Fréttablaðið - 12.11.2007, Page 10
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Einar Kristjánsson,
sölumaður hjá RV
Með réttu úti - og
innimottunum
- getur þú stoppað 80%
af óhreinindunum
við innganginn
Á tilboði í októberog nóvember 2007Úti- og innimottur af ýmsum gerðum og stærðum
Wayfarer grá með kanti, 120x180cm
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
„Fjárveitingar til
löggæslu í umdæmi lögreglustjór-
ans á Selfossi hafa ekki lækkað,
heldur hækkað. Hins vegar hafa
sértekjur lækkað.“
Þetta segir Þórunn J. Hafstein
skrifstofustjóri í dómsmálaráðu-
neytinu.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu fyrir skömmu gagnrýnir Lög-
reglufélag Suðurlands litlar fjár-
veitingar ríkisvaldsins til löggæslu
í umdæminu og segir „öryggi íbú-
anna ógnað með ónógri löggæslu á
Selfossi.“
„Forsaga málsins er sú að emb-
ætti lögreglustjórans á Selfossi
sagði upp samningi um sjúkra-
flutninga í september 2005 og
hætti þeim í árslok sama ár,“
útskýrir Þórunn. „Við það losnaði
um lögreglumenn sem áður sinntu
sjúkraflutningunum. Uppsafnað-
ur rekstrarafgangur embættisins
á þessum tíma nam 27 milljónum
króna og nýttist til að greiða lög-
reglumönnum laun, þrátt fyrir að
30 milljónir árlegra tekna vegna
sjúkraflutninga féllu niður.
Frá og með árinu 2006 var fjár-
veiting til embættisins hækkuð
um sjö milljónir króna gagngert
til þess að fjármagna stöðu lög-
reglumanns sem áður féll undir
samning við heilbrigðisráðuneytið
um sjúkraflutninga.“
Sértekjurnar hafa lækkað
Kannabis er það efni
sem flestir þeirra unglinga sem
komu til meðferðar á Stuðlum á
árunum 2003 til 2006 misnotuðu
eða höfðu ánetjast. Næstalgeng-
ustu efnin sem unglingar sögðust
hafa notað daglega voru áfengi
og amfetamín.
Þetta kemur fram í upplýsing-
um meðferðardeildar Stuðla.
Lagðar voru spurningar fyrir 203
unglinga sem fóru þangað í með-
ferð á árunum 2003 til 2006 og
kom í ljós að vímuefnaneysla fór
vaxandi meðal þeirra á þessum
árum. Meðalaldur unglinganna
var um fimmtán ár.
Upplýsingar um vímuefni sem
unglingarnir höfðu notað oftar en
tvisvar skiptust milli áranna
2003-2004 annars vegar og 2005-
2006 hins vegar. Þegar tölurnar
voru bornar saman kom í ljós að á
seinna tímabilinu hafa um 64 pró-
sent drengja notað kannabisefni
oftar en tvisvar á móti 53 pró-
sentum á fyrra tímabili. Meðal
stúlkna var kannabisneyslan
svipuð milli ára eða rétt tæplega
70 prósent en þær neyttu jafna
meira magns vímuefna heldur en
drengirnir.
Þó ber að nefna að skarpur
munur getur verið á hlutföllum
milli ára þar sem um tiltölulega
fáa einstaklinga er að ræða.
Halldór Hauksson, yfirsálfræð-
ingur á Stuðlum, segir að áfengis-
og kannabisneysla hafi farið ört
vaxandi meðal barna sem þangað
koma frá árinu 2003 og amfeta-
mínneysla frá árinu 2005, þá sér-
staklega í aldurshópnum fjórtán
til fimmtán ára. „Athyglisverðast
við þetta er að þau börn sem á
annað borð hafa verið í vanda um
ævina eru líklegri til að neyta
frekar vímuefna en áður var.
Línur hafa því skerpst í þessum
málum því á sama tíma sýna
kannanir að almennt hefur dregið
úr fikti krakka á landinu,“ segir
Halldór. Hann bendir á að flest
þeirra barna sem koma til með-
ferðar eigi sér langa sögu um
vandamál oft löngu áður en fíkni-
efnaneysla þeirra hófst. „Þetta
sýnir okkur hve mikilvægt það er
að bregðast við vandamálum
barna strax með það í huga hve
auknar líkur eru á því að þau leið-
ist út í misnotkun fíkniefna síðar
meir, jafnvel má hafa þetta í huga
þegar þau eru á leikskólaaldri,“
segir hann. Þá segir hann áhyggju-
efni hve aðgengi unglinganna að
vímuefnum virðist hafa aukist.
Vandi verst settra
barna fer vaxandi
Börn sem hafa átt í vanda um ævina eru enn líklegri til að neyta vímuefna en
áður var, þótt almennt hafi dregið úr fíkniefnanotkun unglinga. Sálfræðingur á
Stuðlum segir að þetta verði að hafa í huga þegar tekið er á vanda ungra barna.
Skoðanakannanir í Danmörku benda
til að Nýtt bandalag, miðjuflokkur sem stofnaður
var í maí síðastliðnum að frumkvæði þingmannsins
Nasers Khader, komist í oddaaðstöðu um myndun
næstu ríkisstjórnar eftir þingkosningarnar á
þriðjudaginn.
Samkvæmt niðurstöðum síðustu kannana nú fyrir
helgi mælast flokkarnir að baki núverandi ríkis-
stjórn Anders Fogh Rasmussen – Venstre, Íhalds-
flokkurinn og Danski þjóðarflokkurinn – með
samtals 47 prósenta fylgi, sem ekki myndi duga til
að tryggja þeim áframhaldandi þingmeirihluta.
Vinstriflokkarnir mælast með samtals 40 prósent
en Nýtt bandalag fimm prósent.
„Við óskum okkur þess að fá ríkisstjórn í kringum
miðjuna,“ hefur fréttastofan AP eftir Khader, sem
er af sýrlenskum uppruna og þekktur talsmaður
hófsamra múslima í Danmörku. Yfirlýst höfuð-
markmið hans í kosningabaráttunni er að binda
enda á þau miklu áhrif sem Danski þjóðarflokkur-
inn hefur haft í krafti þess að sjá Fogh fyrir
þingmeirihluta tvö kjörtímabil í röð.
Khader var í þrettán ár meðlimur Flokks róttækra
í Danmörku, sem skipaði stórt hlutverk í dönskum
stjórnmálum til ársins 2001. Eftir það gekk Khader
til liðs við Nýja bandalagið þar sem hann lætur nú til
sín taka.
Khader spáð oddaaðstöðu