Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Mér finnst ofsa skemmtilegt
að fara á Krua Thai mat-
söluna og fá mér grænan
karrírétt og fleira góðgæti. Þar
er maturinn mjög bragðgóður
og ódýr.“
Það verða hljómsveitirnar Gus-
Gus og Nýdönsk sem munu sjá um
tónlistina í brúðkaupsveislu þeirra
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Ingibjargar Pálmadóttur sem
hefur verið nefnt „brúðkaup
aldarinnar“ og fer fram í Hafnar-
húsinu á laugardag. Öllu verður til
tjaldað í veislunni, sem samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Frétta-
blaðsins er alfarið skipulögð af
breska viðburðafyrirtækinu élan.
Vígslan sjálf mun fara fram í Frí-
kirkjunni og að því er fram kemur
á vísi.is mun sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson gefa brúðhjónin
saman.
Þeir sem að brúðkaupinu koma
á einn eða annan hátt virðast vera
bundnir algjörri þagnarskyldu
hvort sem um er að ræða prestinn,
boðsgesti eða starfsfólk – allir eru
þögulir sem gröfin. Þegar Frétta-
blaðið hafði samband við höfuð-
stöðvar élan baðst starfsstúlkan
afsökunar í tvígang og lagði á eftir
að erindið hafði verið borið upp,
það er þegar spurst var fyrir um
viðburðinn sem fyrirtækið hefði
skipulagt í Reykjavík. Élan er
bæði þekkt og virt fyrirtæki sem
hefur skipulagt viðburði um allan
heim. Meðal viðskiptavina eru
Christian Dior, Topshop, Barbie,
Revlon, Tommy Hilfiger og loks
Baugur Group.
Jón Ásgeir hefur augljóslega
verið ánægður með þau störf sem
élan hefur innt af hendi fyrir Baug
því samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins sér fyrirtækið um allt frá
blómaskreytingum til hljóðkerfis í
veislunni. Erlendir kokkar á vegum
élan munu svo sjá um veitingarnar.
Élan leigir hljóðkerfið af Exton en
Rúnar Örn Friðriksson, afgreiðslu-
stjóri Exton, sagðist eins og aðrir
vera bundinn algjörri þagnar-
skyldu. Þegar hann var spurður
hvort fyrirtækið hefði áður útveg-
að stór hljóðkerfi í brúðkaup sagði
hann: „Við höfum tekið að okkur
alls konar verkefni.“ Heimildir
Fréttablaðsins herma að nær allur
mannafli Exton hafi unnið við brúð-
kaupið frá því í byrjun vikunnar og
að leiga hljóðkerfisins kosti ekki
undir 2 milljónum króna.
Hljómsveitirnar GusGus og
Nýdönsk hafa sem fyrr segir verið
ráðnar til þess að skemmta í brúð-
kaupinu. Undanfarið hefur verið
uppi þrálátur orðrómur þess efnis
að Daníel Ágúst Haraldsson muni
ganga til liðs við Nýdönsk að nýju.
Hann vildi ekki staðfesta þetta í
samtali við Fréttablaðið en sagðist
þó myndu taka lagið með gömlu
félögunum í brúðkaupinu.
Sannkallað jólatónleikaæði hefur gripið
íslensku þjóðina og keppast tónleikahaldarar
við að bæta við tónleikum og anna þannig eftir-
spurn. Þriðju tónleikunum hefur nú verið bætt
við hjá bæði Frostrósum og Björgvin Halldórs-
syni í Laugardalshöll í næsta mánuði.
Ef allt gengur upp munu því á einni viku
átján þúsund Íslendingar leggja leið sína í
Laugardalinn á þessa tónleika. Miðaverð á tón-
leikana er á bilinu 7-8 þúsund krónur og sé
reiknað eftir meðalverði verður heildarinn-
koman þá um 120 milljónir íslenskra króna. Séu
tónleikar Frostrósa úti á landi teknir með í
reikninginn má reikna með að yfir tuttugu þús-
und Íslendingar borgi sig inn á jólatónleika um
miðjan desember. Jólin hefjast því snemma á
Fróni í ár.
Samúel Kristjánsson hjá Frostrósum segir
þetta sanna fyrir fullt og allt að markaður sé
hérlendis fyrir slíkum stórtónleikum. Frostrós-
ir riðu á vaðið með jólatónleika af þessari
stærð árið 2005 og hefur það sýnt sig að
Íslendingar eru til í að greiða dágóða
summu fyrir að koma sér í hátíðarskapið.
Uppselt var á tónleikana í fyrra og í ár
stefnir í metaðsókn. Samúel reiknar með
að yfir ellefu þúsund muni hlusta á Frost-
rósir, bæði í höfuðborginni og
úti á landi.
Ísleifur B. Þórhallsson
segir að viðtökurnar við
tónleikum Björgvins séu
einstakar og það hljóti að
heyra til undantekninga
að einn tónlistarmaður
fylli Laugardalshöllina jafn
oft á bara einu og hálfu ári.
„Honum er að takast að
selja upp á sex tónleika í
Laugardalshöllinni á
þessum tíma,“ segir
Ísleifur en Björgvin fór
létt með að selja alla
miða á tónleika sína
og Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar síð-
asta haust.
Borga 120 milljónir fyrir jólatónleika
Kadiljákurinn sem rithöfundarnir Ólafur Gunnarsson
og Einar Kárason ásamt útgefandanum Jóhanni Páli
Valdimarssyni þeystust í um Bandaríkin þver og
endilöng hefur loksins verið seldur eftir
mikla þrautagöngu. Ólafur segist nánast
hafa heimt hann úr helju fyrri kaupanda
sem þó borgaði aldrei bílinn og
drossían er nú loks komin í réttar
hendar.
„Bíllinn varð eftir í Ameríku eftir
ferðina og þar var bandarískur
náungi sem hafði mikinn áhuga á
honum og vildi mjög gjarnan kaupa hann,“
segir Ólafur en sá reyndist hins vegar hið
mesta fól og greiddi aldrei umsamda upphæð.
Eftir töluvert þóf, í kringum sjö
hundruð tölvupósta, tókst hins vegar að frelsa bílinn og
Ólafur setti Kadiljákinn aftur á sölu og nú á netinu.
En bíllinn var ekki sá sami og skáldið hafði skilið við
hann eftir ferðina miklu. Rúður höfðu verið brotnar og
svo virtist sem útigangsmaður hefði hreiðrað um sig í
honum með tilheyrandi óþrifnaði og matarleifum.
En Ólafi til mikillar undrunar seldist bíllinn og
reyndist kaupandinn vera náungi frá New
Hampshire sem tók til óspilltra málanna,
hreinsaði bílinn og lagaði olíulekann sem hafði
reynt æði mikið á taugar íslensku ferðalanganna
í ferðinni. „Og lausnin reyndist vera gúmmí-
hringur upp á þrjá dollara eða 180 krónur,“
segir Ólafur og skellir upp úr. Hann
vildi ekki gefa upp kaupverðið. „Við
kölluðum okkur Rolling Stones on Tour
meðan á ferðinni stóð og ég er hræddur
um að ef verðið spyrðist út þá kæmi upp
tónlistarlegur ágreiningur.“
Ameríkukaggi skáldanna seldur