Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 18
Hvar er líklegra að finna ís-
lenska húsgagnasmíði í háum
gæðaflokki en á Smiðjuvegin-
um í Kópavogi? Þar er Axis,
eitt elsta innréttingaverkstæði
landsins. Völundur ljósmyndari
leit þar inn.
„Staðlaðar einingar eru meginuppi-
staðan í okkar framleiðslu og við
framleiðum mjög breiða línu af
þeim. Þær eru allar smíðaðar hér á
Smiðjuveginum. Við erum hér í
rauðu götunni með honum Geira!“
segir Hlynur Þór Sveinbjörnsson
hlæjandi. Hann er sölufulltrúi hjá
Axis og tekur fram að fyrirtækið
fáist við sérsmíði líka. Nefnir sem
dæmi að ýmsir bæti sérsmíðuðum
glerskápum, vínrekkum og fleiru
við staðlaðar eldhúsinnréttingar
sem byggt sé á. „Eldhúsinnrétting-
ar er hægt að fá í hvaða viðarteg-
und sem er en við erum með þrjár á
lager,“ segir Hlynur. Hann nefnir
lakkað tekk sem vinsælt sé í eld-
húsin og segir fólk gjarnan blanda
saman tekki og hvítum sprautu-
lökkuðum viði.
Fataskápar eru til í fjórum viðar-
tegundum á lager í Axis. Þær eru
mahóní, eik, ölur og kirsuber. „Við
erum líka að taka inn tekk því eftir-
spurn eftir því er alltaf að aukast
og um áramótin verðum við komin
með það á lager,“ upplýsir Hlynur.
Axis er langlíft fjölskyldufyrir-
tæki. Axel Eyjólfsson stofnaði það
árið 1935 á Akranesi og nýlega tóku
Eyjólfur og Gunnar Eyjólfsson við
því sem þriðja kynslóð eigenda.
„Þetta er með elstu innréttinga-
fyrirtækjum á landinu og hér hefur
íslensk hönnun verið þróuð um
árin,“ segir Hlynur Þór að lokum.
Heimasíðan er www.axis.is
Erum í rauðu götunni
með honum Geira
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25