Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 8
8 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
M á l þ i n g
Mannréttindanefnd Reykjavíkur boðar til málþings
um hvernig borgaryfirvöld geti spornað við ofbeldi
gegn konum. Málþingið verður haldið í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 7. desember milli
kl. 13.30 og 17.00
Spurningunni velta fyrir sér fulltrúar ýmissa
félagasamtaka og stofnana:
kl. 13.30 Setning málþings,
Sóley Tómasdóttir, formaður mannréttinda-
nefndar Reykjavíkurborgar
kl. 13.40 ReykjavíkurAkademían,
dr. Sólveig Anna Bóasdóttir
kl. 14.00 Stígamót,
Margrét Steinarsdóttir
kl. 14.20 Kvennaathvarfið,
Sigþrúður Guðmundsdóttir
kl. 14.40 Neyðarmóttaka vegna nauðgunarmála,
Eyrún B. Jónsdóttir
kl. 15.00 Hressing
kl. 15.30 Femínistafélagið,
Kristín Tómasdóttir og Kári Hólmar Ragnarsson
kl. 15.50 Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi,
Tatjana Latinovic
kl. 16.10 Jafningjafræðsla Hins hússins,
Edda Sigfúsdóttir og Vilhjálmur Leví
kl. 16.30 Samantekt og slit málþingsins,
Sóley Tómasdóttir
Málþingsstjóri er Felix Bergsson,
fulltrúi í mannréttindanefnd
- málþing í tilefni af 16 daga alþjóðlegu
átaki gegn kynbundnu ofbeldi
Léttar veitingar að lokinni dagskrá
Ráðstefnan er öllum opin
og aðgangur ókeypis
Hvað geta borgaryfirvöld gert
til að sporna við
ofbeldi gegn konum?
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
11
/0
7
húfur og vettlingar
1.590
Verð frá
fyrir fríska krakka
ÚTLENDINGAR Grunur leikur á að
Íslendingar þiggi greiðslur fyrir
að ganga í hjónaband með útlend-
ingum og að einstaklingar hagnist
á milligöngu um slík hjónabönd.
„Til mín hafa leitað einstakling-
ar sem fengu dvalarleyfi á Íslandi
með því að ganga í málamynda-
hjónaband. Í þeim tilvikum var
meðal annars um að ræða að milli-
liður á Íslandi greiddi einstaklingi
fyrir að giftast útlendingi,“ segir
Margrét Steinarsdóttir, lögfræð-
ingur Alþjóðahúss.
Margrét segir fólkið sem leitað
hafi til hennar hafa unnið
myrkranna á milli til að greiða
skuldir sínar við milligönguliðinn
og viðbótargreiðslur til þess sem
það giftist.
„Í þessum tilvikum var mér sagt
að þetta væri ekki í fyrsta skipti
sem einstaklingurinn sem þeir gift-
ust gengi í málamyndahjónaband
og fengi greitt fyrir.“
Margrét segist einnig þekkja
dæmi um málamyndahjúskap þar
sem engar greiðslur fóru á milli,
en þá reyni fólk að tryggja ein-
staklingi dvalarleyfi á Íslandi.
Deildarstjóri sifja- og skipta-
deildar sýslumanns Reykjavíkur
segist hafa heyrt af málamynda-
hjónaböndum.
„Við önnumst, eðli málsins sam-
kvæmt, borgaralegar hjónavígsl-
ur og það hafa komið tilvik þar
sem okkur hefur flogið þetta í
hug,“ segir Eyrún Guðmundsdóttir.
Hún segir deildina ekki bera til-
kynningaskyldu gruni starfmenn
að ekki sé allt með felldu.
Sifjadeild hafa borist ábending-
ar og bréf um greiðslur fyrir mála-
myndahjónabönd.
„Já, við höfum heyrt svona
sögur, en fólkið tjáir sig ekki sjálft
um sína hagi svo við getum ekki
fullyrt neitt.“
Sifja- og skiptadeild gætir þess
að fólk af erlendum uppruna upp-
fylli öll skilyrði áður en það gengur
í hjónaband á Íslandi.
„Ef annað eða bæði hjónaefna
eiga ekki lögheimili hér gerir
sýslumannsembættið könnun á
hjónavígsluskilyrðum. Fólk þarf
að leggja fram fæðingarvottorð
og vottorð um hjúskaparstöðu, ef
það er hægt að fá slíkt frá heima-
landi viðkomandi. Þá þarf fólk
einnig að sanna að það sé með
löglega dvöl í landinu. - eb
Þiggja greiðslur fyrir
að ganga í hjúskap
Útlendingar sem vinna myrkranna á milli til að greiða milligöngumönnum og
einstaklingi sem þeir giftast fyrir málamyndahjónaband hafa leitað til lögfræð-
ings Alþjóðahúss. Sifjadeild sýslumanns hafa einnig borist ábendingar.
GREITT FYRIR HJÓNABAND Dæmi eru
um að einstaklingar hagnist á því að
ganga í hjónaband og geri það oftar en
einu sinni.
BRETLAND, AP „Ég er bara
venjulegur miðaldra grunnskóla-
kennari,“ sagði Gillian Gibbons,
breska kennslukonan sem var
hneppt í fangelsi í Súdan fyrir að
hafa leyft nemendum sínum að
gefa bangsa nafnið Múhameð.
Hún kom aftur til Bretlands
snemma í gærmorgun.
„Ég fór þangað til þess að upp-
lifa ævintýri, en fékk aðeins meira
en ég gerði mér vonir um.“
Hún segist þó hafa notið dvalar-
innar í Súdan, fólkið hafi verið
afar vingjarnlegt og allt gengið
vel allt þar til hún var færð í
fangelsi.
„Þetta var erfið reynsla en ég
vil að þið vitið að í fangelsinu var
komið vel fram við mig,“ sagði
hún. „Mér þótti mjög leitt að fara
frá Súdan. Ég átti frábærar stundir
þar. Þetta er yndislegur staður.“
Hún sagðist ekki vilja ræða ásak-
anirnar, sem hún var dæmd fyrir:
„Mér þótti mjög óþægilegt að
hugsa til þess að ég gæti hafa
móðgað einhvern.“
Gibbons sat í fangelsi í rúma
viku og var dæmd sek um að hafa
niðrað Múhameð spámann. Hún
hlaut fimmtán daga fangelsisdóm,
en forseti Súdans ákvað að náða
hana eftir að hafa rætt við sendi-
nefnd frá Bretlandi, tvo breska
lávarða. - gb
Breska kennslukonan komin heim eftir svaðilför í Súdan en segist enn hugsa hlýlega til landsins:
Segist vera venjulegur miðaldra kennari
LÁVARÐURINN OG KENNSLUKONAN Ahmed lávarður, annar bresku þingmannanna
sem héldu til Súdans, ræðir við Gibbons í London. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1 Hver hlaut hvatningarverð-
laun Öryrkjabandalags Íslands
í flokki einstaklinga?
2 Forsvarsmenn hvaða félags
segja texta íslenska þjóðsöngs-
ins ekki boðlegan?
3 Hvaða knattspyrnukona
hefur lagt skóna á hilluna
vegna þrálátra hnémeiðsla?
SVÖRIN ERU Á BLAÐSÍÐU 46
VEISTU SVARIÐ?