Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 58
„Áhugi minn á þjóðfræði og forn- minjum vaknaði sumarið 1976 þegar ég var í sumarvinnu sem Árni Björnsson þjóðháttafræðing- ur stýrði,“ segir Sigríður Sigurðar- dóttir, safnstjóri í Glaumbæ í Skaga- firði. „Vinnan fólst í að safna upplýs- ingum um fráfærur því sú kynslóð sem mundi þær var óðum að hverfa. Það var mjög skemmtileg upplifun. Við vorum tvær stúkur sem fórum um Strandasýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu og þar hitti ég fólk sem gat frætt mig um fráfærur og ótal- margt fleira.“ Sigríður er fædd og uppalin að Stóru-Ökrum í Skagafirði og er komin þangað aftur eftir fjarveru. Hún er sagnfræðingur og kennari að mennt og hefur þefað af þjóðhátta- fræðinni líka. Um þessar mundir á hún tuttugu ára starfsafmæli sem safnstjóri. „Ég kom hingað í Skagafjörð síð- sumars 1987 til starfa hjá Byggða- safni Skagfirðinga sem er elsta byggðasafn landsins, stofnað 1948. Það liðu fjögur ár þar til fyrsta sýn- ingin var opnuð í gamla bænum í Glaumbæ, hann var þá orðinn einn af torfbæjunum í húsasafni Þjóðminja- safnsins og er enn. Í framhaldinu settu fleiri söfn upp sýningar í slík- um bæjum og í byrjun var það fast- mótuð hugmynd fólks að byggðasöfn væru í torfbæjum. Fólk hélt að ég hefði ekkert að gera á veturna af því enginn kæmi í bæinn þá. En fyrsta verkefni mitt var að finna annað húsnæði til að vista muni í og grisja sýninguna í Glaumbæ því þar hafði verið bætt endalaust við. Einnig að byrja á því starfi sem þarf að vera á öllum söfnum sem er rannsóknir og fræðsla. Þetta hafðist allt en hún var ekki merkileg skrifstofan fyrstu fjögur árin því hún var bókstaflega í bílnum hjá mér.“ Auk þess að safna öllu sem tengist búferlaflutningum, samgöngum og sögu íslenska hestsins segir Sigríður Byggðasafn Skagfirðinga leggja höf- uðáherslu á allt sem lúti að byggingu torfbæja og lífinu í þeim. „Við erum sennilega í torfríkasta héraði lands- ins því af þeim byggingum sem eftir standa úr því efni eru flestar í Skaga- firði. Hér er líka auðvelt að ná í torf ennþá þrátt fyrir þurrkun landsins,“ segir Sigríður, sem í lokin nefnir tvær einfaldar ástæður endingar hennar í starfi safnstjóra. „Spenn- andi verkefni og frábært samstarfs- fólk.“ „Eru ekki konur alltaf í einhverju átaki? Það er í kjólinn fyrir jólin og bikiníið fyrir sumarið. Ég tek þetta bara jafnt og þétt og hreyfi mig reglulega.“ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gylfi Þorsteinsson Sólvöllum, Raufarhöfn, lést miðvikudaginn 7. nóvember á sjúkrahúsinu á Húsavík. Útförin fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 14.00. Guðný Sigurbjörnsdóttir Þór Einarsson Janet Borques Guðmundur Einarsson Katrín R. Rúnarsdóttir Árni Heiðar Gylfason Erla Guðmundsdóttir Sigurbjörn Smári Gylfason Ólína S. Ólafsdóttir Ófeigur Ingi Gylfason Anna H. Traustadóttir Sandra Ösp Gylfadóttir Halldór Baldvinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðmundur Þorleifsson frá Svínhólum í Lóni, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Höfn Hornafirði þann 8. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 16. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Unnsteinn Guðmundsson Sigríður Kristjánsdóttir Ragnhildur Guðmundsdóttir Eysteinn Ingólfsson Áslaug Guðmundsdóttir Jón Bjarnason Júlíus Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, ömmu, langömmu, langa- langömmu og tengdamóður, Þórlaugar Kristinsdóttur Grundargötu 7, Dalvík. Starfsfólki Dvalarheimilisins Dalbæjar á Dalvík eru færðar innilegar þakkir fyrir góða umönnun og alúð. Sérstakar þakkir fær Sr. Guðrún Eggertsdóttir fyrir góða nærveru og samkennd. Guð blessi ykkur öll. Arnfinnur Friðriksson Steinunn Pálsdóttir Jóna Kristín Friðriksdóttir Stefán A. Magnússon Gunnar Magni Friðriksson Sigrún K. Júlíusdóttir Friðrik Reynir Friðriksson Marín Jónsdóttir Irma Ingimarsdóttir Bjarmi Fannar Irmuson Silja Pálsdóttir Freyr Antonsson og fjölskyldur. 80 ára afmæli Þorsteinn Einarsson (Steini frá Sólheimum) (Steini Rock) Ég verð 80 ára þann 17. nóvember og af því tilefni tek ég á móti gestum á Hótel Lunda í Vík í Mýrdal frá kl. 18.00 sama dag. Vonast til að sjá sem flesta, Steini Elskuleg eiginkona mín, Ingibjörg Barðadóttir Spítalastíg 4, Reykjavík, lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins 12. nóv- ember. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 22. nóvember kl. 13.00. Garðar Jónasson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ósk Þ. Sigursteinsdóttir Heiðargerði 5, Akranesi, lést á heimili sínu 9. nóvember sl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 19. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akraness. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkr- unar á Akranesi. Árni P. Baldursson María Lovísa Árnadóttir Stefán Sigurðsson Kristján Ingi Hjörvarsson Jórunn María Ólafsdóttir Árni Þór Árnason Anna Soffía Hákonardóttir Arnar Már Árnason Perla Dögg Einarsdóttir Helgi Þór Heiðarsson Hólmfríður Sólveig Hjaltadóttir Sigurást Aðalheiður Árnadóttir Ármann Rúnar Vilhjálmsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Eyvindsson Dynskógum 8, Hveragerði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði föstudaginn 9. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 14. Gunnhildur Þórmundsdóttir Eyvindur Bjarnason Þórdís Magnúsdóttir Kjartan Bjarnason Sigríður Inga Wiium Rakel Móna Bjarnadóttir Ármann Ægir Magnússon Gréta Mjöll Bjarnadóttir Björn Ragnar Björnsson Ingvar Bjarnason Hrafnhildur Loftsdóttir Svanur Bjarnason Gunnhildur Gestsdóttir Jakob Þór Skúlason Jóhanna Hallgrímsdóttir Þórmundur Skúlason Rósa Hjálmarsdóttir Vilberg Skúlason Guðlaug Skúladóttir börn og barnabörn. 90 ára afmæli Ari Benjamínsson Hringbraut 2a, Hafnarfirði, er 90 ára í dag. Ennfremur eiga þau hjónin Sigríður Ólafsdóttir og Ari 60 ára brúðkaupsafmæli. Þau eru að heiman. Heittelskaður eiginmaður minn, sálufélagi, besti vinur og pabbi okkar, Ásgeir Einarsson lést 7. nóvember síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda Linda Björk Hávarðardóttir og börn. Keisaradæmi afnumið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.