Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 40
15. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið kópavogur
Reyni Carli Þorleifssyni bak-
ara var ekki spáð góðu gengi
þegar hann opnaði bakarí á
Dalvegi í Kópavogi. Nú eru
bakaríin orðin þrjú og svo
getur farið að hann opni það
fjórða í Bandaríkjunum er fram
líða stundir.
Reynir Carl Þorleifsson bakari
hefur séð Kópavogsbúum fyrir
kökum og kræsingum síðan árið
1994, en þá hóf hann rekstur á
bakaríinu Reynir bakari á Dalvegi
4 ásamt eiginkonu sinni, Jennýju
Þóru Eyland. Margir spáðu bakar-
íinu reyndar skammlífi og þá helst
vegna staðsetningar. En áhætt-
an borgaði sig og nú eru bakaríin
orðin þrjú.
„Ég var búinn að hvíla mig á
bakstri í nokkur ár, en fann þörf-
ina að nýju og fór að skoða skipu-
lagið í Kópavogi. Þá sá ég að Dal-
vegur yrði aðalæð í Kópavogi í
framtíðinni. Svo fann ég hérna hús
í hverfinu sem stóð autt og falað-
ist eftir því að fá það leigt. Þá var
bara hlegið að mér, þar sem hér
var ekkert í kring,“ rifjar Reyn-
ir upp.
Ekki stóð þó á því að Reynir
fengi húsnæðið leigt undir starf-
semina og þremur árum eftir
opnun keypti hann það. Fyrstu
árin virtust hrakspárnar þó ætla
að rætast því ekki var sála á kreiki.
Til marks um það segir Reynir eig-
inkonuna, sem sinnti afgreiðslu-
störfum, aldrei hafa prjónað jafn
margar lopahúfur um ævina.
„Þetta breyttist síðan með bygg-
ingu Smáratorgsins,“ heldur hann
áfram „Þá fór allt á fullt skrið og
nú eru viðskiptin alltaf að aukast.
Svo hefur byggð risið hér í kring,
sem breytti ýmsu.“
Aðspurður hvað Kópavogsbúar
séu helst sólgnir í, svarar Reyn-
ir að það séu ekki sætindin eins
og margan gæti grunað, heldur
brauðin. „Þau njóta vaxandi vin-
sælda. Við erum alltaf að auka
fjölbreytnina og bjóðum nú upp
á speltbrauð og alls kyns korna-
brauð. Fyrir fimmtán árum þýddi
ekki að bjóða fólki slíkt. Nú eru
brauðin aðalsöluvaran.“
Innflutt vara er í algjöru lág-
marki í bakaríinu enda segist
Reynir vilja skapa sér sérstöðu
með því að baka flest á staðnum.
Svo virðist sem bragðið hafi hrifið
þar sem Reynir rekur nú tvö bak-
arí í Kópavogi, en hitt er í Hamra-
borg, og það þriðja á Flórída í
samstarfi við fleiri. Var það opnað
í vor við ágætis undirtektir. „Við
ætluðum að fara út í heilsuvöru en
Bandaríkjamenn eru miklir sæl-
kerar; fara í kleinuhringi á morgn-
ana, ólíkt okkur sem kaupum rún-
stykki og brauð. Þeir eru þó hrifn-
ir af ýmsu hjá okkur.“
Að svo sögðu má Reynir ekki
vera að því að spjalla lengur. Það
er brjálað að gera á Dalvegi og
síðan er bakarinn að undirbúa ferð
til Bandaríkjanna sem gæti leitt
til þess að hann opnaði þar annað
bakarí. Hann vill þó ekki fara
nánar út í það að sinni, en lofar að
láta vita hvaða stefnu málin taka.
- rve
Áhættan margborgaði sig
Hjónin Reynir Carl Þorleifsson bakari og Jenný Þóra Eyland reka bakaríið Reyni bakara í Kópavogi. Flestir spáðu því skammlífi en þær hrakspár gengu ekki eftir og hafa þau
hjónin ekki undan við að afgreiða alls kyns kræsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hillurnar svigna undan alls konar kræs-
ingum, þar á meðal rjómakökum og
öðrum sætindum.
Í Kópavogi eru starfrækt tvö fé-
lagsheimili þar sem félagsstarf
aldraðra fer fram. Félögin heita
Gjábakki og Gullsmári og er opið
frá klukkan 9 til 17 alla virka
daga.
Þar er hægt að setjast niður
yfir kaffibolla og heimabökuðu
meðlæti, lesa dagblöðin, horfa á
sjónvarp, hlusta á útvarp og ræða
málin.
Þá er einnig boðið upp á fjöl-
breytt félags- og tómstundastarf
og má þar nefna Söngvini, sem er
kór aldraðra í Kópavogi, handa-
vinnu, líkamsrækt og áhugamanna-
hópa þar sem fólk með ákveðin
áhugamál vinnur á sínu sviði.
Hádegisverður er framreiddur
frá 11.40 til 12.20 alla virka daga
en hann þarf að panta fyrir klukk-
an 10. Eins er hægt að fá hádegis-
mat sendan heim.
Félagsheimilin eru opin fólki á
öllum aldri, óháð félagsaðild, en
sú starfsemi sem er niðurgreidd
er eingöngu ætluð eldra fólki sem
búsett er í Kópavogi. - ve
Félagsstarf
aldraðra
Hægt er að fá útrás fyrir áhugamálin í
Gullsmára, félagsmiðstöð fyrir aldraða
sem rekin er í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óhætt er að segja að dagskráin í
tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi
hafi verið með fjölbreyttara móti í
nóvember og þar virðist ekki ætla
að verða neitt lát á.
Meðal þess sem boðið verð-
ur upp á í mánuðinum eru hljóm-
sveitin Mannakorn, sem spilar í
kvöld, 15. nóvember, söngtónleik-
ar með lögum Atla Heimis Sveins-
sonar við ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar, þar sem flytjendur verða
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran-
söngkona og Eyjólfur Eyjólfs-
son tenór, útgáfutónleikar Leone
Tinganelli, píanótónleikar Liene
Circene, Fagott í forgrunni og
fleira.
Ekki verður slegið slöku við
í desembermánuði en þá verður
boðið upp á einleikslög eftir Jón
Ásgeirsson tónskáld og tónleikana
„… víst er Albeniz betri en Bach
…“ með Jóni Guðmundssyni gítar-
leikara.
Það er því um að gera að kíkja á
einhvern af hinum fjölbreyttu og
skemmtilegu dagskrárliðum sem
Salurinn hefur upp á að bjóða.
- hs
Eitthvað fyrir
alla í nóvember
Margt er á döfinni hjá Salnum í Kópa-
vogi þar sem allir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Hér má sjá kvennasveit Gerplu en meðlimir í félaginu stóðu sig með glæsibrag á
alþjóðlega mótinu Malar Cup sem fór fram í Stokkhólmi á dögunum.
Iðkendur úr meistarahópi í
áhaldafimleikum í íþrótta-
félaginu Gerplu í Kópavogi
þóttu standa sig með sóma á
alþjóðlega mótinu Malar Cup
sem haldið var í Stokkhólmi
fyrir skemmstu. Heimamenn
mega vera stoltir af sínu
fimleikafólki.
Iðkendur úr meistarahópi í
áhaldafimleikum hjá Ger-
plu stóðu sig með glæsibrag á
alþjóðlega mótinu Malar Cup
í Stokkhólmi á dögunum. Átta
strákar og fimmtán stúlkur
kepptu á mótinu og unnu stúlk-
urnar til silfurverðlauna í liða-
keppninni en alls tóku 24 lið þátt
í mótinu.
Thelma Rut Hermannsdóttir
varð önnur í fjölþraut á mótinu
og var önnur tveggja sem náðu að
komast í úrslit á öllum áhöldum.
Hún vann til bronsverðlauna á tví-
slá og hafnaði í fjórða sæti á gólfi
og slá, auk þess að verða í fimmta
sæti í stökki.
Sigrún Dís Tryggvadóttir varð í
sjöunda sæti í fjölþraut og komst í
úrslit bæði á gólfi og slá þar sem
hún hafnaði í sjötta og fimmta
sæti. Þá komst Harpa Dögg Stein-
dórsdóttir í úrslit á tvíslá og
náði þar fimmta sæti. Loks náði
Linda Björk Árnadóttir frábær-
um árangri á mótinu miðað við að
keppa þar á sínu fyrsta alþjóðlega
móti og náði sjötta sætinu í stökki.
Strákarnir voru með tvö lið á
mótinu og lentu í sjöunda og fjór-
tánda sæti í liðakeppninni.
Ingvar Jochumsson vann brons-
verðlaun í fjölþraut og varð sjötti
í fjölþraut og félagi hans Magnús
Jónasson varð í sjötta sæti í fjöl-
þraut.
Árangur Gerplu á mótinu var
því allur til fyrirmyndar og stóðu
íslensku keppendurnir sig með
miklum glæsibrag. Nánar á vef-
síðu Gerplu, www.gerplu.is. - sig
Góður árangur Gerplu