Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 18
fréttir og fróðleikur Stofninn nálægt sögulegu hámarki Danski forsætisráðherrann Anders Fogh Rasmussen getur stjórnað áfram þar sem flokkarnir að baki ríkisstjórn hans héldu eins þingsætis meirihluta að meðtöldum öðrum tveggja fulltrúa Færeyinga í þing- kosningunum á þriðjudag. Fogh hefur hins vegar sagt að hann vilji hafa „breitt samstarf“ um stjórnarstefnuna sem þýðir að hann mun leita stuðnings Nýs bandalags, sem fékk fimm þing- menn kjörna. Þær samninga- umleitanir kunna að verða snúnar þar sem það andar köldu á milli leiðtoga Nýs bandalags og Danska þjóðarflokksins. Pia Kjærsgaard, formaður Danska þjóðarflokksins sem staðið hefur að baki ríkisstjórn Venstre og Íhaldsflokksins síðustu tvö kjör- tímabil án þess að eiga beina aðild að henni, dró enga dul á að hún kærði sig ekki um að Naser Khader, formaður Nýs bandalags, fengi að hafa nokkur áhrif á stjórnarstefn- una fyrst meirihlutinn hélt velli. Sú staðreynd að Danski þjóðar- flokkurinn bætti við sig fylgi, einn stjórnarmeirihlutaflokkanna, styrkti Kjærsgaard í þessari kröfu- gerð. Í sjónvarpsumræðum flokks- leiðtoganna á kosninganótt hirti hún Khader fyrir að gerast svo djarfur að setja fram pólitískar kröfur fyrir hugsanlegar viðræður um stuðning Nýs bandalags við stjórnina. „Þér væri nær að taka tillit til vilja kjósenda eins og hann birtist í úrslitunum,“ sagði hún. Að minnsta kosti framan af kosn- ingabaráttunni beindi Khader mjög spjótum sínum að Danska þjóðarflokknum, einkum og sér í lagi stefnu hans í innflytjenda- málum. Markmið Nýs bandalags var að „brjóta upp blokkapólitík- ina“ og helst gera miðjustjórn mögulega sem ekki væri háð stuðn- ingi Danska þjóðarflokksins. Því markmiði náði flokkurinn semsagt ekki og með því að komast ekki í oddaaðstöðu eins og flestar skoð- anakannanir höfðu spáð missti hann af því að komast í samnings- stöðu sem hefði gert honum kleift að hafa umtalsverð áhrif á stjórnar- stefnuna næstu fjögur árin. Undir lok kosningabaráttunnar lagði Nýtt bandalag meiri áherzlu á skattalækkanir og opinberaði sig þar með sem borgaralegur flokkur. Yfirlýsing Khaders tveimur dögum fyrir kjördag um að hann hallaðist að því að styðja Fogh Rasmussen til stjórnarforystu festi flokkinn endanlega í sessi sem hluta af „borgaralegu blokkinni“. Í flokksleiðtogaumræðunum á kosninganótt sagði Fogh Rasmus- sen sjálfur að hann vildi bíða unz endanleg úrslit lægju fyrir áður en hann ákveddi næstu skref. Eftir að ljóst varð að Edmund Joensen, for- seti færeyska Lögþingsins úr Sam- bandsflokknum, systurflokki Venstre, yrði annar tveggja full- trúa Færeyinga á danska þinginu lá fyrir að stjórnarmeirihlutinn héldi með 90 þingsætum af 179. „Ég hef upplýst drottninguna um, að ég talaði nú fyrir hádegi við Edmund Joensen, sem hefur stað- fest að hann muni ganga til liðs við þingflokk Venstre. Það þýðir að ríkisstjórnin hefur tryggan stuðn- ing 90 þingmanna og þar að auki hefur Nýtt bandalag sagt að það styðji mig til ríkisstjórnarforystu. Á þeim grunni get ég slegið því föstu, að ríkisstjórnin heldur áfram,“ sagði Fogh Rasmussen við fréttamenn er hann kom út af fundi með Margréti Þórhildi drottningu um hádegisbil í gær. Um viðræðurnar framundan um hugsanlega aðkomu Nýs bandalags að stjórnarmeirihlutanum sagði Fogh: „Ég hef aldrei sagt að þetta yrði auðvelt, en það er það sem pólitískar viðræður snúast um.“ Hann staðfesti að hann myndi einn- ig tala við Khader er hann fundaði eftir hádegið með formönnum meirihlutaflokkanna til að fara yfir stöðuna eftir kosningarnar. Stjórnarandstöðuflokkarnir á vinstri vængnum hlutu samtals 84 þingsæti, að meðtöldum öðrum færeysku fulltrúanna – Högna Hoydal – og báðum fulltrúum Grænlendinga, Juliane Henning- sen frá IA og Lars-Emil Johansen frá Siumut. Þau þrjú mynda Norður- Atlantshafs-þingflokkinn. Jafnaðarmannaflokkurinn hlaut minnsta fylgi í sögu flokksins frá því árið 1906, 25,3 prósent, hálfu prósenti minna en í síðustu kosn- ingum fyrir þremur árum. Úrslitin fyrir þremur árum voru ótvírætt afhroð fyrir flokkinn sem í áratugi hafði vanizt því að vera stærsti flokkur landsins. Enda sagði þáver- andi formaður, Mogens Lykketoft, af sér eftir tapið. Núverandi for- maður, Helle Thorning-Schmidt, hefur aðeins haft tvö ár til að byggja flokkinn upp á ný. Henni er þó ekki kennt um að flokkurinn skyldi nú fá sína verstu útkomu í 100 ár; öllu heldur er henni þakkað fyrir að vinna vissan varnarsigur; almenn ánægja er innan flokksins með frammistöðu hennar í kosninga- baráttunni og þótt hún hafi ekki náð því markmiði að verða forsætis- ráðherra er almennt álitið að hún hafi fest sig í sessi sem forsætis- ráðherraefni. „Það gengur bara betur næst,“ sagði hún líka í ávarpi á kosningavöku jafnaðarmanna, við almennan fögnuð viðstaddra. Það sem bætir annars stemning- una á vinstri vængnum er fádæma gott gengi Sósíalíska alþýðu- flokksins, SF, undir forystu Villy Sövndal. Hann nær því tvöfaldaði þingmannafjölda sinn úr 12 í 23. Aftur á móti tapaði Radikale Venstre (RV), sem er frjálslyndur miðjuflokkur sem hallast til sam- starfs til vinstri, helmingi þingliðs síns. Sú blóðtaka er ekki sízt rakin til Nýs bandalags, sem þingmenn úr RV áttu frumkvæði að því að stofna, þeirra fremstur Naser Khader. Fogh leitar breiðs samstarfs Góður hundur á gott skilið Hunda nammi (harðfisktöflur) Hunda bitafiskur Íslensk framleiðsla úr úrvals hráefni. Fæst í Bónus Of miklar sveiflur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.