Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 8
GIRNILEGIR VEISLUBAKKAR
MEÐ LITLUM FYRIRVARA
5554 6999 | www.jumbo.is
BLANDAÐUR
BAKKI 3.580 kr.
SAMLOKU-
BAKKI 2.890 kr.
TORTILLA
& PÓLARBRAUÐ
3.480 kr. FONDU
SÚKKULAÐIBAKKI
2.950 kr.
32
BITAR
10
MANNS
36
BITAR
36
BITAR
Morgunverðarfundur FVH á Grand Hótel,
miðvikudaginn 14. nóvember kl. 8.30-9.30.
Stefnumót við leiðtoga
William Fall, forstjóri Straums
Skrá›u flig strax – takmarka› sætaframbo›!
Vinsamlega skrái› flátttöku á vef FVH, www.fvh.is, e›a í síma 551 1317.
Ver› með morgunmat kr. 2.000 fyrir félagsmenn FVH og 3.500 fyrir a›ra.
William miðlar af viðamikilli
reynslu sinni sem stjórnandi í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi.
Hann leiddi m.a. alþjóðlega
uppbyggingu eins stærsta banka
veraldar, Bank of America.
• Hvað skiptir mestu máli við
stjórn alþjóðlegra fyrirtækja?
• Hvernig er best að taka á
menningarmun milli landa?
Um William Fall
William var forstjóri alþjóðasviðs Bank of America
frá árinu 2001. Þar hafði hann yfirumsjón með og
bar ábyrgð á allri starfsemi bankans utan
Bandaríkjanna, í alls 18 löndum.
Áður en hann hóf þar störf vann William fyrir
Westpac Banking Corporation og Kleinwort Benson.
Fundarstjóri verður Þröstur Olaf Sigurjónsson,
formaður FVH.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Fullveldi og sjálfstæði
kvenna hefur reynst torsóttara
en fullveldi og sjálfstæði þjóðar-
innar,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, utanríkisráðherra við
lok Kynjafræðiþings Rannsókn-
arstofu í kvenna- og kynjafræð-
um síðustu helgi.
Ráðherra hóf síðasta dagskrár-
lið þingsins með hugleiðingu um
mikilvægi þess að Íslendingar
haldi á lofti umræðu um kynja-
jafnrétti á alþjóðavettvangi.
„Konur annars staðar hafa ekki
háð sína fullveldisbaráttu og það
er eðlilegt að Ísland tali fyrir
kvenfrelsi líkt og það hefur talað
fyrir þjóðfrelsi kinnroðalaus.“
Ráðherra sagði jafnframt að
Íslendingar hefðu þekkingu og
reynslu að miðla á þremur svið-
um. Á sviði stjórnun fiskveiða,
virkjun endurnýjanlegrar orku
og virkjun kvenorkunnar. Jafn-
rétti væri því jafnframt auðlind
sem Íslendingum bæri að nýta.
Fræðimenn við Háskóla Íslands
ræddu í kjölfarið hugmyndir ráð-
herrans. Sigríður Þorgeirsdóttir
heimspekingur viðraði þá hug-
mynd að sett yrði á fót alþjóðlegt
fræðasetur um jafnrétti.
Ráðherra sagðist ætla að skoða
hugmyndina betur og að hún hefði
áhuga á að slíkt fræðasetur fjall-
aði um aðkomu kvenna að friðar-
viðræðum, friðargæslu og upp-
byggingu ríkja eftir stríðsátök.
Silja Bára Ómarsdóttir stjórn-
málafræðingur sagði feminískar
kenningar hafa reynst áhrifarík-
ar í umfjöllun um hernað.
„Ofbeldi gegn einstaklingum er
nú viðurkennt sem hluti af hern-
aði og er það ein merkasta breyt-
ingin sem hefur orðið,“ sagði hún
og benti á að til marks um breytta
hugmyndafræði liti Atlantshafs-
bandalagið nú á sitt helsta hlut-
verk við friðargæslu í Afganistan
að kenna konum að lesa.
Þá var rætt um kröfur stjórn-
valda til annarra ríkja og sagði
Brynhildur Flóvenz lögfræðingur
að skoða þyrfti aðgerðir stjórn-
valda á alþjóðavettvangi.
Brynhildur sagði hættulegt að
ganga inn í hefðir annarra ríkja í
alþjóðasamskiptum stæðust þær
ekki kröfur stjórnvalda. Þá spurði
hún hvernig bregðast eigi við ef
opinber nærvera kvenna misbýð-
ur þeim sem íslenska ríkið á sam-
skipti við.
Að lokum nefndi Lilja Móses-
dóttir hagfræðingur verðugt
rannsóknarefni sem gagnast gæti
konum. Mikilvægt væri að skoða
fríverslunarsamninga milli ríkja
í ljósi ólíkra áhrif á karla og
konur.
Nefndi hún sem dæmi NAFTA-
samninginn milli Bandaríkjanna,
Kanada og Mexíkó, sem hafi
komið illa niður á bæði banda-
rískum og mexíkóskum konum.
Slíkir samningar gætu þó reynst
áhrifamiklir í kvenfrelsisbaráttu.
Jafnrétti er auðlind
Utanríkisráðherra leggur áherslu á kvenfrelsi í alþjóðasamskiptum og telur að
Íslendingar hafi þekkingu og reynslu að miðla í virkjun kvenorkunnar. Fjórir
fræðimenn við Háskóla Íslands lögðu fram ólíkar hugmyndir að slíkri miðlun.
Þátttakendum í orða-
leik á netinu á vegum matarað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna hefur
tekist að safna nægum hrísgrjón-
um til að fæða fimmtíu þúsund
manns í einn dag.
Orðaleikurinn nefnist FreeRice
og reynir hann á orðaforða þátt-
takenda. Fyrir hvert rétt svar í
leiknum lætur heimasíðan nægt fé
að hendi rakna til að kaupa tíu
hrísgrjón. Peningurinn kemur
allur frá fyrirtækjum sem aug-
lýsa á síðunni. Frá því síðan var
stofnuð snemma í október hefur
einn milljarður hrísgrjóna safn-
ast. „FreeRice sýnir vel hvernig
netið getur átt þátt í að vekja fólk
til meðvitundar um helsta vanda-
mál heimsins,“ sagði Josette
Sheeran, yfirmaður mataraðstoð-
arinnar. Bætti hún því við að
bloggarar ásamt heimasíðunum
vinsælu Facebook og YouTube
hefðu átt sinn þátt í að vekja
athygli á verkefninu. „Þessi síða
er algjör markaðssigur,“ sagði
hún.
Upphafsmaður FreeRice er
Bandaríkjamaðurinn John Breen,
sem er mikill frumkvöðull í fjár-
öflunarstarfsemi á netinu.
Netleikur gegn hungursneyð