Fréttablaðið - 12.11.2007, Síða 6
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
VERTU ÞINN EIGINN
BÍÓSTJÓRI
16.900-
SAROTECH - Flakkari
Auðvelt að tengja við sjónvarp
Diskur ekki innifalinn
Týpa: DVP-370
Flakkarinn er frábær í að horfa
á bíómyndir, skoða ljósmyndir
og til að hlusta á tónlist
Ný lög er varða akst-
ur undir áhrifum fíkniefna tóku
gildi 1. júní 2006. Þar segir að hver
sá sem neytt hafi fíkniefna, eða
annarra ávanabindandi efna, sé
ófær um að aka bifreið.
Á því tímabili hefur lögreglan á
Selfossi handtekið 111 ökumenn í
umdæminu grunaða um fíkniefna-
akstur. 32 ökumenn voru gripnir í
fyrra og það sem af er þessu ári
eru þeir orðnir 79 talsins, eða
næstum átta ökumenn á mánuði sé
miðað við fyrstu tíu mánuði árs-
ins. Á þessu ári hafa 54 þeirra
verið ákærðir en hinir bíða
ákæru.
Að sögn Þorgríms Óla Sigurðs-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
hjá lögreglunni á Selfossi, hafa
flestir ökumannanna neytt amfeta-
míns og kannabisefna og auk þess
hefur lögregla handtekið ökumenn
sem sest hafa undir stýri á bíl eftir
að hafa neytt kókaíns eða alsælu.
Hann segir lögreglu leita í bíl við-
komandi sé hann grunaður um
fíkniefnaakstur en óverulegt
magn fíkniefna hafi fundist hing-
að til.
Þorgrímur segir ökumennina
koma hvaðanæva að. „Þetta er
bæði fólk héðan af svæðinu og í
kring, en margir ökumannanna
hafa verið að koma frá borginni
skiljanlega,“ segir Þorgrímur.
„Við tökum líka oft sama fólkið
oftar en einu sinni.“
Öll fíkniefnaakstursmál sem
koma inn á borð lögreglu eru tekin
til ákærumeðferðar óháð magni
sem finnst í blóði hins grunaða,
ólíkt því sem gerist í ölvunarakst-
urstilfellum en þar ræður magn í
blóði hvort ákært er eður ei.
Viðurlög við fíkniefnaakstri eru
svipting ökuréttinda og sekt, sem
fer eftir magninu sem finnst í
blóði ákærða, sem og sakarkostn-
aður. Í því felst meðal annars að
vinna blóðsýni vegna fíkniefna og
getur slík rannsókn kostað frá 150
þúsund krónum og upp í 180 þús-
und. Til samanburðar er kostnað-
urinn við áfengispróf sjö þúsund
krónur.
Dómar sem fallið hafa að
undanförnu í Héraðsdómi Austur-
lands varða ökuleyfissviptingu
allt frá þremur mánuðum upp í ár,
og sektargreiðslum frá hundrað
þúsund krónum upp í á þriðja
hundrað þúsund króna.
Til samanburðar má geta þess
að á síðasta ári hafði lögreglan á
Selfossi afskipti af 121 ökumanni
vegna ölvunaraksturs, en í ár
þegar tæpir tveir mánuðir eru
eftir af árinu, eru þeir orðnir 127
svo að þar virðist tilfellum fjölga
einnig, óverulega þó.
Sprenging í fíkni-
efnaakstri á Selfossi
Fíkniefnaakstur hefur aukist mjög í umdæmi lögreglunnar á Selfossi, frá því að
ný lög um fíkniefnaakstur tóku gildi í júní 2006. Flestir aka eftir að hafa neytt
amfetamíns en kostnaður við sýnatöku hleypur á tugum þúsunda.
Karlmanni í
Þorlákshöfn, sem grunaður er um
landasölu, var sleppt á fimmtu-
dagskvöld eftir yfirheyrslur hjá
lögreglunni á Selfossi.
Lögreglan gerði í síðustu viku
húsleit í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn
vegna gruns um að þar færi fram
landaframleiðsla. Hald var lagt á
um 140 lítra af tilbúnum landa, 75
lítra af gambra, sem er ósoðinn
landi, svo og tæki til framleiðslu.
Útvega varð túlk við yfirheyrsl-
urnar þar sem maðurinn er af
erlendu bergi brotinn.
Þetta er eitt mesta magn af
tilbúnum landa sem lögreglan á
Selfossi hefur gert upptækt.
Er grunaður
um landasölu
Við erum líka oft að taka
sömu einstaklingana
oftar en einu sinni.
Ætti að skoða endurreisn
næturstrætisvagna?
Fylgdist þú með Edduverðlaun-
unum í gærkvöldi?
Talið er að tíu skip
hafi sokkið eða strandað á Kerch-
sundi og á svæðinu við Svartahaf í
miklum veðurofsa í gær.
Að minnsta kosti 2.000 tonn af
olíu láku út í Kerch-sund þegar
rússneskt olíuflutningaskip brotn-
aði í tvennt í ölduganginum en öld-
urnar náðu átta metra hæð þegar
verst lét. Er þetta versta
umhverfisslys sem orðið hefur á
þessu svæði í mörg ár að sögn
yfirvalda.
Öllum þrettán skipverjum olíu-
flutningaskipsins var bjargað.
Átta skipverja er saknað eftir að
rússneskt flutningaskip sökk á
Kerch-sundi. Öllum skipverjum
annars rússnesks flutningaskips
var bjargað. Skipin voru saman-
lagt að flytja um 6,5 tonn af brenni-
steini.
Olíuflutningaskipið var með
tæplega 4.800 tonn af olíu innan-
borðs. Veðurofsinn kom í veg fyrir
að hægt væri að byrja að hreinsa
upp olíuna úr sjónum í gær og var
mikil hætta á því að meiri olía
myndi leka út úr skipinu að sögn
Olegs Mitvol, yfirmanns umhverf-
iseftirlitsins. Sagði hann að það
myndi taka „nokkur ár“ að hreinsa
upp olíuna.
26 ára gamall Ítali var skotinn til bana í
Toscana í gærdag. Lögregluþjónn hugðist leysa upp
átök milli áhangenda fótboltaliðanna Lazio og
Juventus, sem urðu á áningarstað við þjóðveg í
Toscana.
Ítalska fréttastofan ANSA greindi frá því að
lögregluþjónninn hefði skotið aðvörunarskoti upp í
loftið í tilraun til að binda enda á átökin og að talið
væri að það skot hefði orðið manninum að bana.
Ítalska lögreglan hefur sent út yfirlýsingu þar sem
atvikið er harmað.
Leik Lazio og Inter Milan, sem átti að fara fram í
gær, var frestað vegna dauðsfallsins, en maðurinn
var stuðningsmaður Lazio. Öðrum leikjum var
frestað um tíu mínútur. Stuðningsmenn Juventus
voru hins vegar á leið frá Napólí þar sem liðið hafði
leikið gegn Parma.
Slagsmál milli fótboltabullna á áningarstöðum við
þjóðvegi eru algeng á Ítalíu. Fyrr á þessu ári lést
lögreglumaður í óeirðum eftir leik milli Palermo og
Catana á Sikiley.
Aðdáandi skotinn til bana