Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 62
42 3. desember 2007 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Þegar ég er við skriftir finnst
mér betra að hafa þögn, en
annars finnst mér ágætt að
hafa tónlist í bakgrunninum. Ég
er með fullt af tónlist í fartölv-
unni sem ég hlusta gjarnan á
og núna er popphljómsveit frá
Japan sem heitir Halcali í miklu
uppáhaldi.“
Paul Nikolov, varaþingmaður Vinstri
grænna.
„Ég á afar bágt með að trúa því að þetta sé
tilviljun,“ segir Svavar Lúthersson, fram-
kvæmdastjóri Istorrent ehf., sem staðið hefur í
ströngu undanfarnar vikur vegna lögbanns
sem sett var á deiliskráarsíðu hans, torrent.is.
Eftir því hefur verið tekið að auglýsing á
vegum Microsoft sem sýnd er í helstu kvik-
myndahúsum borgarinnar hefur tekið breyt-
ingum frá því sem áður var.
Umrædd auglýsing er í teiknimyndasögustíl
og segir frá manni sem ákveður að sækja sér
ónefnt forrit með krókaleiðum í gegnum
internetið. Vinnufélagi mannsins, nefndur
Ragnar í upprunalegu auglýsingunni, skorar á
hann að hunsa lög og reglur og sækja forritið á
netið án þess að greiða fyrir það. Sú ákvörðun
reynist afdrifarík því stolna forritið hefur í för
með sér alls kyns vírusa sem lama tölvukerfið
á skrifstofunni. Boðskapur auglýsingarinnar er
einfaldur – að sjóræningjastarfsemi á netinu
hafi alvarlegar afleiðingar.
Í nýrri útgáfu auglýsingarinnar ber svo við
að vinnufélaginn vondi heitir ekki lengur
Ragnar heldur Svavar – og er því orðinn nafni
tíðrædds Svavars Lútherssonar hjá Istorrent.
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi, segir að ástæðan fyrir því
að nafninu var breytt sé sú að stór samstarfs-
aðili fyrirtækisins hér á landi, einstaklingur
sem ber nafnið Ragnar, hafi ýjað að því að
hann vildi breyta nafninu. „Við ákváðum því að
breyta nafninu og það er hrein tilviljun að
nafnið Svavar var valið,“ segir Halldór. Hann
kveðst ekki muna hvort auglýsingunni var
breytt fyrir eða eftir lögbannið sem sett var á
Istorrent en ítrekar að enginn ásetningur liggi
að baki nafnabreytingunni. „Ég bendi á að
okkur var boðið að taka þátt í málshöfðuninni
með SMÁÍS gegn Istorrent en tókum þá
ákvörðun að gera það ekki,“ segir Halldór.
Svavar segist ekki ætla að grípa til neinna
ráðstafana vegna auglýsingar-
innar. „Það yrði hæpið að
fara í meiðyrðamál þar sem
erfitt er að sýna fram á að
það sé átt við mig. Ég læt
það í hendur almennings
að dæma um hvort þetta
sé tilviljun eiður ei.“ - vig
Tilviljun að Ragnar varð að Svavari
SVAVAR LÚTHERSSON
Á bágt með að trúa því
að nafnabreytingin
sé tilviljun.
LÖGBRJÓTURINN Svona lítur Svavar, áður nefndur
Ragnar, út í auglýsingu Microsoft.
„Einhverjir óprúttnir náungar
notuðu bæði lögin mín, sögu mína
og myndir og bjuggu til heimasíðu
með mínu nafni,“ segir Leoncie í
samtali við Fréttablaðið en hún
kveðst hafa látið bresku lögregl-
una loka síðunni myspace.com/
leoncie. Þar mátti heyra lög með
indversku prinsessunni og myndir
af „vinum“ hennar sem voru annað
hvort berir að ofan eða með yfir-
varaskegg. Fréttablaðið athugaði
hvort þetta væri raunin og í ljós
kom að umræddri vefsíðu hafði
verið lokað.
Leoncie segir að heimasíðan
hafi farið í loftið skömmu eftir að
hún fluttist til Bretlands fyrir
tveimur árum en þar býr hún í
Essex eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu. Hún segist hafa
reynt árangurslaust að fá yfirvöld
á Íslandi í lið með sér en þegar það
hafi ekki gengið hafi bresku lög-
regluþjónarnir komið henni til
bjargar með góðum árangri. „Ég
er með lögfræðinga í málinu og
þeir ætla að fara yfir þetta og sjá
hvað þeir geta gert,“ segir Leoncie
en höfundarrétturinn er verndað-
ur samkvæmt lögum. „Af hverju
hugsar fólk ekki bara um sjálft sig
í staðinn fyrir að þykjast vera ein-
hverjir aðrir?“ bætir hún við. - fgg
Leoncie lokar og læsir ólöglegri vefsíðu
STOLIÐ FRÁ LEONCIE Indverska prinsess-
an er ekki par ánægð með My Space-
síðuna og hefur látið loka henni.
STÖÐ 2: FJÓRAR LEIKNAR ÞÁTTARAÐIR NÆSTA SJÓNVARPSVETUR
Sakamálaæðið yfir í sjónvarp
Þau Sigurjón Kjartansson, María
Reyndal og Margrét Örnólfs-
dóttir verða meðal þeirra sem
skrifa handritið að nýrri spennu-
þáttaröð.
HÖFUNDAR NÝJU
ÞÁTTARAÐARINNAR
LÁRÉTT
2. merki 6. klaki 8. þrí 9. skilaboð 11.
hreyfing 12. messing 14. misbjóða 16.
halló 17. for 18. spíra 20. tveir eins 21.
eignarfornafn.
LÓÐRÉTT
1. fangi 3. borðaði 4. umhverfis 5.
óhróður 7. lítilsvert málefni 10. arinn
13. háma 15. auma 16. rámur 19.
bardagi.
LAUSN LÁRÉTT: 2. tákn, 6. ís, 8. trí, 9.
sms, 11. ið, 12. látún, 14. móðga, 16.
hæ, 17. aur, 18. ála, 20. mm, 21. sitt.
LÓÐRÉTT: 1. gísl, 3. át, 4. kringum, 5.
níð, 7. smámæli, 10. stó, 13. úða, 15.
arma, 16. hás, 19. at.
Kvikmyndagerðar-
maðurinn Ólafur
Jóhannesson
heldur til í New York
þessa dagana. Hann
segir frá því á bloggi
sínu að hann hafi
rekist á konu að nafni
Ronna B. Wallace en
henni leist vel á mynd
Ólafs, Queen Raquela,
sem fjallar um stelpustráka á
Filippseyjum. Ronna þessi reyndist
vera alfróð um kvikmyndabransann
enda framleiddi hún meðal annars
Tarantino-myndina Reservoir Dogs
á sínum tíma og gaf hún Ólafi
nokkur góð ráð.
Þrálátur orðrómur
hefur verið uppi um
samband Magna
Ásgeirssonar og
Dilönu, sem keppti
um hylli sveitarinnar
Supernova í Rock
Star-þáttunum sem
allir muna. Nú síðast
birtist tengill á mynd
af þeim söngfugl un-
um saman á hokkíleik á
tenglasíðunni vinsælu b2.is,
sem samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins ku vera
rúmlega árs gömul.
Magni hefur þó ekkert
gefið út á orðróminn
og lætur kjafta-
sögur ekkert á sig
fá frekar en fyrri
daginn.
Istorrent-málið virðist ekki hafa
slegið niðurhalsglaða Íslendinga út
af laginu, en nýja síðan The Viking
Bay fer nú vaxandi dag frá degi.
Notendum fjölgaði um um það
bil þúsund manns um helgina, og
voru ríflega fimm þúsund skráðir
notendur á síðunni í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum á henni eru
fjögur þúsund þeirra karlmenn, núll
gáfaðir notendur og núll vitlausir.
Heitið vísar í torrentsíðuna The
Pirate Bay, sem gefur sig út fyrir að
vera sú stærsta af því tagi. Hvort
víkingarnir hafa áform um að velgja
sjóræningjum undir uggum skal
ósagt látið.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Auglýsingasími
– Mest lesið
Þau Sigurjón Kjartansson, Mar-
grét Örnólfsdóttir, María Reyndal
og Kristinn Þórðarson munu öll
koma að gerð nýrrar leikinnar
spennuþáttaraðar sem verður
tekin til sýningar á Stöð 2 sjón-
varpsveturinn 2008 til 2009. Þetta
staðfestir Pálmi Guðmundsson,
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Sigur-
jón mun stýra handritsgerðinni
og vera auk þess meðframleið-
andi en hann er einnig einn af
aðalmönnunum á bak við Pressu
sem verður frumsýnd í þessum
mánuði. Pálmi segir að enn eigi þó
fleiri eftir að bætast í þennan
úrvalshóp handritshöfunda.
Að sögn Pálma verða mun fleiri
þættir í nýju þáttaröðinni en í
Pressunni, þar sem þeir eru alls
sex talsins. Hann vildi þó lítið
gefa upp um efni þáttaraðarinnar
en sagði að miklar vonir væru
bundnar við Pressu og því væri
verið að veðja á þann hest. Pressa
gerist á harðsvíruðu dagblaði en
baksvið nýju þáttaraðarinnar er
enn leyndarmál.
Sakamálaæðið sem hefur tröll-
riðið íslenskum bókamarkaði
virðist því vera að færa sig yfir í
sjónvarpið. RÚV ætlar eftir ára-
mót að frumsýna Mannaveiðar
sem byggð er á bók Viktors Arnar
Ingólfssonar, Afturelding, og er
auk þess með sakamálaþáttaröð í
bígerð eftir bókum Örns Ævars.
Allt stefnir því í metár á næsta ári
hvað leikið efni varðar og Stöð 2
ætlar að leggja sitt af mörkum.
Þegar hefur verið tilkynnt um
sjálfstætt framhald Næturvakt-
arinnar sem hefur slegið í gegn
hjá íslenskum sjónvarpsáhorf-
endum og Pálmi lofar að fleira sé
á teikniborðinu. Stöð 2 sé stór-
huga á þessu sviði. „Við ætlum
okkur að vera með fjórar leiknar
þáttaraðir á næsta sjónvarps-
vetri,“ lýsir Pálmi yfir.
Að sögn sjónvarpsstjórans er
verið að leggja drög að nýjum
gamanþáttum sem verða í ætt við
Stelpurnar en þó á nýjum forsend-
um. Enn er þó á huldu hvernig
hún verður og vildi Pálmi lítið tjá
sig um það en viðurkenndi að
þetta væri ákaflega spennandi
hugmynd.
freyrgigja@frettabladid.is