Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Bærinn keypti sláturhúsið um síðustu áramót en þá var það búið að fara fram og til baka í bæjarstjórn. Það var mikil pressa frá fólki í menningargeiranum því að það vantaði svona miðstöð,“ segir Kristín Scheving, framkvæmda- stjóri Sláturhúss menningar- seturs sem er að taka til starfa á Egilsstöðum. Kristín hefur verið framkvæmda- stjóri Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs í tæp tvö ár og er nú líka framkvæmdastjóri Slátur- hússins, sem er yfir 2.000 fer- metra húsnæði á besta stað á Egilsstöðum. Sláturhúsið var búið að standa autt í fimm ár þegar það var keypt í fyrra. Sláturhúsið verður viðbót í menningarlífinu á Fljótsdalshéraði því verið er að byggja Menningarhús Fljótsdals- héraðs, sviðslistahús og ráðstefnu- hús við ráðhúsið. Menningarmiðstöð Fljótsdals- héraðs verður hins vegar til húsa í gamla sláturhúsinu og vonast Kristín til að þar verði líka vinnu- stofur listamanna, gallerí og stór- ir viðburðir eins og Kvikmynda- hátíðin 700IS Hreindýraland og atvinnuleikhópurinn Frú Norma ásamt öðrum smærri viðburðum og sýningum. „Þegar er mikið sótt í að vera með sýningar, uppistanda og alls konar gjörninga,“ segir Kristín. Sláturhús menningarsetur er einkahlutafélag undir stjórn fimm manna. Stefnt er að því að félagið verði að hluta til í eigu bæjarins og að hluta einkaaðila. „Þeir vilja að þetta rúlli áfram og verði ekki baggi á bænum,“ segir hún og telur mjög gefandi að sitja á fundum með fólki úr viðskipta- lífinu. „Á þessum fundum fljúga alls konar hugmyndir. Það er rosa- leg innspýting fyrir þetta verk- efni að fá sterka aðila úr viðskipta- lífinu til þátttöku. Við vonumst til að fá fleiri til liðs við okkur og fá þannig fjármagn inn í verkefnið,“ segir Kristín. Verkefnið er þegar byrjað en starfsemin og framkvæmdir við sláturhúsið sjálft eru á langtíma- áætlunum til 2012. Framkvæmdir eru fram undan. „Húsið var fullt af drasli þegar við fengum það afhent og við erum núna að rýma það en það var aðallega notað fyrir geymslur og líka sem eggjafram- leiðsla og ullarframleiðsla. Menn- ingarsetrið verður í öllu rýminu.“ „Fyrst ætlum við að taka neðri hæðina í gegn en þar verður menn- ingarhátíð ungs fólks, aðstaða fyrir ýmsa hópa og æfingahúsnæði fyrir tónlistarfólk. Það þarf að setja lyftu í húsið, laga það að utan og klæða það. Við ætlum að gefa þessu tíma og rjúkum ekki í að laga allt núna strax. Fyrir utan sláturhúsið er líka risastór braggi sem fylgir. Í framtíðinni verður byggður upp nýr miðbær á þessu svæði og þá vonum við að fólk geti komið hingað á kaffihús og sest, þetta verði staður fyrir fólk að hittast.“ Kristín hefur búið lengi erlendis og segir að þar megi víða finna skemmtileg rými fyrir listastarf- semi í gömlu iðnaðarhúsnæði. „Í Liverpool er gamalt hafnarsvæði sem var gert upp og breytt í gall- erí, kaffihús og vinnustofur. Slátur- húsið verður minni útgáfa af slíku svæði en eigi að síður mjög skemmtilegt. Það er ótrúlegur kraftur í listalífinu hérna. Viðtök- urnar við Sláturhúsinu hafa verið mjög góðar en það þarf að gefa þessu tíma. Markhópurinn er lítill en það er alltaf fullt á öllum opnun- um. Fólk er greinilega ánægt með þetta starf.“ Listir í gömlu sláturhúsi Kálfur launar sjaldan ofeldið Líður best þegar ég hef nóg að gera Ósanngjarnt Vaxandi vinsældir Alþingismenn og starfsmenn Alþingis létu mæla blóðsykur sinn í Kringlunni í Alþingishúsinu í gær í tilefni af alþjóðadegi Samtaka syk- ursjúkra. Gestir og gangandi gátu einnig fengið slíka mælingu bæði í Kringlunni og Smáralind. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðan árið 1991 en í ár var hann í fyrsta sinn viðurkenndur sem einn af hátíðisdögum Samein- uðu þjóðanna. Í tilefni þess voru stórhýsi um allan heim lýst með bláum lit og hlaut Höfði þann heiður hérlendis. Einnig var um heim allan safnað fé til styrktar börnum sem ekki hafa aðgang að insúlíni. Þingmenn í sykurmælingu Opið mán.- föstud. 10-18 og lau. 10-16 www.kokka.is kokka@kokka.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.