Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 57

Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 57
Ýmsum kann að þykja að verðtrygging á höfustól láns sé réttlætis- mál og hagur beggja aðila, lántakanda og lánveit- anda. Vissulega er það falleg hugsun að lántak- andi greiði til baka raun- verðmæti þess láns sem hann tekur. Á íslenskum lánamarkaði gilda hins vegar reglur og háttsemi sem er á skjön við alla jafnræðishugsun. Á Íslandi er það aðeins annar aðil- inn, (íslenskar lánastofnanir) sem tilkynnir lántakandanum með reglu- bundnum hætti eða árlega, um hækkun höfuðstóls láns. Einhver þriðji aðili „úti í bæ“, oftast opinber stofnun eða lánveitandinn sjálfur, reiknar ímyndaða hækkun á raun- virði höfuðstólsins án tillits til aðstæðna lántakanda eða raunvirði hagtalna í lífi hans. Þessi háttur er ekki aðeins á skjön við það jafnræði sem aðilar ættu að búa við, sam- kvæmt almennum hugmyndum um jafnræði heldur má flokka hann undir ok. Það að höfuðstóll láns vaxi samkvæmt duttlungum annars aðil- ans og án atbeina hins er ekki sam- kvæmt leikreglum mannréttinda- sáttmála. Leikreglur íslenska lánamarkaðarins svipta flesta lán- takendur fjárhagslegu frelsi. Íslenskir lántakendur hafa t.d. engin tækifæri til að bera hönd fyrir höfuð sér þegar lánveitandi ákveður upp á sitt eindæmi að breyta vöxtum, því á markaðnum ríkir fákeppni og sameiginlega reyna lánastofnanir að kúga út úr almenningi eins mikið fé og þær mögulega geta. Allt er selt á okurverði samanber færslugjöldin og dráttarvextirnir eins og þeir eru í dag. Lántakendur á Íslandi búa við hálfgerða einokun einnar stórrar bankaklíku á peningamarkaðnum, sem endurspeglast t.d. í því að hér eru almennir vextir margfalt hærri en í nágrannalöndunum. Banka- klíka þessi tók við af ríkisbankaklík- unni þegar ríkisbankarnir voru seldir útvöldum ein- staklingum og félögum á slikk. Þar að auki leyfist bönkum á Íslandi að semja við lántakendur um tvenns konar vexti, annars vegar fasta vexti og hins vegar breytilega vexti. Um föstu vextina er samið við töku láns, en breytilegu vextirnir eru eins og verðtrygg- ingin á höfuðstól lána háðir einhverjum aðstæðum sem lántakandi hefur engin áhrif á. Á sumum lánum hvíla jafnvel allir þessir vextir; verðtrygging, fastir vextir og breytilegir vextir. Þar að auki hafa bankarnir leyfi til að krefja lántakendur um sérstakt gjald ef lán er greitt upp, fyrir áætl- aðan endurgreiðslutíma, en það gjald getur komið í veg fyrir að lán- takandi ákveði að skipta við aðra lánastofnum ef þar bjóðast betri vaxtakjör. Ofan á allt saman leggur svo ríkissjóður skatta á alla lántöku með svokölluðum stimpilgjöldum, sem hamlar enn meir samkeppni á lánamarkaðnum. Það þarf að gera róttækar breyt- ingar á íslenskri bankalöggjöf og ríkissjóður þarf að leggja af gjöld sem hamla eðlilegri samkeppni. Almenningur á ekki að sætta sig við að þurfa að taka lán á þessum kjör- um sem nú bjóðast, t.d. til að reisa sér þak yfir höfuðið og mennta sig til að koma undir sig fótunum og koma börnum sínum til manns. Í raun er staðan sú að ungt fólk sem kaupir sér húsnæði festist í neti „kúgara“ sem heimta andvirði láns- ins (hússins) allt að þrefalt til baka, enda fer mest öll starfsævi almenn- ings á Íslandi í að greiða upp hús- næðislán. Rök bankanna á móti breytingum á verðtryggingu lána eru m.a. þau að benda á alla þá fjármuni sem Íslend- ingar eiga í bönkunum og lífeyris- sjóðunum og hvort menn sætti sig við að þeir fjármunir rýrni í verð- bólgu þeirri sem er viðvarandi í Íslandi. Þar komum við aftur að sama einkenninu í íslenskri lána- starfsemi sem áður var nefnt, en það er með verðtrygginguna á innlánin eins og útlánin að það er bankinn sjálfur sem ákveður verðtrygging- una en ekki eigandi innistæðunnar. Ef eigandi innistæðu tilkynnti bank- anum um raunhækkun á innistæð- unni samkvæmt hans eigin hag, þá væru þessu rök bankanna gild. Það eru lánastofnanir sem hafa þennan útreikning allan á eigin hendi og rétt til að hækka höfuðstól láns eða inni- stæðu og breytilega vexti að eigin geðþótta og á meðan svo er mun íslenskur almenningur þrautpíndur og okaður. Verkefnið er að banna verðtrygg- ingu lána, breytilega vexti og öll ákvæði samninga sem hafa í för með sér ófyrirséðar afleiðingar. Svo þarf að leggja af stimpilgjöld hins opinbera. Höfundur er varaþingmaður Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hin íslenska verðtrygging bragð sem aldrei bregst www.isam.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.