Fréttablaðið - 02.11.2007, Page 78
Það er ekki ofsögum sagt að upplausnarástand ríki í plötuútgáfu. Sala á
geisladiskum heldur áfram að dragast saman og tónlistarmenn keppast við
að máta nýjar aðferðir til þess að koma tónlist sinni í verð og til hlustenda.
Það vakti mikla athygli þegar Prince lét nýju plötuna sína fylgja með
breska dagblaðinu Mail on Sunday. Síðan hafa fleiri fylgt í kjölfarið, þ.á m.
Ray Davies, en nýja platan hans Working Man’s Café fylgdi með Sunday
Times viku áður en platan kom í verslanir. Sú staðreynd að geisladiskar
fylgja oft með breskum dagblöðum sem sum kosta langt undir hundrað-
kallinum er auðvitað sönnun þess hve framleiðslukostnaður á geisla-
diskum er ofboðslega lítill.
Stærsta sprengjan í útgáfubransanum er samt að sjálfsögðu plata
Radiohead, In Rainbows. Enn er óvíst hve margir hafa sótt sér plötuna á
Netið og hvað þeir hafa borgað, en það má bóka að tekjur sveitarinnar af
útgáfunni séu umtalsverðar. Uppátækið hefur mælst misvel fyrir hjá
öðrum tónlistarmönnum, en nú þegar er talað um að fleiri þekktir
listamenn hugleiði að feta í fótspor sveitarinnar, þ.á m. Oasis og Jamiro-
quai. Þetta er samt möguleiki sem aðeins þekktir tónlistarmenn geta nýtt
sér. Það þýðir ekki fyrir nýja listamenn að bjóða hlustendum að borga bara
það sem þeim dettur í hug fyrir tónlist.
Það er nú komið á hreint að XL-útgáfan, sem gaf út sólóplötu Thoms
Yorke og hefur listamenn eins og White Stripes, MIA og Dizzee Rascal á
sínum snærum, mun gefa In Rainbows út á geisladiski. Þar
með hefur Radiohead kvatt EMI og er komin á mála hjá
fyrirtæki sem er óháð útgáfurisunum fjórum. Risarnir
eiga undir högg að sækja og ekki sér fyrir endann á
þeirri þróun. Madonna mun t.d. vera að yfirgefa Warner.
Hér á Íslandi gefur Mugison sína plötu út sjálfur og selur
hana beint á vefsíðunni sinni – niðurhal og platan send um
hæl. Þeir hörðustu tala um að tími plötufyrirtækjanna sé
brátt liðinn. Ég vona svo sannarlega að svo sé ekki.
Menn gleyma því að tónlistarsagan er vörðuð
frábærum plötuútgáfum sem voru stofnaðar af
ástríðufullum ofurhugum sem höfðu mikil og
jákvæð áhrif á tónlistarsöguna: Atlantic, Studio 1,
Stax, Rough Trade, Factory, Tommy Boy, Warp,
Sub Pop... Listinn er endalaus.
Allt í lausu lofti
Í skjóli agalegs fjölmiðla-
fárs, hárleysis og forræðis-
deilu sendir Britney Spears
frá sér nýja plötu. Steinþór
Helgi Arnsteinsson athug-
aði hvort poppprinsessan
væri tilbúin að taka við
drottningarkrúnunni.
Blackout, fimmta plata Britney
Spears, kom í verslanir í vikunni og
núna loksins, loksins virðist eitt-
hvað jákvætt vera að eiga sér stað í
lífi Britneyjar, sem verður ekki 26
ára fyrr en í byrjun desember.
Britney hefur undanfarin ár verið
skotspónn harkalegrar umfjöllunar
fjölmiðla sem þreytast ekki á því að
fjalla um atferli hennar dag hvern.
Reyndar verður að segjast alveg
eins og er að Britney sjálf er líkleg-
ast sú sem ýtir fárinu mest áfram
með ýmsum uppátækjum. Nær-
buxnalaus úti á lífinu, partístuð með
Paris Hilton, árás á ljósmyndara
með regnhlíf, tíðar heimsóknir í
afvötnun, vægast sagt ömurleg
frammistaða á MTV-tónlistarhátíð-
inni og síðan allar deilurnar við hinn
hæfileikalausa rappara K-Fed, allt
eru þetta atriði sem lesendum bæði
slúðurblaðanna og mbl.is finnst ekki
leiðinlegt að fylgjast með.
„Þetta er Britney, tík!“ Á þessum
orðum hefst fyrsta smáskífulag
Blackout og um tíma mátti líka
heyra þetta þegar maður heimsótti
heimasíðu Britney. Lagið heitir
Gimme More og er það lag Britn-
eyjar sem náð hefur hæst inn á Bill-
board-vinsældalistann í Bandaríkj-
unum. Lagið situr þar nú í þriðja
sæti en aðeins lagið … Baby One
More Time hefur náð alla leið á
toppinn.
Myndbandið við Gimme More er í
anda fyrri myndbanda Britney þar
sem hún sést dansandi í efnislitlum
fötum að sýna hversu agalega kyn-
æsandi hún er. Alltaf eru þessi
myndbönd jafn ömurlega full af
sýndarveruleika þar sem undir niðri
ríkir blússandi sjálfsóöryggi. Hvers
vegna er tónlistin ekki sjálfri sér
næg, hvers vegna þarf einnig eitt-
hvað kynferðislegt til að selja tón-
listina?
Athyglisverðast við myndbandið
er samt munurinn á ljóshærðri
Britney og þeirri dökkhærðu en sú
síðarnefnda er töluvert óheflaðri.
Dökkhærða Britney má einnig finna
á plötuumslaginu og sýnir kannski
að Britney er enn að þroskast enda
ekki nema 25 ára gömul.
Blackout hefur verið kölluð upp-
risuplata Britney en langt því frá
allir eru sammála um að svo sé.
Sem fyrr kemur úrvalslið tónlistar-
manna og upptökustjóra að plöt-
unni. Svíar koma eins og vanalega
mikið við sögu í lagasmíðunum en
helst ber að nefna þátt Nate
„Danja“ Hills, tónlistarlegs
afsprengis Timbalands. Um þessar
mundir stefnir Danja í að verða
heitasti og eftirsóttasti takta-
smiður tónlistarbransans, ef hann
er ekki orðinn það nú þegar.
Fleiri góðir gestir koma einnig
við sögu á plötunni, til dæmis T-
Pain og Pharrell Williams, en það
hefur alltaf verið einkenni Britn-
eyjar að fá heitustu upptökustjór-
ana, taktasmiðina og lagahöfund-
ana til liðs við sig hverju sinni.
Réttara væri þó að segja að plötu-
fyrirtæki Britneyjar, Jive, fengi
þá til liðs við hana.
En hvað gefur Britney í plötuna?
Hún syngur vissulega og karakter
hennar einn og sér selur fleiri
plötur en samanlagðir hæfileikar
flestallra tónlistarmannanna sem
koma að plötunni, eins sorglega og
það nú hljómar.
Við skulum samt leyfa Britney
að halda áfram að þroskast og þró-
ast. Lagaheiti á borð við Why
Should I Be Sad, Break the Ice,
Hot as Ice, Freakshow og Get
Naked (I Got a Plan) sanna alla-
vega að Britney er ekki alveg búin
að koma öllum sínum andlegu
málum á hreint.
Tónlistarmaðurinn Benni Hemm
Hemm er með tvær nýjar plötur í
undirbúningi. Eftir um það bil
viku lýkur hann við litla plötu
sem verður gefin út í næsta
mánuði og í lok ársins hefur
hann upptökur á stórri plötu.
Svíinn Jens Lekman og
samstarfsmaður hans,
skoski píanóleikarinn
Bill Wells, koma við sögu
í nokkrum lögum á minni
plötunni. „Það var frá-
bært að vinna með þeim.
Ég er mjög ánægður
með þetta,“ segir Benni,
sem kynntist Lekman á
Airwaves-hátíðinni á síð-
asta ári. „Mig langaði að
gefa út plötu í minni kant-
inum, bara til að gefa út á
Íslandi. Ég vildi hafa þetta
lítið í sniðum, í litlu upplagi
og með engu markaðsátaki,“ segir
hann. „Þessi litla plata er í rauninni
til þess að ég geti slakað á því það er
svo leiðinlegt að gera ekki neitt.“
Benni, sem gaf í fyrra út plötuna
Kajak, notast við mun færri hljóð-
færi á þessari litlu plötu, aðeins
gítar og píanó auk þriggja
blásturshljóðfæra.
Upptökur á stórri plötu
hefjast síðan í lok ársins.
„Ég kem mér eiginlega allt-
af í þá stöðu að vinna rosa-
lega hratt. Þá kem ég þeim sem
eru að vinna með mér í þá stöðu
að vinna mjög hratt. Í þetta
skipti ætla ég bara að taka
upp, láta útgefandann fá hana
og halla mér aftur.“
Eins og kom fram í Frétta-
blaðinu í gær á Benni þrjú lög á
heimasíðu David Byrne, fyrrverandi
forsprakka Talking Heads. „Mér
finnst hann flottur en hef ekkert
fylgst meira með honum en öðrum,“
segir Benni, en viðurkennir að um
mikinn heiður sé að ræða.
Tvær nýjar plötur frá Benna
Hljómsveitirnar Nilfisk, Hellvar, Cliff Cla-
vin, Coral, Johnny and the Rest og Sign halda
tónleika á Gauki á Stöng í kvöld ásamt karla-
kórnum Fjallabræðrum til styrktar bættum
vegasamgöngum til Vestfjarða.
„Við erum rosalega góðir vinir, ég og
Ásgeir og Halldór sem sjá um kórinn, og
þekkjumst að vestan,“ segir Ragnar Sólberg,
söngvari Sign. „Við höfum alltaf rætt um
þetta á léttu nótunum þegar við hittumst. Við
í Sign vorum beðnir um að spila á þessum
tónleikum en gátum það ekki því bassa-
leikarinn býr á Akureyri. Þannig að við
ákváðum að láta verða af þessu og tóna
okkur niður og gera lag með Fjallabræðrun-
um. Ég held að þetta verði rosalega töff.“
Ætla þeir að syngja saman lag Sign, When
Demons Win, í órafmagnaðri útgáfu og
verður spennandi að sjá hvernig útkoman
verður. Allir meðlimir Sign eru ættaðir frá
Ísafirði og því er þeim afar hugleikið að
vegasamgöngur til Ísafjarðar verði bættar.
„Það er stundum alveg hræðilegt að keyra
þangað,“ segir Ragnar.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til sam-
gönguráðuneytisins. Húsið verður opnað
klukkan 21 og kostar 1000 krónur in.
Syngja með karlakór
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
rv
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.