Fréttablaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 46
38 5. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
1. deildarlið Víkings frá Reykjavík er öllum að óvörum
komið í undanúrslit í Eimskipsbikar karla í handbolta og
þjálfari liðsins, Reynir Þór Reynisson, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður, er því afar sáttur með
árangur liðsins.
„Það er afar sætt að við séum
komnir alla leið í undanúrslit og þetta
er vissulega skemmtilegt verkefni fyrir
strákana í liðinu sem standa í ströngu
í 1. deildinni,“ sagði Reynir Þór en Vík-
ingsliðið vann Þrótt í Vogum í átta liða
úrslitum í Eimskipsbikarnum í fyrrakvöld
og er sem stendur í þriðja sæti 1. deildar-
innar á eftir ÍR og FH.
„1. deildin er mjög jöfn og sterk, en við setjum
stefnuna að sjálfsögðu á að fara upp í efstu deild og
ég held að bikarævintýrið sé skemmtileg gulrót fyrir
okkur og á klárlega eftir að hjálpa okkur í deildinni,“
sagði Reynir Þór sem lék sjálfur með liðinu áður en hann neyddist
til að leggja skóna á hilluna fyrir tveimur árum vegna meiðsla.
„Það kitlar náttúrulega alltaf að spila, en ég finn mig ágætlega í
hlutverki þjálfara og fæ alveg mína ánægju í gegnum það starf,“
sagði Reynir Þór sem vonast til þess að árangur liðsins verði til
þess að auka áhugann á handboltanum í Fossvoginum.
„Handboltinn hjá Víkingi er búinn að vera í talsverðri
lægð í nokkuð langan tíma og bæði hefur verið erfitt
að fá mannskap til þess að vinna í kringum liðið og
einnig hefur gengið illa að fá fólk til þess að mæta á
leiki liðsins. Það er búinn að vera lítill kjarni af fólki
í kringum handknattleiksdeild Víkings sem hefur lagt
á sig mikla vinnu fyrir liðið síðustu ár, en það er vægast
sagt búin að vera lítil stemning hjá áhorfendum á leikjum
liðsins undanfarið. En nú horfum við fram á að fá heima-
leik í undanúrslitum Eimskipsbikarsins og ég skora á
alla Víkinga að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á
strákunum í baráttunni bæði í deild og bikar.“
REYNIR ÞÓR REYNISSON, ÞJÁLFARI 1. DEILDARLIÐS VÍKINGS: KOMNIR Í UNDANÚRSLIT Í EIMSKIPSBIKAR KARLA
Skora á alla Víkinga að fjölmenna á völlinn
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Snorri Steinn Guðjónsson varð
þess heiðurs aðnjótandi á dögun-
um að vera valinn í heimsliðið sem
spilaði gegn Egyptum í sýningar-
leik í Kaíró. Leikurinn fór fram á
sunnudag og mátti lítið út af bera
til að Snorri missti ekki af leikn-
um.
Hann spilaði með félagi sínu,
GOG, í undanúrslitum danska bik-
arsins á laugardag og í stað þess
að fagna sigrinum með félögum
sínum fór hann til Kaupmanna-
hafnar, þar sem hann flaug til
Vínar og þaðan til Kaíró. Þegar
þangað var komið hafði leikurinn
verið færður fram um tvo klukku-
tíma og þurfti því að keyra hratt í
íþróttahöllina svo að Snorri næði
leiknum.
„Það beið eftir mér maður á
flugvellinum og við brunuðum
beint út í bíl. Ég var hissa á því að
hann skyldi ekki drepa okkur eða
aðra vegfarendur á leiðinni, slíkur
var hraðinn. Ég óttaðist verulega
um líf mitt á leiðinni en hann skil-
aði mér seint heilum í Höllina og
þá var upphitun nánast búin
þannig að ég kom eiginlega beint í
leikinn,“ sagði Snorri sem hristi af
sér ferðalagið og skoraði tvö mörk
í 40-39 sigri heimsliðsins. „Bless-
aður bílstjórinn var lítið stressað-
ur. Hann var bara með tónlistina í
gangi og söng með einhverju
ömurlega lagi á leiðinni.“
Eftir leik var haldið samkvæmi
en flestir leikmanna voru þreyttir
og fóru snemma að sofa. Daginn
eftir var svo farið í skoðunarferð
að píramídunum og öðru áhuga-
verðu áður en haldið var aftur
heim á leið.
„Ég vildi ekki gera þetta oft á
ári en sé samt ekki eftir því. Þetta
var mikil upplifun og svo er mikill
heiður að vera valinn í þetta lið,“
sagði Snorri Steinn. - hbg
Snorri Steinn Guðjónsson fór í mikla ævintýraferð til Egyptalands þar sem hann spilaði með heimsliðinu:
Óttaðist um líf mitt á leiðinni í leikinn
SNORRI STEINN Var næstum búinn að missa af leik heimsliðsins og Egyptalands í
Kaíró en komst klakklaust á leiðarenda rétt fyrir upphaf leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETURW W W. I C E L A N DA I R . I S
49.300 KR.
Verð á mann
í tvíbýli frá
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
9
3
2
6
1
2
/0
7
Icelandair er
samstarfsaðili
West Ham og
býður ferðir á
alla heimaleiki
liðsins í vetur.
Fjölmargir
leikir framundan,
s.s. á móti
Derby, Newcastle
og Aston Villa.
4.–6. APRÍL
P
O
R
TS
M
O
U
TH
W
E
S
T
H
A
M
FÓTBOLTI Florent Malouda,
leikmaður Chelsea, virðist ekki
allt of hrifinn af enska boltanum
og lifnaðarháttum tengdum
honum samkvæmt nýlegu viðtali
við kappann sem birtist í enska
dagblaðinu Daily Mail.
„Það er eins og leikmenn í
ensku úrvalsdeildinni slökkvi
bara á heilanum um leið og þeir
koma inn á völlinn í leikjum og
menn eru á útopnu og gera bara
það sem þeim dettur fyrst í hug.
Æfingarnar eru alveg eins, og
maður er í stórhættu á að
meiðast,“ sagði Malouda og
furðaði sig enn fremur á matar-
æði leikmanna.
„Hjá Chelsea er ekkert fylgst
með því hvað leikmennirnir borða
og þess vegna borða þeir bara það
sem þeim lystir hverju sinni og
drekka kók eða hvað sem þeir
vilja með. Það er eins gott að ég
kom hingað 27 ára en ekki fyrr,
því þá væri ég kannski með jafn
slæman grunn og reglur í
mataræði og aðrir leikmenn,“
sagði Malouda hneykslaður. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Enska deildin
alveg heilalaus
HNEYKSLAÐUR Florent Malouda, leik-
maður Chelsea, er afar hissa á enska
boltanum og mörgu tengdu honum, svo
sem æfingum og mataræði leikmanna.
NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Jón Heiðar Gunnars-
son, leikmaður Stjörnunnar, lenti
í óskemmtilegu atviki í leik gegn
ÍBV 20. nóvember síðastliðinn í
N1-deildinni þegar hann fékk
heilahristing og hefur verið óleik-
fær síðan þá.
Jón Heiðar leikur sem línumað-
ur hjá Stjörnunni og er afar mik-
ilvægur hlekkur í varnarleik liðs-
ins en hefur hvorki getað leikið
né æft með liðinu eftir atvikið.
„Ég var í baráttunni við línu-
mann ÍBV, Nikolav Kulikov, þegar
ég fékk olnbogaskot frá honum í
andlitið og við það skekktist nefið
á mér og ég fékk heilahristing,“
sagði Jón Heiðar sem lét meiðslin
ekki aftra sér í fyrstu og mætti á
æfingu daginn eftir leik.
„Ég var eitthvað að reyna að
æfa en það gekk ekki betur en svo
að ég sá bara þrefalt og fékk
svima. Ég ætlaði þá bara að mæta
í næsta leik og taka bara manninn
í miðjunni eins og Rocky en
læknir liðsins var ekki hrifinn af
því,“ sagði Jón Heiðar í léttum
dúr og tók ráðum læknisins.
„Ég fór svo í framhaldinu í
sneiðmyndatöku og læknarnir
þar sögðu að þetta væri mar á
heila og í raun hefði ég verið í
lífshættu hefði ég fengið annað
högg á höfuðið í því ástandi sem
ég var í. Þannig að samkvæmt
læknisráði mátti ég ekkert gera í
tvær vikur til að byrja með og
núna eru þær vikur að vera
liðnar,“ sagði Jón Heiðar sem vill
ólmur spila á ný með Stjörnu-
liðinu.
„Ég get ekki beðið eftir því að
spila á nýjan leik með Stjörnunni
og set stefnuna klárlega á að spila
næsta leik okkar í deildinni á móti
Akureyri á laugardaginn í
Mýrinni.
Ég er reyndar ekki enn búinn að
ná mér alveg og fæ svimakast um
leið og ég fer til dæmis í lyftu, en
ég hef fulla trú á því að þetta fari
allt að koma. Ég set því stefnuna á
næsta leik og ef ég verð ekki góður
fyrir laugardaginn, þá set ég bara
stefnuna á næsta leik þar á eftir.
Læknarnir sögðu að ég ætti að
finna mig sjálfur í þessu og að ég
mætti fara að æfa um leið og ég
væri laus við öll einkenni, sjón-
truflanir og svima. En ég verð að
fara rólega af stað samt og ætla
auðvitað að gera það,“ sagði Jón
Heiðar ákveðinn.
omar@frettabladid.is
Hefði verið í lífshættu hefði
ég fengið annað höfuðhögg
Jón Heiðar Gunnarsson, línumaður og varnarjaxl hjá Stjörnunni, fékk mar á
heilann eftir slæmt olnbogaskot í leik gegn ÍBV. Læknar sögðu að líf hans hefði
verið í hættu hefði hann fengið annað högg í leiknum. Hann er á batavegi.
HARÐJAXL Jón Heiðar Gunnarsson hefur leikið frábærlega í vörn hjá Stjörnunni í N1-
deildinni í ár, en hefur nú misst af tveimur síðustu leikjum liðsins í deildinni vegna
höfuðmeiðsla. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
> Kristinn dæmir á Goodison Park
Kristinn Jakobsson dómari mun dæma leik Everton og
Zenit St. Petersburg í UEFA-bikarnum sem fram
fer á Goodison Park í kvöld. Kristni til aðstoðar
verða þeir Gunnar Gylfason og Sigurður Óli
Þorleifsson. Fjórði dómari verður Magnús
Þórisson. Leikurinn verður í beinni
útsendingu á Sýn og hefst útsending
klukkan 19.35.