Fréttablaðið - 03.12.2007, Qupperneq 23
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Mjöll Hólm lætur fara vel um sig í stofunni
heima þar sem hún slakar á, sameinar fjöl-
skylduna og heldur fjörugar veislur.
„Mér líður langbest í sjónvarpssófanum því ég elska
að horfa á kvikmyndir og gott sjónvarpsefni og þá
helst íslenskt,“ segir söngkonan Mjöll Hólm, sem var
að gefa út nýjan disk sem ber heitið Tónleikar og er
upptaka af tónleikum hennar í Kaffileikhúsinu. „Já,
og svo horfi ég auðvitað mikið á tónleika,“ segir hún
brosandi. Á disknum er að finna mikið af gömlum og
góðum lögum en Mjöll segist vera hrifin af því sem
er gamalt og gott. „Ég er mjög hrifin af gömlum hlut-
um en hef líka gaman af því að blanda saman gömlu
og nýju. Annars þykir mér mikilvægast að heimilið
sé notalegt,“ segir Mjöll. Hún segist vera afar heima-
kær og njóta þess í skammdeginu að draga úr ljósun-
um og kveikja á kertum. „Já, ég er mikill kúrari og
finnst notalegt að vera heima í sófanum í skammdeg-
inu, sérstaklega þegar vindar blása,“ segir Mjöll.
Húsið sem Mjöll býr í er gamall sumarbústaður í
Kópavoginum.
Fyrir nokkrum árum byggðu hún og maður hennar
Júlíus Jónasson við húsið og stækkuðu það um helm-
ing. „Við færðum borðstofuna yfir í nýbygginguna
þannig að meira pláss myndaðist í stofunni, en ég
vildi hafa hana stóra.“
Í stofunni hjá Mjöll er nóg af sófum og stólum, enda
hefur hún gaman af því að hafa fjölskyldu og vini hjá
sér. „Stofan er aðalstaðurinn og ég vil að þar sé pláss
fyrir alla, án þess að það sé þröng á þingi. Hér eru oft
lífleg fjölskylduboð og þá er auðvelt að ýta öllu til
hliðar svo hægt sé að dansa.“
Stofan er staðurinn
Mjöll hefur gaman af því að hafa fjölskyldu og vini hjá sér og vill því að sé pláss fyrir alla í stofunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BORIÐ Á HÚSGÖGNIN
Til þess að húsgögnin haldist
falleg er mikilvægt að hugsa
vel um þau.
HEIMILI 2
GOTT Í SKÓINN
Jólasveinarnir fara bráðum
að tínast til byggða og
börnin flest farin að hlakka
til þess.
JÓL 4
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Málaratrönur
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
Verðdæmi:
Leðursófasett áður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsófar tau áður 198,000 kr
Nú 103,000 kr
Hornsófar leður áður 249,000 kr
Nú frá 159,000 kr
• Leðursófasett
• Hornsófasett
• Sófasett með innbyggðum skemli
• Borðstofuborð og stólar
• Sófaborð
• Eldhúsborð
• Rúmgafl ar
• Rúm í ýmsum stærðum og gerðum
Húsgagna - Lagersala
Nýjar
vörur