Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 25
MÁNUDAGUR 3. desember 2007 3
Hlutirnir þróast hratt í tækni-
heiminum og nú má búast við
ennþá þynnri flatskjám en við
sjáum í dag.
Forvitnilegt er að vita hvaða tækni-
nýjungar eru handan við hornið og
hvort flatskjáirnir í dag gætu
þegar verið að úreldast. Á hinum
ýmsu vefsíðum eru grúsk arar að
velta nýrri tækni fyrir sér. Tals-
verður spenningur er í kringum
svokallaða OLED-skjái en þeir eru
samsettir úr lífrænum díóðum og
geta orðið örþunnir; aðeins nokkrir
millimetrar. Jafnvel yrði hægt að
horfa á tvær mismunandi myndir á
skjánum, þá frá sitthvorri hlið, og
hugsanlega rúlla honum upp og
stinga í vasann.
„Stóru fyrirtækin eru eitthvað
byrjuð að framleiða örþunna tölvu-
skjái í tilraunastarfsemi en það er
erfitt að segja til um hvenær sú
tækni fer að skila sér í verslanirn-
ar og við sjáum í rauninni engin
merki um það ennþá,“ segir Guðni
Ásbjörnsson, deildarstjóri yfir
sjónvarps- og hljómflutningsdeild
Elkó. Hann bætir því við að svona
þróunarvinna taki langan tíma að
koma fram á almennan markað
þannig að fólki sé ennþá alveg
óhætt að fjárfesta í þeirri tækni
sem boðið er upp á í dag.
„Framleiðslu á túbusjónvörpun-
um hefur mikið til verið hætt og
salan á flatskjám hefur verið að
aukast jafnt og þétt. Fólk er að end-
urnýja hjá sér sjónvörpin og skipta
þeim gömlu út fyrir það nýjasta og
það eru annars vegar plasma-skjá-
ir eða LCD-skjáir sem boðið er upp
á í dag,“ segir Guðni. Tæknin að
baki LCD-skjánum er fljótandi
kristalmassi sem flúorljósi er
hleypt í gegnum en í plasma-skján-
um er náttúrulegt gas og fosfór.
Muninn á þessum tveim segir
Guðni liggja í myndgæðunum og
að myndgæðin í plasmaskjáunum
minni meira á þá mynd og liti sem
voru í gömlu túbusjónvörpunum.
„Það er þá eitthvað sem fólk kann-
ast við og finnst eðlilegri litir,“
segir Guðni en bætir við að annars
séu mjög skiptar skoðanir um hvað
sé betra. „LCD-skjáirnir bjóða upp
á mikla skerpu í mynd og lengri líf-
tíma og koma í fleiri stærðum
þannig að þeir hafa verið vinsælir í
önnur herbergi en stofuna, til
dæmis í eldhúsið.“ Stutt er síðan
flatskjásjónvörp voru mjög dýr
lúxusvara en hraðar tæknifram-
farir hafa ýtt túbusjónvörpunum
alveg út af markaðnum og verð á
flatskjáunum hefur lækkað hratt
svo þeir eru komnir inn á flest
heimili. heiða@frettabladid.is
Fleiri tækninýjungar
handan við hornið
Guðni Ásbjörnsson telur ein-
hverja bið á að örþunnir skjáir
komi á markaðinn.
SÓFASETT
Mary
Hermes Barbara
Paula
Auglýsingasími
– Mest lesið