Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 58
BLS. 12 | sirkus | 2. NÓVEMBER 2007 Á tískuvikunni á Ítalíu á dögunum sýndi ítalska hátískumerkið GUCCI vorlínu 2008. Það vakti athygli hvað pinnahælar voru áberandi en margir tískuspekúlantar voru búnir að úrskurða þá dauða. Nei, aldeilis ekki, GUCCI lýgur ekki. Á sýningunni var líka mikið um bleika tóna, stuttar buxur og dömuleg snið. Glamúr- gellur sem elska pinnahæla og bleika liti geta því glaðst allhressilega yfir þessum fregnum. Pinnahælar eru ekki búnir að vera G U C C I Afmælisþema um helgina „Ég verð með lítið matarboð á laugardaginn þar sem ég átti afmæli í vikunni. Síðan ætlar maðurinn minn að bjóða mér út að borða á sunnudaginn af sama tilefni. Hver veit nema að maður skelli sér í sund, það er svo gott svona um helgar.“ BRYNJA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR Á ÍSAFOLD. Aðallega vinnuhelgi „Helgin mun einkennast mest af vinnu hjá mér. Ég er að sýna í Borgarleikhúsinu í sýningunni „Viltu finna milljón?“ og önnur sería Sigtisins (þriggja diska eðalútgáfa) kemur út á DVD núna 1. nóvember og af því tilefni munum við Sigtis-bræður hittast og leggja á ráðin um hvernig sé vænlegast að herja á landann. Ef tími gefst mun ég síðan reyna að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.“ GUNNAR HANSSON, LEIKARI OG ÞÁTTASTJÓRNANDI. Helgin mín Verslunin IPK Heimili og hugmyndir var opnuð í vikunni með pomp og prakt. Verslunin selur vandaðar heimilisvörur á viðráðanlegu verði. Margt var um manninn á opnuninni og notalegt andrúmsloft verslunarinnar umvafði gesti og gangandi. Opnun á IPK Heimili og hugmyndir OPNUN VERSLUNAR, HUGMYNDIR OG HEIMILI Mikið hefur verið lagt í umgjörð verslunarinnar og góðar hugmyndir leynast í hverju horni. MYNDIR/VÖLUNDUR OPNUN VERSLUNAR, HUGMYNDIR OG HEIMILI Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður og austurríski vínbóndinn Hubert Sandhofer skáluðu í eðalvíni ræktuðu frá Hubert sjálfum. Það er gaman að sjá hvernig Kristín brýtur upp svartan klæðnaðinn með þessu rómantíska armbandi og hringnum sem hún ber. OPNUN VERSLUNAR, HUGMYNDIR OG HEIMILI Björg Þórhallsdóttir óperusöngkona og Steinunn Birna Ragnardóttir píanóleikari stilltu saman strengi sína. OPNUN VERSLUNAR, HUGMYNDIR OG HEIMILI Ástin skein af Ragnhildi Gísladóttur og Birki Kristinssyni. Takið eftir undurfögru hálsskrauti Ragnhildar. M YN D IR / G ET TY IM AG ES Hverjir voru hvar Helgin var þéttsetin hjá sirkusstjóranum sem hefði ekkert haft á móti einu ullar- sirkustjaldi eða svo til að ylja sér á þegar ferðast var á milli staða síðustu helgi. Það var fjölbreytt mannhaf á Boston sl.föstudagskvöld og margir sem sóttu þar í brjóstbirtu og hlýju. Friðrik Sophusson leit þar inn með dóttur sinni, Gabríelu Friðriksdóttur myndlistar- manni og Baggalúturinn Karl Sigurðsson var þar í góðum gír. Dansleikur Heimilistóna sem fór fram í Iðnó á laugardagskvöldið hleypti heldur betur blóðinu af stað í æðum sirkusstjórans. Hljómsveitarmeðlimirnir, leikkonurnar Elva Ósk, Katla Margrét, Ólafía Hrönn, Vigdís Gunnars og Ragga Gísla, skörtuðu sínu fegursta eins og þeirra er von og vísa og héldu uppi miklu stuði ásamt góðum gestum. Þær stöllur Elma Lísa Gunnarsdóttir og Edda Eyjólfsdóttir leikkona stigu trylltan „gógó“-dans með bandinu og Ilmur Kristjánsdóttir leikkona tók lagið við mikla hrifningu viðstaddra. Rokkdrottingin Andrea Jónsdóttir lét ekki sitt eftir liggja og þeytti skífum í pásum hljómsveitarinnar. Grænmetisdrottingin Valentína Björnsdóttir hjá Móður náttúru sýndi flotta takta á dansgólfinu. Leikararnir Björn Hlynur, Kjartan Guðjóns, Nína Dögg og Edda Arnljóts létu þetta samkvæmi ekki fram hjá sér fara sem og stjörnulög- fræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson sem hafði pússað dansskóna svo um munaði. Eftir svita og hita hélt sirkusstjórinn á Ölstofuna, en þar sást til Silju Hauksdótt- ur leikstýru og Hörpu Þórsdóttur, framleiðanda hjá Saga film. Þegar líða tók á nóttina skaut Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður inn kollinum og hleypti hressum straumum inn á ölið sem var annars frekar rólegt þetta kvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.