Fréttablaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 12
Skráning hafin á landsbanki.is
eða í Ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 4000.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru á landsbanki.is
Fjármálakvöld fyrir alla
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning.
Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjármálum heimilanna,
fjárfestingartækifærum og lífeyrismálum. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.
Fræðslukvöld fyrir innflytjendur
Fræðslukvöld verða haldin fyrir innflytjendur en námskeiðin eru samvinna sérfræðinga hjá
Alþjóðahúsi og Landsbankanum. Námskeiðin eru opin öllum án endurgjalds og verða kennd
á íslensku en eitt markmið námskeiðanna er að flétta saman íslenskukennslu og fjármála-
fræðslu.
8. nóvember, Árbær
Tómas N. Möller, forstöðumaður Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans, fjallar um
fjármál heimilisins. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja fá hagnýt ráð um lántökur, ávöxtun,
sparnað og fjármál heimilisins almennt.
Dagskrá fræðslukvölda
8. nóv. Fjarðargata Greiðslumiðlun og lántaka
15. nóv. Aðalbanki Greiðslumiðlun og lántaka
22. nóv. Mjóddin Tryggingar og sparnaður
29. nóv. Laugavegur Tryggingar og sparnaður
N
ÓV
EM
BE
R
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
39
86
9
11
.2
00
7
Námskeiðin hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stöðum:
1. nóv. Aðalbanki Hvar liggja fjárfestingartækifærin?
8. nóv. Árbær Fjármál heimilisins frá A til Ö
15. nóv. Egilsstaðir Fjármál heimilisins frá A til Ö
22. nóv. Grafarholt Lífeyrismál frá A til Ö
29. nóv. Akureyri Hvar liggja fjárfestingartækifærin?
á morgun
á morgun
Sumarhúsaeigendur í Fljótavík vilja gera flugvöll til að
tryggja betri samgöngur við staðinn í öryggisskyni. Þetta segir
Svanlaug Guðnadóttir, formaður umhverfisnefndar Ísafjarðar, sem
vísað hefur málinu til vinnuhóps aðalskipulags norðan Djúps.
Umhverfisstofnun hefur meðal annars bent á að samþykki landeig-
enda þurfi fyrir flugvallargerðinni. Að sögn Svanlaugar eru eigendur í
Fljótavík margir tugir, og á hver um sig misstóran hlut í jörðinni, sem
er í friðlandi. Hún segir suma þeirra nú þegar fljúga þangað á litlum
flugvélum en telja að bæta þurfi lendingarskilyrðin.
Öryggi fyrir sumarhúsafólk
Alcoa Fjarðaál hefur
samið við Eimskip um að félagið
flytji inn rúmlega 220 þúsund
tonn af rafskautum á ári. Samn-
ingurinn, sem var undirritaður í
gær, gildir til fimm ára.
Flutningarnir munu fara um
Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði og
verður hún þá önnur stærsta höfn
landsins. Um 260 þúsund tonna
skipaflutningar munu fara um
hana árlega. Þá munu sjötíu ný
störf skapast við höfnina.
Flutningaskipinu BBC Reyðar-
fjörður hefur verið bætt við flota
Eimskipa og mun skipið sigla
vikulega milli Reyðarfjarðar og
Noregs.
Guðmundur P. Davíðsson, for-
stjóri Eimskips, bindur miklar
vonir við flutningana og telur
forsendur skapast til útflutnings
frá Reyðarfirði, til dæmis á sjáv-
arafurðum af Norður- og Norð-
austurlandi.
„Með tilkomu þessarar hafnar
sé ég fyrir mér að flutningar geti
aukist verulega. Þetta er stysta
siglingaleiðin til Evrópu. Þrjú
skip fara héðan til annarra Evr-
ópulanda í hverri viku þannig að
þetta býður upp á ýmsa mögu-
leika. Með tilkomu annarrar stór-
iðju á Norðausturlandi, til dæmis
á Húsavík, gæti myndast þrí-
hyrningur sem myndi létta veru-
lega á vegakerfinu,“ segir hann.
Við undirskrift samningsins í
gær kom fram að Eimskip mun,
auk flutninga, annast alla skipa-
afgreiðslu fyrir Fjarðaál, upp-
skipun á 690 þúsund tonnum af
súráli og öllum aðföngum til
álframleiðslu sem og lestun áls
sem nemur 346 þúsund tonnum á
ári. Samningurinn nær því til
samtals 1.300 þúsund tonna sem
fara í gegnum Mjóeyrarhöfn í
Reyðarfirði á hverju ári.
Verðmæti samningsins er ekki
gefið upp en Guðmundur segir að
70 prósent af flutningskostnaði
álversins renni til Eimskipa. Féð
fari í rekstur á hafnaraðstöðunni
og flutningakerfinu.
Sjötíu ný störf
við höfnina
Alcoa Fjarðaál hefur samið við Eimskip um að flytja
inn 220 þúsund tonn af rafskautum á ári í Reyðar-
firði. Höfnin í Reyðarfirði verður þar með önnur
stærsta höfn landsins.