan tímaritið okkar
Fuglar og í næstu viku erum við með
fyrirlestur í sal Kennaraháskólans
þar sem Guðmundur A. Guðmunds-
son mun fjalla um ferð sína um
heimskautalöndin og náttúrufarið
þar,“ segir Einar en nánari upplýs-
ingar um dagskrá félagsins er að
finna á www.fuglavernd.is.
Upplýsingar um íslenska fugla
er að finna á vef Námsgagnastofn-
unar: www.nams.is/fuglar
rh@frettabladid.is
Smáfuglarnir eru mættir í mat
Einar Ó. Þorleifsson, náttúrufræðingur hjá Fuglavernd, hlakkar til að taka á móti garðfuglunum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bústnir auðnutittlingar gæða sér á fóðri
í snjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA