Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 96
Út er komin hin klassíska barna-bók Tíu litlar skipamellur eftir
Metúsalem frá Munaðarnesi, eitt
ástælasta skáld þjóðarinnar. Hver
man ekki eftir vísunum um
gálurnar tíu sem týna tölunni ein
af annarri í sprútttunnum, nælon-
sokkabuxnasnörum og ilmvatns-
fnyk á slippstöð suður með sjó?
af Ástandinu setti
Metúsalem þessa kviðlinga saman
á fimmta áratug síðustu aldar til
að brýna fyrir litlum tátum hvernig
getur farið ef þær eru of útbærar
á blíðu sína í þeim tilgangi að ná
sér í tyggigúmmí og annan lúxus-
varning sem bandarískir dátar og
togarasjómenn hafa upp á að bjóða.
Vísurnar koma öllum í sólskins-
skap og hafa haft ofan af fyrir
nokkrum kynslóðum skólabarna
en einhverra hluta vegna verið
ófáanlegar um langt skeið.
þjóðkirkjan rétti sam-
kynhneigðum sáttahönd á presta-
stefnu þegar komist var að þeirri
niðurstöðu að leyfa prestum sem
það vilja að staðfesta greftrun
homma og lesbía – í vígðri mold og
allt. Talsmenn þjóðkirkjunnar telja
það aftur á móti of stórt skref að
tala um útfarir samkynhneigðra
eins og hverja aðra jarðarför.
Félagar úr stétt kristilegra góð-
borgara telja enn fremur að það
samræmist ekki íslenskri málvenju
að orðin jarðarför og lesbía og/eða
hommi komi fyrir í sömu andrá. Í
viðleitni sinni til að brúa bilið milli
sannkristinna og samkynhneigðra
hafa þeir aftur á móti stungið upp á
nokkrum orðum sem nota mætti í
stað staðfestra greftrana, til dæmis
hommaför og dyslesbía.
hefur
ákveðið að afnema vöru- og stimpil-
gjöld. Hann telur aftur á móti ekki
rétt að gera það í einu vetfangi
heldur í nokkrum áföngum. Í fyrsta
lagi er það gert til að hlífa neytend-
um, sem munu að öllum líkindum
ekki ráða við óheft aðgengi að hand-
sápu, kakódufti og svampbotna-
tertum á svo lækkuðu verði að í
sumum tilfellum stappa kjörin
nærri raunvirði.
öðru lagi þykir sanngjarnt að
kaupmenn, og aðrir sem hag hafa
af, fái að aðlagast breyttu kerfi og
auka álagningu smátt og smátt til að
vega upp það tekjutap sem… ja, ein-
hver annar en þeir yrði fyrir við
þessa breytingu. Smyrji þeir öllu á í
einu er hætt við að til átaka komi
milli kaupmanna og neytenda –
reyndar aðallega í formi langra og
gífuryrtra lesendabréfa – en sýnt
þykir að yrðu öllum til armæðu og
engum til hagsbóta.
Nokkur
framfaramál
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-1
0
4
8
Volkswagen Passat er grænn bíll
• 16” álfelgur • Fjarlægðarskynjarar að aftan og framan
• Skyggðar rúður • Silfurlitir þakbogar
• Aftengjanlegt dráttarbeisli • Hiti í framsætum
• Aksturstölva • 230V tengi í farþegarými
• Leðurklætt stýri
Við getum nú boðið takmarkað magn af Passat Variant með geysiöflugri 140 hestafla
2,0 TDI® dísilvél sem eyðir aðeins 6,7 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Sítengt
aldrif (4Motion) gerir vetraraksturinn að magnaðri upplifun.
Innifalinn 285.000 kr. aukahlutapakki
Aukahluta
pakki að v
erðmæti
285.000 k
r. innifalinn.
Einnig fylg
ja vönduð
vetrardek
k
að verðmæ
ti 70.000
kr.
Passat Variant TDI® 4Motion
kostar aðeins 3.350.000 kr.