Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 6
6 3. desember 2007 MÁNUDAGUR flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is Hobbyhúsið ehf • Dugguvogi 12 • s: 517 7040 Opnunartími: Mánudaga - föstudaga 10 - 18 Laugardaga og sunnudaga Lokað Hobby T 500, T 600, T 650. Bæklingarnir komnir fyrir húsbíla 2008. Pantanir óskast staðfestar. T 650 FLC Siesta UMHVERFISMÁL Flutningur lífvera með kjölfestuvatni skipa er ógn sem steðjar að umhverfi hafsins á heimsvísu. Hætta er á að í kjöl- festuvatni séu lífverur sem lifa af siglingu um langa leið og nái að þrífast í nýjum heimkynnum, með alvarlegum afleiðingum fyrir vist- kerfi svæðisins. Sesselja Bjarnadóttir, sérfræð- ingur hjá umhverfisráðuneytinu, segir að lífverur sem berist með kjölfestuvatni eigi oft enga nátt- úrulega óvini þar sem þær séu los- aðar út í umhverfið. Þær geti breytt viðkomandi vistkerfi og haft langvarandi áhrif á lífríki og nýtingu lifandi auðlinda. „Lengi var talið að hafinu við Ísland staf- aði ekki mikil ógn af losun á kjöl- festuvatni vegna þess að sjór hér við land er tiltölulega kaldur, auk þess sem fátítt var að skip kæmu ólestuð til landsins. Þetta hefur breyst og á ekki lengur við vegna aukinnar iðnaðarstarfsemi hér á landi og hlýnunar sjávar.“ Sesselja segir að nokkur mjög alvarleg umhverfisspjöll af völd- um framandi tegunda séu nú þegar staðreynd. „Eitt versta dæmið er af völdum amerísku kambhvelj- unnar, sem er marglyttutegund. Hún étur dýrasvif, sem er mikil- væg undirstaða fæðukeðjunnar, og eyðir því algjörlega á stórum svæðum. Hún er talin eiga stóran þátt í hruni fiskistofna í Svarta- hafinu árið 1990. Hún hefur nýlega fundist í Eystrasaltinu fyrir utan strönd Danmerkur og ógnar þar lífríkinu í heild.“ Sesselja segir fiskeldismenn hafa miklar áhyggj- ur af sjúkdómum sem geti borist í eldisstöðvar með þessum hætti. „Sjúkdómar geta einnig borist í villta laxastofna á þennan hátt,“ segir Sesselja. Leiðbeiningar um losun á kjöl- festuvatni skipa verða væntanlega samþykktar á vegum Samnings um verndun NA-Atlants hafsins (OSPAR) í febrúar á næsta ári. Í umhverfisráðuneytinu er að hefj- ast undirbúningur að reglum um losun á kjölfestuvatni í anda OSPAR. „Samkvæmt fyrirhuguð- um leiðbeiningum ættu skip að losa kjölfestuvatn í að minnsta kosti 200 sjómílna fjarlægð frá landi og þar sem er 200 metra dýpi hið minnsta“, segir Sesselja. svavar@frettabladid.is Aðskotadýr alvarleg ógn við lífríki sjávar Flutningur lífvera með kjölfestuvatni skipa er alvarleg ógn við umhverfi hafsins á heimsvísu. Aðskotadýr ógna nú þegar vistkerfum víða um heim. Umhverfis- ráðuneytið undirbýr að setja reglur sem kveða á um losun vatns langt frá landi. Á LANDLEIÐ Skip geta borið með sér sjúkdóma og óæskilegar dýrategundir sem valda miklum skaða í vistkerfinu. Vatn, ásamt uppleysanlegum efnum og gruggi, sem er tekið um borð í skip í því skyni að stjórna styrk, halla, kjölristu, stöðugleika eða álagi. SKILGREINING ORÐS- INS KJÖLFESTUVATN ÞÝSKALAND, AP Gríðarstórt skjalasafn frá seinni heimsstyrjöldinni hefur nú verið opnað almenningi í Þýskalandi. Hafa sumir eftirlif- endur helfararinnar beðið í sextíu ár eftir að fá að leita upplýsinga í skýrslum frá útrým- ingarbúðum þar sem grimmdarverk nasista eru skjalfest. Alþjóðlega leitarþjónustan (ITS) hefur umsjón með skjalasafninu, sem hefur hingað til einungis verið notað til að hafa uppi á týndu fólki, sameina fjölskyldur og veita upplýsingar til fórnarlamba helfararinnar vegna skaðabótamála. ITS heyrir undir Alþjóðanefnd Rauða krossins. Ellefu ríki sem hafa umsjón með skjalasafni ITS þurftu að staðfesta samkomulag um að opna mætti fyrir aðgang almennings að fimmtíu milljón blaðsíðum sem eru geymdar í þýska bænum Bad Arolsen að sögn forstjóra ITS, Reto Meister. Grikkland var síðasta ríkið til að staðfesta samkomulagið. Ekki er talið að skjalasafnið muni breyta almennri vitneskju um helförina og valdatíma nasista, sem er eitt mest rannsakaða tímabil 20. aldarinnar. Fjöldi eftirlifenda helfararinn- ar og aðstandenda getur hins vegar fræðst um bakgrunn sinn og örlög ástvina. Alls eru nöfn 17,5 milljóna manna skráð í skjalasafninu, sem bandamenn byrjuðu að safna saman fyrir stríðslok og var að lokum afhent Rauða krossinum til varðveislu. - sdg Almenningur fær aðgang að stóru skjalasafni frá seinni heimsstyrjöldinni: 50 milljón síður um helförina SKJALASAFNIÐ Safnið er gríðarstórt og verð- ur hægt að fletta upp í því fimmtíu milljón blaðsíðum. NORDICPHOTOS/AFP Flundra er flatfiskur af kolaætt. Heimkynni flundru eru með strönd- um Evrópu frá Marokkó til Færeyja og allt norður á Kólaskaga. Flundra getur náð allt að 60 sentimetra lengd en er sjaldan lengri en 30 sentimetrar. Flundra er nýr land- nemi á Íslandi, en fyrsta flundran sem greind var hér á landi veiddist í Ölfusárósi í september 1999. Ekki er þekkt hvernig flundra barst hingað en vitað er að hún hefur borist til Ameríku með kjölfestuvatni í skipi þótt hún hafi ekki náð þar fótfestu. Talsvert virðist nú um flundru í ósum og sjávarlónum á Suðurlandi og jafnvel víðar á landinu. Rann- sóknir hérlendis hafa sýnt að ósar og ísölt lón eru mjög mikilvæg búsvæði fyrir bleikju og urriða. Því er þörf á mun víðtækari rannsókn- um til að afla meiri vitneskju um lifnaðarhætti flundru þannig að hægt sé að átta sig á hver áhrif til- koma hennar í íslenskt vistkerfi eru gegnum afrán og samkeppni. Heimild: Magnús Jóhannsson, Veiðimálastofnun FLUNDRA - NÝR LANDNEMI Á ÍSLANDI VIÐSKIPTI „Það kann að blekkja að álverið í Straumsvík hefur ekki verið inni í almenna skattkerfinu,“ segir Baldur Guðlaugsson, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Fram kom í Fréttablaðinu í síð- ustu viku að stóriðjufyrirtækin greiða svo til engan tekjuskatt, þegar rýnt er í yfirlit sem birt var í Vefriti fjármálaráðuneytisins. Samanlagðar tekjuskattsgreiðslur þeirra í fyrra nemi sennilega um sex milljónum króna. Tekjuskattar á lögaðila í heild nemi um 40 milljörðum króna. Þar af greiði fjármálafyrirtækin um helming. Álverið í Straumsvík var þangað til 1. janúar 2005 utan við almenna skattkerfið, samkvæmt lögum sem samþykkt voru í sumar. Það greiddi sérstakt framleiðslugjald sem í hittiðfyrra nam 990 milljónum króna. Áætlað var, þegar allt væri til tekið, að tekjur ríkissjóðs af álver- inu árið 2005, myndu rýrna um hálfan milljarð króna, eftir breyt- inguna. Baldur bendir á að þótt stóriðju- fyrirtækin séu í eigu erlendra aðila, þá eigi að greiða tekjuskatt innanlands. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að mikill fjárfest- ingakostnaður þar skýri lágar skattgreiðslur. Hann bendir jafn- framt á að fyrirtækið greiði há fasteigna og hafnargjöld. - ikh Tekjuskattsgreiðslur stóriðjufyrirtækja nam sex milljónum króna í fyrra: Straumsvík laut öðrum reglum Finnst þér ný útgáfa þjóðsöngs- ins betri en sú gamla? Já 42,5% Nei 57,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Fylgdist þú með keppninni um ungfrú heim? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.