Fréttablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 20
nám, fróðleikur og vísindi
Námið býður upp á marga möguleika
eTwinning kallast liður í nýrri
menntaáætlun Evrópusambands-
ins – Lifelong Learning Program –
og gengur út á að koma á rafrænu
skólasamstarfi milli Evrópulanda í
gegnum internetið.
Guðmundur Ingi Markússon, hjá
Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins,
er fulltrúi eTwinning á Íslandi en
áætlunin tekur mið af skólastarfi í
grunn- og framhaldsskólum.
„Okkar hlutverk er að kynna
þessa áætlun fyrir skólum og kenn-
urum og fá þá til að taka þátt,“
segir Guðmundur Ingi. „Í eTwinn-
ing má finna verkefni fyrir allar
kennslugreinar þannig að mögu-
leikarnir eru miklir. Sem dæmi má
nefna að Varmárskóli í Mosfellsbæ
var í samstarfi við skóla á Spáni,
þar sem nemendur báru saman
menningararf Íslands og Spánar;
krakkarnir söfnuðu semsagt upp-
lýsingum og skiptust síðan á kynn-
ingum á netinu.“
eTwinning var hleypt af stokk-
unum árið 2005 í kjölfar þess að
leiðtogar ESB auglýstu eftir að
búinn væri til vettvangur sem auð-
veldar evrópskum skólum að vinna
saman í gegnum internetið. Guð-
mundur Ingi segir að áætlunin sé
um margt sérstök. „Þótt hún sé á
vegum ESB er þetta mjög óform-
leg áætlun því það var lagt upp
með að lágmarka alla skriffinnsku
í kringum hana. Fyrir vikið eru
engir sérstakir umsóknarfrestir
eða skýrslugerð. Skólar og
kennarar geta haft samband við
okkur og fengið leiðbeiningar hjá
okkur endurgjaldslaust. Þá fá þeir
strax aðgang að gagnagrunn yfir
alla kennara og skóla sem eru í
eTwinning.“
Ísland hefur tekið þátt í áætlun-
inni frá upphafi en Guðmundur Ingi
segist hafa orðið var við stóraukinn
áhuga í haust. „Við vorum með
kynningarátak í haust, svokallaða
eTwinning-viku, þá var mikil aukn-
ing, skráðum kennurum fjölgaði
um sjötíu prósent og verkefnum
fjölgaði um níutíu prósent. Það er
mikil uppsveifla í upphafi þessa
skólaárs og er enn, og við hlökkum
mikið til vetrarins.“
Nánari upplýsingar um áætlun-
ina má finna á vefsíðunni etwinn-
ing.is.
eTwinning í uppsveiflu
Fyrir ári kom upp sú
hugmynd að stofna þyrfti
allsherjarsamtök fram-
haldsskólanema. Stofnþing
Sambands íslenskra fram-
haldsskóla var haldið nú í
haust. Formaður félagsins
er Gabríela Unnur Einars-
dóttir, ritari Keðjunnar,
nemendafélags Kvenna-
skólans í Reykjavík.
„Við viljum til dæmis búa til hlut-
lausa kynningu á því námi sem í
boði er og koma í veg fyrir for-
dóma gegn iðnnámi,“ segir
Gabríela um markmið félagsins.
Í upphafi samstarfsins milli iðn-
og bóknámsskóla fór af stað
umræða um viðhorf til iðn- og
starfsnáms.
„Áhersla kennara og foreldra er
yfirleitt á stúdentspróf. En það er
líka flott að fara í iðnnám og það
er vel hægt að verða eitthvað úr
því.“
Félagið fór nýlega í samstarf
með mennta- og heilbrigðisráðu-
neyti og lýðheilsustöð um for-
varnastarf í framhaldsskólum.
Gabríela telur forvarnir vera afar
mikilvægar og þá sérstaklega
vegna kannabisefna.
„Ég held að viðhorfið gagnvart
hassi og grasi verði sífellt létt-
vægara. Áfengisneysla er vanda-
mál, en leggja ætti meiri áherslu á
forvarnir gegn fíkniefnum.“
Annað baráttumál SÍF er að
nemendur fái fulltrúa í vinnu-
nefndir menntamálaráðuneytisins
og komi að endurskoðun fram-
haldsskólalaga, sem fer fram um
þessar mundir.
„Við erum ekki með fulltrúa í
þeirri vinnu, en þar er til dæmis
rætt um breytingar á reglum um
samskipti nemendafélaga og
skólastjórnar, sem eru okkur
gríðarlega mikilvæg. Við reynum
samt að hafa áhrif með því að
senda inn tillögur og ábendingar.“
Þegar ákveðið var að stofna nýtt
félag vann starfshópur að undir-
búningi þess í um eitt ár.
„Við vildum fara rólega í að
undirbúa félagið svo að grunnur-
inn yrði sterkur. Við þurftum að
ráða til okkar starfsmann og finna
húsnæði og nafn á félagið.“
Skrifstofa SÍF er í gamla hús-
næði Iðnnemasambands Íslands
sem lagt var niður þegar skólarnir
sameinuðust í nýju félagi.
Meginþorri framhaldsskóla er í
félaginu og standa aðeins sex
skólar utan þess, flestir á höfuð-
borgarsvæðinu. Gabríela hefur þó
trú á því að skólarnir muni að
lokum ganga til liðs við SÍF.
„Þau höfðu ekki næga trú á
þessu félagi og töldu að hagsmun-
um þeirra yrði betur borgið utan
SÍF. Ég hef þó trú á að það muni
breytast og að lokum verið til eitt
stórt félag framhaldsskólanema.“
Viðhorfið til kannabis
verður sífellt léttvægara