Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 1
47.993 fleiri lesa Fréttablaðið
Rúmlega 56.000 fleiri lesa Fréttablaðið en 24 stundir
Fréttablaðið er langmest lesna dagblað landsins, það eina sem kemur út alla daga vikunnar. Þar má finna skýrar og grein-
argóðar fréttir og kjarnyrta þjóðfélagsumræðu. Fjölbreytt og spennandi sérblöð fylgja á hverjum degi, um menningu,
viðskipti, íþróttir og dægurmál. Lesendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir opna Fréttablaðið.
Allt sem þú þarft...
...alla daga
24 stundir
90.760 manns
Morgunblaðið
98.960 manns
Fréttablaðið
146.953 manns
Miðað við meðallestur á tölublað, þriðjudag til laugardags, 12–80 ára fyrir allt landið.
Halla Vilhjálmsdóttir er hæst-ánægð með appelsínurauðakápu sem hún hafði mikið fyrirað eignast.
Halla reynir þessa dagana að bæta litríkum fötum í fataskápinn sinn og brjóta upp svarta litinn í lífi sínu. Hún hafði mikið fyrir því að eignast appelsínurauða kápu í stað þess að sitja uppi með svarta. „Ég er mjög hrifin af versluninni Coast í Smáralind og rak augun í appelsínurauða sixtís-kápu þar fyrir skemmstu. Þegar ég ætlaði að skella mér á hana komst ég að þvíað hún var frátekin í mínu númeri. Ég fór í fýlu og endaði á því að kaupa mér svarta,“ segir söng- og leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir. Hún sá þó svo mikið eftir rauðu kápunni að hún tók þá svörtu ekki einu sinni upp úr pokanum. Hún segist svo hafa hringt í búðina báðadagana sem kápan var frátekin ogendaði á því að mæta þangað korterfyrir sjö síðasta daginn til að athugahvort hún yrði sótt. „Þegar fröken-in lét ekki sjá sig fyrir lokun fékk ég að skipta þeirri svörtu,“ segirHalla. „Ég fékk þó pínu samvisku-bit og sagði afgreiðslustúlkunni að ég myndi nú skila kápunni ef konan kæmi strax næsta dag.“ Halla seg-ist svakalega ánægð með kápunaog finnst gaman að máta við hana húfur og hatta.Í Guildford-leiklistarskólanum í London, þar sem Halla stundaðileiklistarnám, var eingöngu leyfi-legt að vera í svörtum fötum. „Þetta var eins konar skólabúningur og íraun alveg skiljanlegt því maður þarf að vera eins og óskrifað blaðog erfitt að taka mark á manneskju í bleikum magabol,“ útskýrir Halla og átti hún ekkert nema svart í fata-skápnum „Meira að segja lopapeys-urnar sem mamma prjónaði á migvoru svartar.“ Í seinni tíð s ihún þó
Appelsínurauða kápan
uppáhaldsflíkin núna
Hjólabrettakappar
og ungbarnarokk
kópavogurMIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2007
MYNDINA TÓK GUNNAR V. ANDRÉSSON AF VERKI ÁN TITILS EFTIR GERÐI HELGADÓTTUR MYNDHÖGGVARA..
Guðrún Gunnarsdóttirvill fleiri græn svæðiBLS. 6
Þessa
dagana fara
fram viðræður
um að leikur
Íslendingalið-
anna Flensburg
og Gummers-
bach verði
leikinn á Íslandi
2. febrúar í
Egilshöll.
Ef af verður munu allt að fimm
Íslendingar taka þátt í leiknum.
Íslendingaslagur
í Egilshöll?
Orkuveita Reykjavíkur er byrjuð að greiða
sveitarfélaginu Ölfusi eftir samningi um virkjanir á
Hellisheiði og Hengilssvæðinu. Sveitarfélagið fær
samkvæmt honum 45 milljónir til að mæta „umsvif-
um og álagi á bæjarstjórn og bæjarstjóra“. Þær
greiðslur verði nýttar til að „afgreiðsla umsagna og
leyfa verði eins hröð og hægt er“.
Samningurinn var samþykktur af bæjarstjórn 27.
apríl í fyrra og hljóðar upp á 500 milljónir, að mati
sveitarfélagsins. Hann kveður á um að sveitar-
félagið veiti Orkuveitunni framkvæmdaleyfi og
greiði fyrir skipulagsmálum eins hratt og unnt er.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveit-
unnar, efast um að samkomulagið hljóði upp á hálfan
milljarð en hefur ekki aðra tölu á reiðum höndum.
Það sé ekki venja fyrirtækisins að greiða allan
kostnað fyrir sveitarfélög „en þegar menn huga á
framkvæmdir í tiltölulega fámennu sveitarfélagi og
þær kalla á aðkeypta vinnu, þá hefur ekki verið talið
óeðlilegt að framkvæmdaaðili beri kostnað af því“.
Fyrirtækið sé þó ekki að kaupa sér skipulag í
sveitarfélaginu.
Orkuveitan heitir að „bera allan kostnað af
hugsanlegum málaferlum og skaðabótakröfum“
vegna framkvæmdanna. Hún lýsir Þrengslaveg,
reisir nýja fjárrétt og hesthús og leggur 75 milljónir
til skógræktar. Að auki verður ljósleiðari lagður.
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Land-
verndar, segir samninginn ekki auka traust sitt á
vinnubrögðum Orkuveitunnar. „Það má lesa út úr
þessu að Orkuveitan hafi keypt sér skipulag og
framkvæmdaleyfi. Það er brýnt að stýrihópurinn
sem fer yfir málefni Orkuveitunnar taki þetta til
skoðunar,“ segir hann.
45 milljónir flýta
framkvæmdaleyfi
Orkuveitan er byrjuð að greiða inn á samning, sem sveitarstjórn Ölfuss metur
á hálfan milljarð, vegna framkvæmdaleyfis og skipulagsmála. Leyfisveitingum
verður hraðað, enda greiðir fyrirtækið fyrir aukið álag á bæjarstjórnina.
Ef allt gengur að óskum
hjá tónleikahöldurum stóru
jólatónleikanna, Björgvins
Halldórssonar og Frostrósa, munu
átján þúsund Íslendingar leggja
leið sína í Laugardalinn á einni
viku til að hlýða á jólatónlist.
Miðaverð á tónleikana er á bilinu
7-8 þúsund krónur og sé reiknað
eftir meðalverði kemur í ljós að
heildarinnkoman verður um 120
milljónir íslenskra króna.
120 milljóna
hátíðarskap
Nauðgunin, sem
rúmlega fertug kona hefur kært og
tveir karlmenn sitja í gæsluvarð-
haldi fyrir, var afar hrottafengin,
að því er fram kemur í gæsluvarð-
haldsúrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Konan var á skemmtistað þar
sem hún hitti tvo litháíska ríkis-
borgara, að því er hún lýsir í
skýrslutöku hjá lögreglu. Mennirn-
ir réðust síðan á hana í húsasundi
við gatnamót Laugavegar og
Vitastígs með grimmdarlegum
hætti og nauðguðu henni. Hún segir
mennina hafa hlegið að sér bæði
meðan á ofbeldinu stóð og á eftir.
Hrottafengið
ofbeldisverk
Eigendur Austur-
strætis 16, þar sem nú er veitinga-
staðurinn Apótekið, hafa fengið
leyfi skipulagsráðs Reykjavíkur
til að breyta húsnæðinu þannig að
þar verði skemmtistaður í stað
veitingahúss.
Skipulagsráð vill að tryggt verði
að veitingastarfsemi verði í hús-
inu yfir daginn og að útliti hússins
verði ekki breytt á neinn hátt, til
dæmis með því að byrgja glugga.
Til að tryggja þetta á byggingar-
fulltrúi að setja slík skilyrði við
útgáfu byggingarleyfisins auk
þess að þinglýsa þeim á eignina.
Minnihluti Sjálfstæðisflokksins
sagði þessa breytingu „á einu mikil-
vægasta horni miðborgarinnar“
ekki vera farsæla en sátu hjá við
afgreiðslu þess. „Starfsemi og
þjónusta sem hefði tryggt að húsið
væri opið almenningi á daginn
hefði verið mun æskilegri í þessu
merka húsi í hjarta Reykjavíkur.
Borgaryfirvöld virðast hins vegar
ekki hafa lagalegar forsendur til
að synja umsókn um rekstur nætur-
klúbbs á þessum stað,“ segir í
bókun sjálfstæðismanna.
Kvöð um matsölu að degi til