Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 75

Fréttablaðið - 15.11.2007, Page 75
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur frestað tónleikaferð sinni um Evrópu sem hann ætlaði að hefja í þessari viku. „Ég er búinn að færa tónleikana aftur í febrúar því ég vil að þeir haldist betur í hendur við útgáfumálin,“ segir Örn Elías Guðmundsson, tónlistarmaðurinn Mugison, sem nýlega gaf út plötuna Mugiboogie. Margir dreifingaraðilar hafa sýnt honum áhuga að undanförnu og vill Mugison negla þau mál niður áður en lagt er af stað í tónleikaferðina. Eru samningaviðræður þegar komnar á skrið hjá aðilum í Bretlandi, Frakklandi, Skandinavíu, Japan og í austantjaldslöndunum. Mugiboogie er í efsta sæti á vinsældalistum Skífunnar og Eymundsson og segist Mugison vera afar þakklátur fyrir viðtökurnar. „Þetta er langt framar mínum björtustu vonum. Maður var mjög spenntur að sjá hvernig fólk tæki þessari breytingu hjá mér og ég er ekki búinn að fá að heyra neitt nema gott. Það er líka magnað hvað þetta er vinsælt af öllum kynslóðum, allt frá þrettán ára gítarguttum í stuðstrompa á elliheimilum sem hafa verið að banka í mann.“ Mugison spilaði nýverið á nokkrum tónleikum víða um landið og tókust þeir vel. „Það var hrikalega gaman, sérstaklega fyrir vestan og á Akureyri. Vonandi verður framhald af því í desember og við stefnum þá að því að fara á Austfirði og í minni bæi sem við komumst ekki í.“ Söngkvintettinn Luxor var settur saman af Einari Bárðarsyni fyrr á þessu ári. Luxor hefur komið fram á nokkrum tónleikum og fengið spilun í útvarpi. Þetta er fyrsta plata sveitarinnar. Ég get ekki setið á mér, Luxor er einfaldlega holdgervingur flest þess sem mér þykir miður fara í tónlist. Þegar tónlist er eingöngu gerð til að græða peninga getur útkoman ekki orðið neitt annað en dapurleg. Sú er einmitt raunin í til- felli Luxor. Öll hugmyndafræðin á bak við sveitina er í það minnsta vafasöm. Hún er sett saman eftir útliti, síðan eru fengnir til stílisti og raddþjálfari og loks er dælt peningum í upptökur þar sem ekk- ert er til sparað. Búlgarska sinfóníuhljómsveitin er líklegast eini ljósi punktur plötunnar en öll afskræmingin rýrir gildi hennar til muna. Kynlaus Disney-tónlist er með því fyrsta sem kemur upp í hug- ann en erfitt er þó að njörva niður stefnu plötunnar. Ekki er þetta klassísk tónlist og þetta er alls ekki popp. Helst er hægt að líkja Luxor við Il Divo enda ábreiður af Il Divo að finna á plötunni. En eins og með allir hinar ábreiðurnar (og platan samanstendur eingöngu af ábreiðum) eru útgáfur Luxor lak- ari en útgáfur fyrirrennara þeirra. Þær eru sungnar í þvinguðum víbratóum með oft stórfurðuleg- um framburði, sérstaklega í íslensku lögunum. Auðvitað syngja miðlungssöngvarar Luxor hreina og beina tóna sem eru ágætlega vel framreiddir – sem má líklegast þakka upptökustjórn og eftir- vinnslu frekar en söngvurunum sjáfum – en er að sjálfsögðu lág- markskrafa á plötu sem þessari. Þá leiðir maður hins vegar hug- ann aftur að hugmyndafræði sveitarinnar og man líka að söngur plötunnar hljómar líkt og árshátíð einhvers söngskóla á karókíbar. Tónlist er listform sem snýst um sköpun, vekur tilfinningar og verður að krefjast einhvers af hlustandanum. Luxor hefur ekkert af þessu fram að færa. Afskræming Hljómsveitin South River Band hefur gefið út sína fjórðu plötu. Heitir hún Allar stúlkurnar og hefur að geyma fjórtán lög. Helmingur laganna er eftir hljómsveitina sjálfa en hinn helmingurinn er lög sem sveitin hefur fengið lánuð, þar á meðal ungversk sígaunalög. Textarnir fjalla um spaugilegar hliðar til- verunnar, dauðans alvöru og allt þar á milli. Plötunni verður fagnað með útgáfutónleikum í Iðnó á laugar- dag klukkan 16. Miðaverð er 1.000 krónur og fer miðasala fram við innganginn. Nýja platan verður til sölu á tónleikunum og renna 500 krónur af hverju seldu eintaki til MS-félagsins. Fjórða platan klár VINNINGSHAFAR JU! .971 LA VIE EN ROSE S T Ó R B R O T I N S A G A E D I T H P I A F KV IKMYND EFT I R OL IV I ER DAHAN MAR ION COT I L LARD „STÓRKOSTLEGASTA UMBREYTING SEM FEST HEFUR VERIÐ Á FILMU; MARION COTILLARD UMBREYTIST Á SÁL OG LÍKAMA OG EDITH PIAF BIRTIST OKKUR LJÓSLIFANDI. ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI NÆSTA ÁRS ER FUNDINN!“ - STEPHEN HOLDEN, NEW YORK TIMES, 28. FEBRÚAR 2007 - Ekkert hlé á góðum myndum Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.