Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 26

Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 26
Fasteignamógúllinn Robert Tchenguiz, sem jafnframt er stjórnarmaður í Existu, krefst þess enn að stjórn breska stórmarkaðarins Sainsbury aðskilji dag- legan rekstur og fasteigna- umsýslu sína. Tchenguiz á tíu prósenta hlut í þessari þriðju stærstu verslanakeðju Bretlands. Allt virtist stefna í að markaðsverð- mæti hlutarins myndi fara í einn milljarð sterlings- punda, jafnvirði rúmra 126 milljarða íslenskra króna, í síðustu viku en í kjölfar þess að bæði yfirtökutilboð í verslanakeðjuna upp á 600 pens á hlut rann út í sandinn í byrjun vikunnar auk þess sem skellur gekk yfir alþjóðlega hluta- bréfamarkaði tók verðmið- inn dýfu og gufaði 31 millj- arður króna úr bókum hans. Skipting á rekstri Sains- burys hefur legið á teikni- borðinu frá í fyrra en stjórn verslunarinnar hefur fram til þessa vísað henni jafn- harðan út af borðinu. Breska dagblaðið Guardian segir nú að Justin King, for- stjóra Sainsburys, hafi snú- ist hugur enda telji hann virði eignanna nema allt að átta milljörðum punda, jafnvirði eitt þúsund millj- örðum íslenskra króna, sem er talsvert yfir verðmati mark- aðsaðila. Fasteignir Sainsburys hátt metnar Alþjóðlegir fjármálamarkaðir hafa tekið ágætlega við sér síð- ustu tvo viðskiptadaga enda töldu margir útlit fyrir að þær hremm- ingar sem fjármálakrísan hefur leitt yfir hlutabréfamarkaði víða um heim séu að mestu gengnar yfir. Undirliggjandi óvissa er þó enn til staðar því ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um það hversu háar upphæðir bandarískar fjár- málastofnanir þurfa að afskrifa vegna slæmra fasteignalána. Gengi hlutabréfavísitalna snar- hækkaði í Bandaríkjunum á þriðjudag eftir skell í vikunni á undan og gengu lækkanir að nokkru leyti til baka. Hækkunin smitaði út frá sér til Japans og meginlands Evrópu í gær. Dræmar tölur um vöxt smá- söluverslunar, sem birtar voru í gær og sýna svo til óbreytt ástand á milli mánaða í október, urðu ekki til að draga úr væntingum og þykja fjárfestar vestanhafs alla jafna bjartsýnni en áður um horfur í efnahagsmálum, að sögn Associated Press. Bjartsýni tekur við á markaði Skrá á færeyska flugfélagið Atl- antic Airways í Kauphöllina hér 10. desember næstkomandi. Áður fer fram sala hlutafjár til fagfjár- festa og almennra fjárfesta. Í umfjöllun greiningardeildar Kaupþings kemur fram að sam- göngu- og iðnaðarráðuneytið í Færeyjum ætli að selja þriðjung hlutafjár í félaginu og muni útboðsgengi ákvarðast af áskriftarverðlagningu 19. til 27. þessa mánaðar. Gengið á þó að liggja á bilinu 242 til 261 dönsk króna á hlut. „Markaðsverðmæti flugfélags- ins gæti því orðið allt að 3,2 millj- arðar íslenskra króna seljist allt sem í boði er,“ segir í umfjöllun greiningardeildarinnar. Atlantic Airways verður með þessu fjórða færeyska félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði. Atlantic Petroleum var fyrst, árið 2005, en fyrr á þessu ári voru Eik banki og Føroya banki skráð hér. Atlantic Airways í KauphöllinaCubo er frábær jólagjöf! Cubo er flott útvarp og geislaspilari með tengi fyrir Mp3 spilara og Ipod. Cubo fæst í 10 litum og er góð gjöf handa börnunum, kærastanum, kærustunni, pabba og mömmu, afa og ömmu eða bara hvern sem er. Komdu og sjáðu Cubo! Ármúli 26

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.