Fréttablaðið - 15.11.2007, Síða 72

Fréttablaðið - 15.11.2007, Síða 72
Nicole Scherzinger, söngkona bandarísku kvennasveitarinnar Pussycat Dolls, gefur á næstunni út sína fyrstu sólóplötu, sem nefnist Her Name Is Nicole. Nicole öðlaðist frægð með þátttöku sinni í raunveru- leikaþættinum Popstar árið 2001. Með frammistöðu sinni vann hún sér sess í stúlknasveitinni Eden´s Crush sem náði toppi vinsældalista með laginu Get Over Yourself. Skömmu síðar var sveitin lögð niður og í framhaldinu gekk Nicole til liðs við Pussycat Dolls, sem gerði allt vitlaust með lögum á borð við Don’t Cha, Buttons, Wait a Minute og Stickwitu. Nicole segist alltaf hafa ætlað að gera sólóplötu, spurningin hafi ekki verið hvort heldur hvenær. „Það er búið að vera heiður að starfa með Dolls og ég vissi að sú hljómsveit ætti eftir að verða góður stökkpallur fyrir mig. En þessi plata er algjörlega aðskilin frá mínum fyrri verkum. Hún er persónu- leg og ég hef lagt mikið í hana undanfarin tvö ár,“ segir Nicole, sem margir telja meðal kynþokka- fyllstu kvenna í tónlistar- bransanum. Beyoncé Knowles sneri aftur í Destiny´s Child eftir að hafa byrjað sólóferil sinn og svo virðist sem Nicole útiloki ekki að feta í hennar fótspor einn daginn. „Ég held að það yrði gaman að snúa aftur í Dolls. Við eigum marga aðdáendur og höfum eytt miklum tíma í það verkefni. En ég veit að hinar stelpurnar eru núna að gera sína eigin hluti og ég vil njóta Her Name Is Nicole til hins ítrasta í augnablikinu,“ segir hún í viðtali við fréttavef BBC. Söngkonurnar í Pussycat Dolls hafa verið sakaðar um að nota kynlíf til að selja tónlistina sína. Nicole segir þá gagnrýni vera ósanngjarna. „Allir eru sakaðir um þetta í þessum bransa. Gagnrýnendur sýna alltaf á sér klærnar, sérstaklega þegar þeir heyra nafn á borð við okkar. Ég held samt að á endanum segi tónlistin allt sem segja þarf. Ef maður horfir á suma af þeim listamönnum sem eru þarna úti held ég að við höfum verið mun íhaldssamari og fágaðri en samt höfum við fengið meiri gagnrýni en þeir. Það skiptir mig samt ekki öllu máli því við létum gagnrýnina ekki á okkur fá og stóðum á endanum uppi sem sigurvegarar.“ Nicole segist vera ánægð með endurkomu Krydd- píanna, enda hafi hún alla tíð litið upp til sveitar- innar. „Fólk spurði okkur mikið um þær til að byrja með og ég sagði það frábært ef við næðum helmingi þeirra vinsælda sem þær höfðu. Við dáðum það sem þær stóðu fyrir og reyndum að taka við kyndlinum af þeim. Ég óska þeim alls hins besta.“ Hin 29 ára Nicole á ættir sínar að rekja til Havaí, Rússlands og Filippseyja en ólst upp í Kentucky í Bandaríkjunum. Hún játar að þessi óvenjulega blanda hafi líkast til hjálpað sér á tónlistarferlinum. „Það er virkilega gaman að koma fram fyrir hönd fólks víða úr heiminum. Ég er algjörlega sér á báti með þetta útlit, þennan bakgrunn og þessa tónlistarstefnu í einum pakka. Margir frá ólíkum löndum vilja eigna sér mig og ég hef bara gaman af því. Það gerir mig að einstakri manneskju sem hefur upp á annað að bjóða en aðrir listamenn.“ Síðasta sýning á skoska verð- launaleikritinu Svörtum fugli eftir David Harrower verður í Hafnarfjarðarleikhúsinu annað kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. Verkið hefur verið sýnt síðustu tvo mánuði og hefur það fengið ágætis við- tökur. Í Svörtum fugli segir af endurfundum Unu og Ray sem áttu í sambandi fyrir fimmtán árum en hafa ekki sést síðan. Það eru þau Sólveig Guð- mundsdóttir og Pálmi Gests- son sem leika en leikstjóri er Graham Maley. Miða á loka- sýninguna má kaupa á midi.is. Eftir áramót ætla leikararnir að ferðast um landið með Svartan fugl. Fyrirhugaðar eru þrjár sýningar í ársbyrjun; í Vestmannaeyjum, á Ísafirði og á Egilsstöðum. Sýningarn- ar verða kynntar þegar nær dregur. Svartur fugl í ferðalag Búið er að selja yfir sjö þúsund miða á jólatónleika Frostrósanna í desember. Þegar er uppselt á tónleika þeirra í Laugardalshöll, á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum og því hefur verið ákveðið að halda aukatónleika á öllum þessum stöðum. Miðasala á aukatónleikana í Laugardalshöll hefst í dag en sala er þegar hafin á hina tónleikana. Á tónleikunum í Höllinni koma fram dívurnar Margrét Eir, Hera Björk, Heiða Ólafs og Regína Ósk ásamt þremur tenórum. Sjö þúsund miðar seldir Megas og Senuþjófarnir ætla að ljúka viðburðaríku og skemmti- legu ári með tónleikum á Nasa hinn 14. desember. Skemmst er að minnast vel heppnaðra tónleika þeirra í Laugardalshöll þar sem 2.500 manns létu sjá sig og skemmtu þeir sér afar vel. Samstarf Megasar og Senuþjóf- anna hefur leitt af sér tvær plötur á árinu, Frágang og Hold er mold. Forsala er hafin á tónleikana á Nasa og er miðaverð 2.000 krónur. Skemmtilegu ári að ljúka Liam Gallagher, söngvari Oasis, segir það ekki koma til greina að hljómsveitin feti í fótspor Radiohead og leyfi aðdáend- um sínum að ráða hvað þeir borgi fyrir plötuna. Oasis er um þessar mundir án plötusamn- ings, rétt eins og Radiohead var þegar hún ákvað að bjóða plötuna án endurgjalds. Segir Liam að fyrr skuli hann dauður liggja en fara í hljóðver og leggja hart að sér fyrir engan pening. Oasis er þessa dagana að vinna að sinni sjöundu plötu og kemur hún væntanlega í búðir snemma á næsta ári. Plata Oasis ekki gefins Daninn Kim Larsen og hljóm- sveitin Kjukken hafa gefið út tvöfalda plötu sem nefnist En lille pose støj. Platan hefur að geyma tónleikaupptökur frá tónleikum þeirra á síðasta ári. Á henni eru lög frá öllum ferli Larsens allt frá Gasolin til Kjukken og allt þar á milli. Tónleikar Larsens og Kjukken í Vodafone-höllinni verða haldnir 24. nóvember. Miðaverð er 4.900 krónur. Tvöfalt frá Kim Larsen Við getum haft áhrif hvert á annað með því að sleppa því að drekka sjálf. Það er ekkert kúl við það að drekka.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.