Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 22
hagur heimilanna
Hreinræktaður bastarður á spottprís
Just4Kids var oftast með
lægsta verðið í verðkönnun
Fréttablaðsins á leikföng-
um. Toys „R“ Us var oftast
með hæsta verðið. Fátt
af þeim leikföngum sem
kanna átti voru til í Leik-
bæ, sem er í sömu eigu og
Just4Kids.
Mestu munar á verði á Barbie
Island Princess-dúkku, sem kallast
Rosella, af þeim leikföngum sem
Fréttablaðið kannaði verðið á í
fjórum verslunum sem selja leik-
föng. Í Hagkaupum kostaði hún
3.999 krónur, en 2.980 krónur í
Just4Kids. Munurinn er því 1.019
krónur. Á öðrum vörum munaði
mun minna, allt niður í níu króna
verðmun á Öskubusku Barbie
Disney-prinsessu. Í Toys „R“ Us og
Hagkaupum kostaði Öskubuska
1.999 krónur en 1.990 krónur í
Just4Kids.
Hvorug dúkkan var til í verslun-
um Leikbæjar, en bæði var farið í
Leikbæ í Kringlunni og Leikbæ í
Smáralind. Af sex leikföngum var
reyndar aðeins til eitt í Leikbæ í
Smáralind, Lego Bionicle Barraki,
en í Leikbæ í Kringlunni var einnig
til Playmobil-sjóræningjaeyja.
Úrval af leikföngum í Leikbæ var
mun minna en í öðrum verslunum
sem farið var í og voru bæði leik-
föngin með hæsta verðið.
Fjögur leikföng af sex voru
ódýrust í Just4Kids, sem var opnuð
um síðustu helgi í Garðabæ. Lego
Bionicle Barraki var ódýrari í Hag-
kaupum og ekki var til Littlest Pet
Shop-dreki, eða annað sambærilegt
Littlest Pet Shop-leikfang, en þau
eru vinsæl meðal ungra stúlkna.
Einungis var hægt að kaupa slík
leikföng í stærri pakkningum. Þá
var í einu tilfelli, Rosella Barbie
Island Princess, dýrara þegar kom
að kassa en auglýst var í hillu og
munaði þar um 300 krónur.
Vöruúrvalið er mikið í Just4Kids,
þar má meðal annars finna veru-
legt magn af sælgæti sem stillt er
upp við afgreiðslukassana.
Í fjórum tilfellum var hæsta
verðið í Toys „R“ Us í Kópavogi. Þá
var Playmobil-sjóræningjaeyja
ekki til í versluninni. Af þeim leik-
föngum sem verðið var kannað á
var það aðeins Rosella Barbie
Island Princess sem ekki var dýrust
í Toys „R“ Us. Á strimlinum kemur
þó fram að verð á dúkkunni eigi að
vera 3.999 krónur en gefinn er 1.000
króna afsláttur. Nokkur misbrestur
var á í versluninni að upplýsingar
um verð væru auglýstar í hillum.
Fimm leikföng af sex voru til í
Hagkaupum. Þar af voru tvö leik-
föng dýrust og tvö ódýrust. Auglýst
hilluverð á Lego Bionicle Barraki
var 1.499 krónur, en rukkað var um
1.149 krónur.
Farið var í allar verslanir um
hádegi á þriðjudag. Tekið var niður
hilluverð, þar sem það sást, og
einnig fenginn útskriftarstrimill.
Allt verð í greininni miðast við
útskriftarstrimil.
Bara fyrir börn oftast
með lægsta verðið
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, fatahönn-
uður hjá Nikita, lumar alltaf á kaffi og
súkkulaði.
Allir velkomnir!
Tónleikadagskrá
í tilefni 20 ára afmælis Nýrrar dögunar
í Neskirkju
15. nóvember 2007 kl. 20.00
Fram koma:
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
Kór Neskirkju í Reykjavík,
stjórnandi Steingrímur Þórhallsson organisti
Sólveig Unnur Ragnarsdóttir sópran
Pamela De Sensi þverflautuleikari
Stefán Helgi Stefánsson tenór
Davíð Ólafsson bassi
Erna Blöndal söngkona
Örn Arnarson tónlistarmaður