Fréttablaðið - 12.11.2007, Qupperneq 54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Sjónvarpsmaðurinn Oddur Ástráðsson er nýkominn
heim frá Malaví í Afríku þar sem hann dvaldi í sex
daga ásamt Einari Árnasyni tökumanni til þess að
taka upp efni fyrir Ísland í dag. „Við fórum út á
vegum SPRON og Hjálparstarfs kirkjunnar,“ segir
Oddur. „Við ferðuðumst meðal annars um hérað
sunnarlega í landinu þar sem fátækt er fram úr hófi
mikil. Þar heimsóttum við þorp þar sem fólk býr í
leirkofum með stráþökum, borðar eina máltíð á dag
og þarf að labba langar leiðir til að fá vatn. Þú
finnur ekki mikið verra ástand í heiminum.“
Oddur hefur ekki komið áður til Afríku og hann
segir Malaví vera ólíkt öllu því sem hann hefur áður
upplifað. „Allar þær hugmyndir sem ég hafði um
ástandið hafa breyst. Það er eiginlega ekki hægt að
segja frá þessu, hver og einn þarf að upplifa fyrir
sig. Ég hafði fremur óljósar hugmyndir fyrir
komuna til landsins, sá tölur á borð við þær að allt
að 30 prósent íbúanna væru með alnæmi, að
helmingur þjóðarinnar væri börn undir fimmtán ára
aldri og að meðaltekjur á Malava væru innan við
hálfur dollari á dag. Maður reynir af fremsta megni
að búa til mynd af þessu í höfðinu en það er ekki
hægt að líkja því saman við að upplifa það.“ Þegar
Oddur er inntur eftir því hvort hann hyggist
heimsækja landið aftur er hann snöggur til svars.
„Ekki spurning. Þetta er ekki eitthvað sem ég var að
gera í fyrsta og síðasta skipti.“
Ólýsanleg upplifun í Afríku
„Ég verð í viðtali við BBC í dag,
hvenær það verður spilað er hins
vegar ekki alveg komið á hreint,“
skrifar Leoncie en hún búin að
gefa út nýja geisladisk sem ber
hið skemmtilega heiti Pukki Bolly-
wood Baby. Diskurinn er stútfull-
ur af nýjum
slögurum frá
indversku prinsesunni og hún
hafði ekki mikinn tíma til að ræða
útgáfu hans, hafði ákaflega ann-
ríkt. Leoncie hefur öðru hvoru
skotið upp kollinum og margir
muna eflaust eftir því þegar hún
birtist eins og skrattinn úr sauða-
leggnum í X-factor þætti Simon
Cowell og hlaut öllum að óvörum
ekki náð fyrir augum dómnefnd-
ar.
Leoncie býr nú í Bretlandi,
nánar tiltekið í Essex ásamt eigin-
manni sínum Viktori Albertssyni
en hún sagði skilið við Sandgerði
eftir nokkur leiðindamál eins og
frægt er orðið. Viktor fær að sjálf-
sögðu lag á nýja diskinum en
Leoncie talar tungum á honum,
syngur bæði á Hindi og Konkani
auk þess sem nokkur laganna eru
á íslensku og að sjálfsögðu ensku.
Meðal annarra laga má sjá titla
á borð við Engin Prikantur hér þar
sem Leoncie syngur um að hún sé
eðlileg kona með eðilegar þarfir
og Legend Killer. En athyglisverð-
asta lagið er án nokkurs vafa Pól-
itískar leikbrúður þar sem Leonc-
ie lýsir lífinu á Íslandi, þar drekki
fólk og drukkni í skuldum og að
þar sé rekið hálfgert þrælahald.
Diskinn má nálgast á heimasíð-
unni cdbaby.com/cd/leoncie5.
Leoncie syngur um drykkju og þrælahald
„Uppi á Sjónvarpi hlustum við
alltaf á Rás 2. Þessa daga er
ég ansi upptekin við að mála
tónlistarfólk fyrir myndatökur,
og þá er vinsælt að hlusta
á viðkomandi flytjanda á
meðan.”
Bandaríska ungstirnið Paul Dano er
talinn leiða kapphlaupið um að taka
við af Ryan Goosling í næstu kvik-
mynd Dags Kára, Good Heart. Þórir
Snær Sigurjónsson, framleiðandi
myndarinnar, vildi ekkert tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir
því en getgátur hafa verið uppi um að
Dano taki hlutverkið að sér á kvik-
myndavefnum imdb.com. Þórir sagð-
ist ekkert vilja segja en bæði Goosling
og tónlistarmaðurinn Tom Waits hafa
sagt sig frá myndinni sökum anna.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Dano
tekist að tryggja sér hlutverk í nokkr-
um bitastæðum kvikmyndum en hann
lék til að mynda eitt aðalhlutverkanna
í Óskarsverðlaunamyndinni Little
Miss Sunshine. Þá er Dano í einu af
aðalhlutverkunum í nýjustu kvikmynd
Pauls Thomas Anderson þar sem hann
leikur á móti Daniel Day Lewis en auk
þess hefur honum brugðið fyrir í sjón-
varpsþáttaröðinni Sopranos. Þá var
hann nýlega ráðinn til að leika í nýj-
ustu kvikmynd Spike Jonze en þar
verður hann ásamt James Gandolfini
og Forest Whitaker.
Skúli Malmquist, samstarfsfélagi
Þóris í ZikZak, var nýlega í viðtali hjá
Norræna sjónvarps-og kvikmynda-
sjóðnum og þar upplýsti hann að
þekktur bandarískur leikari hefði
samþykkt að leika í myndinni sem
rennir enn frekari stoðum undir hlut
Pauls Dano. Aðrir leikarar í myndinni
yrðu hins vegar evrópskir. Einnig lét
Skúli þess getið að mikil eftirvænting
ríkti í kringum Good Heart enda verð-
ur hún fyrsta mynd Dags á ensku.
Jafnframt kom fram að myndin
myndi kosta rúmar tvö hundruð og
tuttugu milljónir íslenskra króna eða
2,6 milljónir evra. Eftir því sem Frétta-
blaðið kemst næst kemst Good Heart í
hóp dýrustu kvikmynda í íslenskri
kvikmyndasögu. Til samanburðar má
nefna að Mýrin kostaði einungis 150
milljónir. Skúli nefnir einnig í við-
talinu að myndin yrði að mest-
um hluta tekin á Íslandi,
þar á meðal á hinu gamla
vallarsvæði Bandaríkja-
hers í Keflavík en einn-
ig í stórborginni New
York.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki