Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 70
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grinda- vík fagnar sextugsafmæli á morgun laugardag. Dagurinn hefst með menning- ar- og sögutengdri göngu, undir leið- sögn Sigrúnar Franklín, um Þór- kötlustaðanes þar sem nýtt söguskilti verður vígt. Nesið, sem skiptist í Þór- kötlustaðanes og Hópsnes, er sögu- svið útgerðar í Grindavík þar sem minjar um verbúðir standa ennþá. Á austanverðu nesinu er síðan einn elsti byggðakjarninn í Grindavík. „Saga björgunarsveitarinnar og nessins er samtvinnuð. Þarna bjó fólk við sjósókn og róðra fram undir miðja síðustu öld og samtals hefur björgunarsveitin bjargað 232 sjó- mönnum úr sjávarháska og drjúgum hluta á nesinu,“ segir Óskar Sævars- son, ferða- og markaðsmálafulltrúi Grindavíkur, sem er einnig forstöðu- maður Saltfisksetursins og hefur starfað með björgunarsveitinni í ára- tugi. Gangan sem er í boði björgunar- sveitarinnar, Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins hefst klukkan 13. „Skiltið segir sögu gamla byggða- kjarnans ásamt því að sýna fornar minjar um sjósókn á staðnum. Einn- ig eru þar öll kennileiti og örnefni ásamt strandstöðum,“ útskýrir Óskar sem segir að gangan taki um klukku- stund með fræðslustoppum og endi í húsakynnum björgunarsveitarinn- ar að Seljabót 10. Þar verður opið hús frá klukkan 13-17 á laugardag. „Sveitin býður til afmælisveislu þar sem allir eru velkomnir. Þar verður saga sveitarinnar til sýnis í máli og myndum yfir veglegum veigum. Þetta er ein elsta björgunarsveit landsins og á sér stórmerka sögu. Við ætlum að bjóða upp á risastóra afmælistertu ásamt góðgæti fyrir krakkana og hoppukastala ef veður leyfir,“ segir Óskar sem býst við góðri veislu. „Björgunarsveitin er sterkt afl og félagsskapur í augum Grindvíkinga og nýtur gífurlegrar velvildar svo ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta á afmælisdaginn,“ segir Óskar brosandi. Afmælisveislan er síðasti liður í viðburðadagskrá Grindavíkur- bæjar og Saltfisksetursins. Sjá:www.grindavik.is Bush kosinn forseti í annað sinn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hildigunnur Kristinsdóttir Skíðabraut 15, Dalvík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudag- inn 29. október sl. verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 13.30. Börn, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, Elín Maríusdóttir andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að kvöldi 31. október. Útförin verður auglýst síðar. Ólafur Björn Guðmundsson Björn Már Ólafsson Þórey Vigdís Ólafsdóttir Maríus Ólafsson Elín Soffía Ólafsdóttir og fjölskyldur. Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, fósturfaðir, afi og bróðir, Sveinn Ingvi Þorsteinsson Deildarási 1, lést 26. október á Krabbameinsdeildinni við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju, föstudaginn 2. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vilja minnast hans er beint á minningarsjóð Karitas S. 551 5606 milli 9 og 11 eða Krabbameinsfélagið. Jónína Kristín Vilhjálmsdóttir Þröstur Sveinsson Guðrún Eiríksdóttir Óla Laufey Sveinsdóttir Þorsteinn Sveinsson Keelie Walker Jóna Denný Sveinsdóttir Vilhjálmur Örn Halldórsson Svanfríður Ásgeirsdóttir systkini og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa, Kristjáns Hans Jónssonar Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4. hæð hjúkrunar- heimilisins Sólvangs, Ásgeirs Theodórs, yfirlæknis lyfjadeildar St. Jósefsspítala, og allra þeirra sem önnuðust Kristján í erfiðum veikindum hans. Fyrir hönd fjöskyldunnar, Ásdís G. Konráðsdóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug á einn eða annan hátt vegna andláts og útfarar okkar ástkæra, Sigurðar Magnúsar Magnússonar Esjubraut 39, Akranesi. Sérstakar þakkir til Höllu Skúladóttur krabbameins- sérfræðings og starfsfólks deildar 11-B á LSH og einnig til Hallveigar Skúladóttur hjúkrunarfræðings og Heimahjúkrunar SHA. Björnfríður Guðmundsdóttir Magnús Hólm Sigurðsson Ásta Ósk Sigurðardóttir Jóel Bæring Jónsson Selma Sigurðardóttir Þorvaldur Sveinsson og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Sigurður V. Hallsson Lindargötu 57, lést fimmtudaginn 18. október á líknardeild Landspítalans Landakoti. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hrafnhildur Eyjólfsdóttir Margrét Sigurðardóttir Friðjón Örn Friðjónsson Anna Mariella Sigurðardóttir Jakob Gunnarsson Benedikt Sigurðsson Eyjólfur Rósmundsson Hekla Gunnarsdóttir Elísabet Rósmundsdóttir Páll Viðar Jensson Unnur Rósmundsdóttir og afabörn. „Hommar vilja að ég sé sam- kynhneigður en gagnkyn- hneigðir vilja það ekki. Þeir blaðamenn sem ég tala við vonast allir til þess að ég leysi frá skjóðunni. Ég vildi óska þess að fólk hætti að velta sér upp úr mínu lífi og færi að lifa sínu eigin lífi.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.